Leita í fréttum mbl.is

MONT MONT

verð að montast smá.....ég skellti kút á vigtina eftir tíman hans áðan í ræktini og vigtin sagði 1,2 kg niðrá við JEY JEY gæti ekki verið glaðari þó að það hefði verið ég sem hefði misst þetta sjálf.

Það  er svo ánægjulegt þegar eitthvað er að ganga upp hjá börnum manns og þessi elska er að leggja alveg helling á sig og er farin að skilja það hversu mikils virði það er að léttast því að darumurinn er að geta farið og æft judo þegar fram líðar stundir.

Gaurinn minn er svo að fara suður með tíkina okkar á sýningu um helgina og það verður spennandi að sjá hvað kemur útur því á síðustu sýningu fékk hún viðrkenningu sem er bara frábært og bara vonandi að það gangi betur núna,hann náttúrulega hugsar um hana eins og barnið sitt og gerir það mjög vel,hann er líka búin að vera svo duglegur að vinna þessi elska og safna sér pening til þess að standa undir þessu sjálfur enda keypti hann hana fyrir sína fermingarpeninga og stendur nánast alfarið undir öllum kostnaði sjálfur.

Þar sem að dýr eru hans áhugamál þá fékk hann vinnu hérna í dýrabúðini og er að standa sig alveg ótrúlega vel þessi elska,stekkur alltaf um leið og hringt er og hann beðinn um að vinna og note bene hann er bara rétt að skríða í 15 ára.

Ég get alla vega ekki kvartað undan því að börnin mín nenni ekki að vinna það er sko alveg á hreinu enda er sóst eftir þeim báðum stóru börnunum mínu í vinnu og elsta dóttir mín gæti valið úr ef hún vildi og það er sko ekki amalega meðmæli  og þeim er báðum hrósað svo svakalega á sínum vinnustöðum og þannig er það einmitt sem maður vill heyr,ekki satt.

Æji ég er í einhverju montstuði núna  og eiginlega skammast mín bara ekkert fyrir það,þetta er alla vega að seigja manni það að eitthvað er maður að gera rétt í uppeldismálum og maður reynt að leiðbeina þessum elskum eftir bestu getu.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það er svo góð tilfinning að vera hreykinn af börnum sínum og gleðjast með þeim þegar þau taka stór og góð skref til að bæta líf sitt.  Þú mátt alvega montast 

Ásdís Sigurðardóttir, 27.2.2008 kl. 18:18

2 Smámynd: Birna Dúadóttir

Ríkidæmi okkar eru börnin

Birna Dúadóttir, 28.2.2008 kl. 07:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helga skjol
Helga skjol
Ég heiti Helga og er kona,móðir,amma ásamt því að vera fullt fullt annað

Note bene

JÚHÚ kíktu hingað

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband