Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Brjálað að gera.

Já það er sko búið að vera nóg að gera á þessum bæ undanfarna daga, meira að seigja svo mikið að ég hef ekki haft tíma til að blogga í eina 2 eða 3 daga,  já hérna.

Ég fór í skólan hjá kút í fyrradag að taka við einkunnum hjá honum og það get ég svarið að ég var að rifna úr monti þegar ég sá þær, lægsta einkunn er 6 og restin svo 7, 8, 9 og 9,5 ekki amalegt hjá mínum. Í þeim skóla sem hann er í er allt svo persónulegt, þarna var boðið uppá súpu og brauð fyrir foreldra og börn og bragðaðist hvoru tveggja meiriháttar vel, svo er maður bara kallaður í smá spjall og allt svo heimilslegt og gott.

Í dag verð ég svo stödd í Norðurporti (krepputorgi) að selja Jóladótið sem ég er með og líka reyndar á morgun, þannig að nú er um að gera að kíkja fyrir þá sem geta og skoða það sem ég hef uppá að bjóða, ásamt fullt af öðrum varning sem aðrir eru að selja þarna líka.

Kallarnir eru báðir útskrifaðir af sjúkrahúsinu sem er bara FRÁBÆRT, því ég var orðin hundþreytt á því að fara þarna 2svar til 3svar á dag.

Annars bara góð.Heart


Sjúkrahúsferðum fækkar ekki.

Það er ekki ein báran stök hjá manni stundum, búið er að leggja báða kallana mína aftur inn, annar kom reyndar heim aftur í gærmorgun eftir 2ja daga veru en þá var hinn lagður inn seinnipartinn í gær og er þar enn. Þetta er alveg með ólíkindum stundum, svol að mínum ferðum þarna á FSA er ekki lokið ennþá hvænar það verður veit enginn, þetta virðist ætla að draga meiri dilk á eftir sér en ég bjóst við í upphafi.

Annars bíða börnin spennt eftir jólafríi, sér í lagi kúturinn minn sem er að farast úr spenning yfir því að komast í skólafrí.

Títlan mín er reyndar líka mjög spennt en af annarí ástæðu þó, málið er nefnilega hjá henni að hún fær að fara í sinn gamla skóla aftur eins og ég hef áður getið um og spennan liggur á þá leið að fara aftur í þann skóla og ég vona svo af öllu hjarta að henni verði vel tekið þar aftur eins og var þegar hún byrjaði þar í upphafi.

Annars erum við bara góð á þessu heimili og reynum alla hvað við getum að vera jákvæð þrátt fyrir allt það sem gegnur á hér.

KnúsHeart


Er þetta ekki af hinu góða ef satt reynist

Ég myndi álíta það, hvort sem heldur að hann sé að þessu að hefndarhug eingöngu eða ekki. Okkur veitir svo sannarlega ekki af samkeppninni hérna, plús að þetta er atvinnuskapandi líka, þannig að fyrir mér er þetta af hinu góða hver svo sem ástæða JGS kann að vera.
mbl.is Hyggst stofna lágvöruverðsverslun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oft hef ég velt því fyrir mér undanfarið

hvort tími væri kominn á það að hætta að blogga, því oft er það eitthvað sem mig langar að skrifa en get ekki vegna þess að þetta er opinber miðil og þar sem ég veit að ýmsir sem ég kæri mig ekki um að vita nákvæmlega hvað á daga mína drífur droppa hér inn annað slagið.

Ég hins vegar finn það að koma hér inn að tjá mig á einhvern hátt hjálpar mér alveg gríðarlega mikið og ég finn hversu gott það er að fá faðmlag og knús sem maður fær annars aldrei frá fólki útí bæ, þetta er mér ótrúlega mikils virði og ég finn að hvað mér þykir orðið vænt um hvert og eitt ykkar (OK mín smá væminn) en sannleikur er þetta nú samt.

Hafið þið einhvern tíman velt því fyrir ykkur hversu heimurinn sem við lifum í væri góður ef allir sem við þekkjum myndu gera þetta hvort við annað,  að knúsa hvort annað þegar hist er, ég veit ekki kannski fengi fólk leið á því til lengdar. Íslendingar eru bara einhvern veginn þannig að þetta þekkist ekki svo mikið hérna á klakanum.

En að allt öðru. Hér er stefnan tekinn á að kíkja í jólagarðinn með börnum og mömmu minni, pabbi minn var lagður aftur inná sjúkrahús í gær vegna verkja í læri, en þá hafði blætt inná lærvöðva hjá honum, en sem betur fer stendur það allt til bóta og vonandi fær hann að koma heim sem fyrst aftur.

Jólasveinarnir birtast hér einn af öðrum á hverri nóttu með eitthvað gott í skóinn fyrir börnin, börnin á þessu heimili hafa verið sátt til þess með það sem sveinki hefur fært þeim.

ADIOS DARLINGSHeart


Laugardagur til lukku (ekki satt)

Mikið búið að vera gerast undanfarna daga og allt saman misjafnlega gott eða slæmt, eftir því hvernig á það er litið, ég hef staðið í ströngu með það að reyna að redda einu og öðru sem við komumst ekki af með frekar en aðrir.

Ég hef svolítið verið að skoða Desember mánuð undanfarin 12 og ég get fullyrt það að aðeins 1 jól hefur allt gengið snuðrulaust fyrir sig, annars hefur alltaf eitthvað gerst sem hefur dregið einhvern dilk á eftir sér, stundum hefur ástandið staðið stutt yfir en stundum í fleiri fleiri mánuði, fer eftir því hvað hefur gerst á undan. Alveg finnst mér það ömurlegt þegar fótunum er kippt undan manni, maður rembist eins og rjúpan við staurinn að láta allt ganga upp en svo allt í einu púff, allt búið.

ÉG  ætla mér hins vegar að reyna að taka þetta á jákvæðninni og láta gott af mér leiða. Í dag er stefnan tekinn á það að pakka inn jólagjöfum handa þeim sem minna mega sín og setja undir jólatréið, þetta ákvað ég að taka upp í fyrra þegar mín fyrstu jól voru haldinn hérna heima og ætla ég að halda því áfram svo lengi sem uppá það er boðið.

Það var og er svo skrýtið með það að aldrei vissi ég til þess að nein svona hjálp væri í boði þar sem ég bjó í Norge, það eina sem í boði var það að hjálpræðisherinn hjálpaði sumum en ekki nándar nærri því öllum þeim sem eflaust hefðu þurft á því að halda. Þar er enginn mæðrastyrksnefnd né nokkuð annað. Skrýtið.

Knús á ykkur elskurnar mínar.


Datt bara í hug að setja hér inn Jólasveinavísurnar, þar sem ábyggilega fleiri en ég gleymi því í hvað röð þeir koma.

Jólasveinarnir

Segja vil ég sögu
af sveinunum þeim,
sem brugðu sér hér forðum
á bæina heim.

Þeir uppi á fjöllum sáust,
- eins og margur veit, -
í langri halarófu
á leið niður í sveit.

Grýla var þeirra móðir
og gaf þeim tröllamjólk
en pabbinn Leppalúði,
- það var leiðindafólk.

Þeir jólasveinar nefndust,
um jólin birtust þeir.
Og einn og einn þeir komu,
en aldrei tveir og tveir.

Þeir voru þrettán
þessir heiðursmenn,
sem ekki vildu ónáða
allir í senn.

Að dyrunum þeir læddust
og drógu lokuna úr.
Og einna helzt þeir leituðu
í eldhús og búr.

Lævísir á svipinn
þeir leyndust hér og þar,
til óknytta vísir,
ef enginnn nærri var.

Og eins, þó einhver sæi,
var ekki hikað við
að hrekkja fólk - og trufla
þess heimilisfrið.

Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.

Hann vildi sjúga ærnar,
þá varð þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
það gekk nú ekki vel.

Giljagaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
- Hann skreið ofan úr gili og
skauzt í fjósið inn.

Stúfur hét sá þriðji,
stubburinn sá.
Hann krækt sér á pönnu,
þegar kostur var á.

Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.

Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.

Þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.

Sá fimmti, Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
- Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.

Þau ruku' upp til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtt'ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.

Sá sjötti, Askasleikir,
var alveg dæmalaus. -
Hann fram undan rúmunum
rak sinn ljóta haus.

Þegar fólkið setti askana
fyrir kött og hund,
hann slunginnn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa lund.

Sjöundi var Hurðaskellir,
- sá var nokkuð klúr,
ef fólkið vildi í rökkrinu
fá sér væran dúr.

Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó harkalega marraði
hjörunum í.

Skyrjamur, sá áttundi
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn o'n af sánum
með hnefanum braut.

Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
unz stóð hann á blístri
og stundi og hrein.

Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.

Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.

Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.

Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.


Ellefti var Gáttaþefur,
- aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hlálegt
og heljastórt nef.

Hann ilm af laufabrauði
upp á heiðar fann,
og léttur, eins og reykur,
á lyktina rann.

Ketkrókur, sá tólfti,
kunni á ýmsu lag. -
Hann þrammaði í sveitina
á Þorláksmessudag.

Hann krækti sér í tutlu,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist stuttur
staurinn hans þá.

Þrettándi var Kertasníkir,
- þá var tíðin köld,
ef ekki kom hann síðastur
á aðfangadagskvöld.

Hann elti litlu börnin,
sem brostu, glöð og fín,
og trítluðu um bæinn
með tólgarkertin sín.

Á sjálfa jólanóttina,
- sagan hermir frá, -
á strák sínum þeir sátu
og störðu ljósin á.

Svo tíndust þeir í burtu,
það tók þá frost og sjór.
Á þrettándanum síðasti
sveinstaulinn fór.

Fyrir löngu á fjöllunum
er fennt í þeirra slóð.
- En minningarnar breytast
í myndir og ljóð.

Nýjar myndir af jóladótinu.

1-cv.jpg

Þessi fyrir ofan er af Árbæjarkirkju.

0104-02-cv.jpg

Þessi fyrir ofan er bara jólakúla, ekki veit ég af hvaða kirkju þetta er, en ábyggilega ekki neinni héðan af landi. Næstu kúlur á eftir eru svo alls kyns jólakúlur sem flestar eru best til þess fallnar að hanga í glugga eða standa á staífi sem við erum einnig að selja.

0063-01-cv.jpg

Æðislega fallegar barnakúlur.

0063-02-cv.jpg

0063-03-cv.jpg

0063-04-cv.jpg

0077-02-8-og-9cm-cv_748759.jpg

0104-01-cv.jpg

jolatre3st-cv.jpg

kirkjan-hafnarfirdi-9cm-og-.jpg

Hérna er svo Hafnarfjarðarkirkja. 

orn1-sr-_zt-cv.jpg

mik012-fram-og-bakhlid-cv_748766.jpg

bjalla17.jpg

Hérna eru svo kertabjöllur, reyndar er slatti af þeim búin en eitthvað til samt.

bjalla16.jpg

0027-09-cv.jpg

Og svo í lokinn eru hérna tvær tegundir af kertaskálum.27-03-kupt-cv.jpg

Kemur meira inn seinna.

Enjoy.

 


Hrikalega góður á föstudegi.

Þessi bjargar deginum hjá mér, fékk hann sendan frá Stínu systir og finnst hann frábær, mér er vonandi fyrirgefið að setja þetta hérna inn svo fleiri geti hlegið.

Leyndardómur langlífis.

Læknir var á morgungöngu sinni og tók eftir mjög fallegri gamalli konu sem sat fyrir framan húsið sitt og reykti stórsígar...
Hann gekk að henni og sagði: ,, Ég tók eftir því að þú ert svo hamingjusöm og ánægð á svipinn...Hvað er ,, Leyndarmálið"  þitt? Hvernig heldurðu þér svona vel?" 

gomul_kona_a_reykja.jpg

,,Ég reyki tíu vindla á dag, sagði hún, áður en ég fer að sofa reyki ég eina jónu, stóra og góða...Þar að auki drekk ég eina pottflösku af Jack Daniels á viku og ég ét ekkert nema skyndibita, franskar og kleinuhringi.... Um helgar fer ég á 800 BAR , næ mér í gæja og berhátta hann heima í rúmi...tek reglulega vel á honum en það er líka eina hreyfingin sem ég fæ..
 
,,Þetta er ótrúlegt! Hvað ertu eiginlega gömul?" spurði læknirinn agndofa...
 
,,Tuttugu og fjögra" , svaraði hún... 

 HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA.

Góðar stundir elskurnar.


Það vildi ég óska að sú kyrrð sem lýsir sér hérna í þessum myndum

væri hjá okkur öllum og þar sem þetta er svo fallegar myndir að ég má til með að deila þeim með ykkur.

att0004511.jpg

att0004822.jpg

att0005133.jpg

att0005444.jpg

att0005755.jpg

att0006066.jpg

att0006377.jpg

att0006688.jpg

att000841414.jpg

Í þessum kofa myndi ég svo gjarnan vilja vera núna, frá öllum áhyggjum og öllu amstri dagsins. En þið.

Ég er afskaplega þreytt andlega þessa dagana enda mikið til að hafa áhyggjur af, ég reyni samt af öllum mætti að vera jákvæð og bjartsýn, og anda inn, anda út og slaka á, því ég veit að þetta reddast.

Knús á ykkur elskurnar mínar.

 


Ekki verður ráðist og smá humorrrrrrr.

 

 

í hreinsun hjá kút að svo stöddu, því svo virðist sem lyfið sem hann er á sé að gera eitthvað gagn, sem betur fer kannski, ég hef aldrei farið í svona ristilhreinsun en hef heyrt að þetta sé ekki þæginlegt, svo eitthvað gott er að gerast hjá þessari elsku minni núna.

Ég hef mikið í dag velt þeim hlutum fyrir mér hvað það sé gott að vera hamstrari þessa stundina, því að í sept byrjaði ég að hamstra til jólana sem var eins gott því að kallinn lenti í vinnuslysi svo eitthv lítið verður um aur á þessu heimili næstu vikur eða mánuði, ég hef reynt eins og ég get að vera bjartsýn og svo virðist sem það ætli að takast, kvíðahnúturinn í maganum fer minnkandi með því að hugsa jákvætt, það er sem sagt að virka.

Ég ætla að setja inn nokkrar myndir sem vonandi kitla hláturtaugarnar pínulítið.

Plumber with a sense of humour!  Gotta love this guy!!  image001_747050.jpg

THIS IS WHAT SAD LOOKS LIKE  

image002_747051.jpg

THIS IS WHAT SORRY LOOKS LIKE

image003.jpg

BAD SPELLING -  

image004.jpg

PRIVACY PLEASE -  

image005.jpg

POLICE HARD AT WORK -  

image009.jpg

I'D RATHER HOLD IT -  

image011.jpg

PILE UP -  

 image012_747058.jpg

FORGOT SOMETHING  

image014_747060.jpg

THESE WILL MAKE YOU SMILE!  

image016_747062.jpg

HOW TO HANDLE A PROBLEM NEIGHBOR  

image018.jpg

Eigið gott kvöld elskurnar mínar.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Helga skjol
Helga skjol
Ég heiti Helga og er kona,móðir,amma ásamt því að vera fullt fullt annað

Note bene

JÚHÚ kíktu hingað

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband