Leita í fréttum mbl.is

Mitt í ferðaundirbúning

kom niðurstaða úr einu prófi hjá kútnum í dag og ekki get ég sagt að hún hafi verið góð,prófið var fyrst tekið fyrir um 10 dögum síðan og þá var kútur lyfjalaus svo var prófið endurtekið í dag á lyfjum og niðurstaðan er ekki góð.

Við getum tekið sem dæmi ef barn á lyfjum mælist mínus 1,8 þá er það í lagi en hjá kút mældist 6,8 á lyfjum en 12,4 án lyfja sem þýðir að hann er langt yfir mörkum hvort sem er á lyfjum eða án lyfja,þanig að næsta skref er að láta hann vera lyfjalausan eitthv eftir áramót meðan verið er að reyna finna réttu lyfin fyrir hann og það er tími sem mig hlakkar ekkert sérstaklega til ég verð bara að viðurkenna það.

því ég veit að álagið verður gríðarlegt á alla fjölskyldumeðlimi,gaurinn minn þessi 14 ára tilkynnti mér það að ef kútur yrði lyfjalaus þá ætlaði hann að flytja af heiman á meðan því hann hefur kynnst bróðir sínum án lyfja og fannst það bara alls ekkert spennandi sem ég skil reyndar mjög vel.

En það þýðir víst lítið að velta vöngum yfir þessu við verðum bara að taka fyrir 1 dag í einu þegar að þessu kemur.

 Hins vegar fæ ég alltaf jafn mikin sting í hjartað þegar ég fæ svona fregnir þrátt fyrir að vita mæta vel niðurstöðurnar þar sem þær eru alltaf þær sömu nema ef vera skildi eitthvað verri kanski,það er bara svo merkilegt með það að maður svona ómeðvitað vonast alltaf eftir stimplinum.....helga mín hér er niðurstaðan komin....það er ekkert að syni þínum  það er þú sem ert móðursjúk,því ég vildi miklu frekar fá þann dóm á mig heldur en að alltaf bættist eitthvað meira við hjá þessari elsku.

Jæja nóg komið af svartsýnis bulli í bili.Blush

Hér var maður í allan dag að setja upp öryggiskerfi í húsið,ég bara get ómögulega skilið húsið eftir óvarið það er ekkert vit í því sérstaklega eftir vatnstjónið hérna í sept og bara það sem gengur á í þjóðfélaginu í dag engin er óvarinn þanig að nú er húsið mitt orðið varið fyrir öllum hugsanlegum tjónu.

mikið ofsalega þætti mér vænt um ef einhver þarna úti myndi vilja gerast bloggvinur minn,ég á bara 2 núna Frown WhistlingWhistlingWhistling


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æ ég trúi því að það sé svekkjandi að fá svona neikvæðar niðurstöður sífellt !  Vonandi að það komi jákvætt bráðum, en ekki láta neikvæðnis-púkann ná tökum á þér.... þá virðist allt vera svartara en það er í raun. Hafið það sem best í Orlando og vona að Villi litli fái heilmikið gaman út úr ferðinni. Kveðjur frá okkur hér í Odense.

Jac (IP-tala skráð) 1.12.2007 kl. 09:09

2 Smámynd: Unnur R. H.

Gamla mín þegar þú ferð og kíkir hjá öðrum, og þér líst á þá skaltu fara í efst þar er rammi og þú klikkar á hann. Hann heitir yfirleitt bloggvinir og klikkaðu á þá sem ert efst. Það er ekki meiramál en það

Unnur R. H., 8.12.2007 kl. 02:42

3 Smámynd: Unnur R. H.

P.S vertu samt innskráð

Unnur R. H., 8.12.2007 kl. 02:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helga skjol
Helga skjol
Ég heiti Helga og er kona,móðir,amma ásamt því að vera fullt fullt annað

Note bene

JÚHÚ kíktu hingað

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband