Mánudagur, 7. apríl 2008
Löngu tímabært
![]() |
Húsaleigubætur hækka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 7. apríl 2008
Þegar ég flutti frá norge
tók ég mér 6 mán í það að pakka (já ég veit er rugluð)en málið er það að ég þarf alltaf að pakka niður eftir öllum kúnstarinar reglum og þar sem ég var að fara á milli landa þá var extra vel pakkað.
Núna ætla ég að byrja að pakka og henda því sem má henda,það er alveg ótrúlegt hvað safnast saman á ekki lengri tíma og nú verður sko hent eins og í öll hin skiptin.
Þar sem ég lét öll heimilstæki frá mér af því að ég taldi mig örugga hér í 3 ár þá þarf ég að fara fjárfesta í slíkum græjum líka og er ég að fara í það í dag,alla vega að kaupa eitt tæki núna og annað í næsta mánuði og svo koll af kolli,þetta eru ísskápur,þvottavél,örbylgjuofn og frystikista sem mig vantar,ég er nú kanski búin að fá frystikistuna keypta af frænku minni notaða en það er líka bara í góðu lagi,en hitt vantar mig,þetta hefði verið mun auðveldara ef mig hefði vantað uppþvottavél eða þurrkara en það eru einmitt einu tækin sem ég lét ekki frá mér því þau gat ég notað hérna,en það eru tækin sem maður getur alveg verið án finnst mér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Sunnudagur, 6. apríl 2008
Jæja áhyggjur af húsnæði
á enda,ég er búin að fá íbúð frá og með 1 júni og fæ að vera þar þangað til að sú íbúð selst hvænar svosem það verður,en alla vega verður gerður 6 mán samningur í senn og verð ég bara að sætta mig við það og kanski er það bara gott á báða bóga þar sem stefnan er tekin á að komast í búseta í náinni framtíð þannig að þá er bara fínt að hafa 6 mán,ekki satt.
Þetta er alla vega íbúð á því verði sem ég ræð við og nógu stór líka allir fá sín herb og hverfið þekkjum við eins og lófana á okkur og börnin mín eiga þarna vini þannig að þetta er bara gott mál.
Nú á ég bara eftir að semja við núverandi leigsala um að fá að fara héðan mánuði fyrr og eftir því sem ég kemst næst að þar sem þau eru að brjóta á mér að þá á ég að getað gengið héðan út í dag ef ég vildi en ég bara vona það að þetta fari allt friðsamlega fram þar sem ég er að lúta að þeirra leikreglum og fara héðan út svo þau komist inní sitt hús,en það er eins og einn lögfróður maður sagði við mig.....til hvers að gera tímabundinn leigusamning ef ekki á svo að fara eftir honum,ef þetta hins vegar hefði verið ótímabundinn leigusamningur þá horfði málið allt öðrusívisi við.
Annars er bara gott hljóðið í minni núna og er ég bara þokkalega sátt við ástandið eins og það er þessa stundina,auðvitað verður maður ekki fullkomlega sáttur fyrren maður verður komin í 100% öruggt húsnæði en ef ég get þraukað þetta í 1 til 2 ár á leigumarkaðnum þá ætti mitt nr að poppa upp hjá búseta og ég geti keypt notaða íbúð á viðráðanlegu verði hjá þeim eða öllu heldur búsetaréttinn.
Eigið gott kvöld elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Sunnudagur, 6. apríl 2008
Þessi unga fallega dama

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Laugardagur, 5. apríl 2008
Partur af fjölskyldu minni.
Elsku bestu foreldrar í heimi gæti ekki án þeirra verið og eru þau einmitt ein af mörgum ástæðum þess að vildi ég flytja heim aftur,gætuð þið trúað því að pabbi minn sé kominn á níræðisaldur.
Uppáhaldsbróðir minn sem því miður býr í danaveldi ásamt sinni fjölskyldu og við sjáum þau alltof sjaldan,en þau komu hérna síðasta sumar og var það yndislegt.(hann er reyndar ekki bróðir minn í eiginlegri merkingu heldur frændi,en þar sem við ólumst upp saman að stórum parti enda svo stutt á milli okkar þá hef ég aldrei litið á hann öðruvísi en sem bróðir,en hann er semsagt elsta barnbarn foreldra minna og sonur stínu systir minnar,en ég hékk heima hjá þeim meira og minna alla mína barnæsku og svo hann heima hjá okkur).
Þetta er semsagt hann og hans yndislega fjölskylda.
Alexander systursonur minn að sauma með ömmu sinni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 5. apríl 2008
og áfram að prufa ég.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 5. apríl 2008
prufukeyrsla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 5. apríl 2008
Dagurinn í gær
fór í það að mæta á fund í Hlíðarskóla og liggja svo á línuni að leita eftir íbúð eða skoða hvað er í boði á netinu en það er nú ekki svo mikið í boði.
Í einu af mínum símtölum í gær var mér tjáð það,að þar sem verið er að brjóta á mínum rétti með þessari uppsögn að þá ætti ég rétt á því að ganga héðan út um leið og ég fyndi húsnæði sem mér og mínum hentaði án þess að leigusali gæti nokkuð gert,ég væri afskaplega feginn ef einhver sem les þetta blogg gæti jáað eða neijað þetta fyrir mig.
Annars var fundurinn í skólanum hjá kút mjög góður eins og alltaf og það var gott að geta rætt allt sem gengur á hjá manni þessa daga,ég er með svo yndislegan fjölskylduráðgjafa þarna að ég get rætt allt við hana og þá er ég ekki bara að tala um kútinn sem þessir fundir eiga reyndar mest megnis að ganga útá,en það er bara svo gott að fá að pústa stundum um allt og ekkert.
Við þrjú sem lögðumst í flensu erum sem betur fer öll að skríða saman aftur þannig að næsta vika ætti að vera á eðlilegu nótunum og allir að geta mætt í skóla.
Eigið góðan dag elskurnar allar sem ein/einn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 4. apríl 2008
Er að verða uppurinn
af allri orku,það er alveg hryllilega slítandi að vera á leigumarkaðnum í dag,ég er búin að sækja um og skoða allar mögulega og ómögulegar íbúðir undanfarna síðustu 2 daga og ég er að verða nett brjáluð,málið er ekki það að ég geti ekki fengið neina af þessum íbúðum heldur það að annað hvort eru þær of litlar eða of dýrar,ég er reyndar búin að fá úthlutað í búseta líka,íbúð sem er í smíðum en það er bara alveg sama hvernig ég reikna dæmið ég hef ekki efni á því að borga svona mikið á mánuði eins og það yrði af þeirri íbúð og þá er ég að tala um HÁA leigu,en það kemur reyndar svona dýrt út fyrir mig vegna þess að ég þyrfti að taka lán fyrir 10% búsetaréttinum og það er það sem ég treysti mér ekki til að gera því það eru bara litlar 3.100.000 og það er bara of miklar greiðslurnar af því í tillegg við venjulegar mánaðargr.
Ég get líka fengið 3ja til 4ra herb íbúð hjá leigufélagi hér í bænum en það myndi jafnframt þýða það að ég þyrfti að skipta út mestum parti að húsgögnum til þess að geta komið okkur öllum þar fyrir sem þýðir en meiri kostnaður,svo til þess að kóróna þetta allt saman að þá leigði ég þetta hús með öllum heimilstækjum en átti þau líka fyrir sjálf en svo þegar ég hélt að ég yrði hérna í 3 ár og vildi ekki láta tækin mín skemmast þá lét ég þau af hendi svo nú bættist sá kostnaður ofaná.
En þar sem ég er búin að taka ÁKVÖRÐUN um það að vera jákvæð þá veit ég að þetta gengur allt saman upp hjá mér.
Púff varð bara að fá að pústa smá.
Eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Fimmtudagur, 3. apríl 2008
Hrikalega er grimmdin orðin
mikil útí hinum stóra heimi og alltaf færist aldurinn neðar,það er eitthvað að þar sem 9 ára gömul börn ákveða að ráðast að kennara sinn og ræna honum vegna þess að hún var ekki nógu eftirlát,hvað verður það næst,eru börn orðin svo grimm eða hefur þetta alltaf verið svona,ég vona ekki.
Ég man eftir dreng í mínum skóla fyrir margt löngu sem tók sig til og barði kennarana sína hvænar sem hlutirnir gengu ekki eftir hans höfði,en sá drengur átti við alvarlega skapgerðarbresti að stríða og réði nákvæmlega ekkert við sig þegar hann reiddist,mér finnst hæpið að öll þessi börn eigi við einhverja skapgerðabresti að etja.
![]() |
Ætluðu að ræna kennaranum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Miðvikudagur, 2. apríl 2008
Þegar einn stendur upp
þá fellur annar,loksins þegar ég finn að ég er að skríða saman þá er gaurinn minn lagstur í flensu,ræfillinn er með svo hryllilega ljótan hósta,hálsbólgu og hita að það er skelfilegt,svo nú er ég með 2 lazarusa heima,gaurinn og kútinn.
Ég hef ekkert komist í ræktina síðan miðvikudag fyrir páska og er svona að velta því fyrir mér hvort ég treysti mér í dag,ég hef reyndar þurft að vera skjótast aðeins út bæði í gær og fyrradag en reyni eins og ég get að halda mig innandyra og ég held að það sé kanski best út þessa viku,en þar sem ég er nú týpísk vog þá er voða erfitt að ákveða sig,skynseminn seigjir....Helga vertu lengur inni,en lönguninn seigjir skelltu þér í ræktina svo nú er bara spurninginn um hvort þeirra hefur betur.
Ég var að lesa bloggið hjá Jónu bloggvinkonu nú í morgunsárið og sá að þar er hún að ræða sumarbúðadvöl hjá sínum strák þar sem hann er búin að fara 3 sumur í röð ef ég man það rétt og verð verð bara að seigja það að ég dáist að þeim hjónum að geta sent hann í sumarbúðir,ég einmitt er þessa stundina að verða fyrir smá þrysting með þetta sama um það hvort ég vilji ekki senda kútinn í sumar og ég get svarið það mér verður bara óglatt við tilhugsunina um það að senda hann frá mér.
Ég geri mér 150% grein fyrir því að það væri það besta sem ég gerði fyrir okkur bæði en guð minn góður hvað það yrði erfitt,kanski meira fyrir mig enn hann reyndar þegar upp yrði staðið,en þar sem ég hef vafið þetta barn inní bómull alla hans ævi svo hann verði nú ekki fyrir neinu hnjaski útí í lífinu þá er bara svo andsk erfitt að vefja utan af honum bómullinn.
Þetta er alveg SKELFILEG tilfinning að halda það að engin geti passað jafnvel uppá hann og ég,þetta er bara rett og slett vond tilfinning,ég get reyndar alveg hrósað mér af því að ég hef tekið alveg slatta framförum síðan við fluttum heim en ég er bara einhvern veginn þannig að ég virðist þurfa að taka svona baby steps í þessu að vefa hann niður af bómull.
Nýjasta dæmið er bara í síðustu viku þegar einn skólafélagi kom í heimsókn jafngamall honum og þeir ákvaðu að skella sér niður á skóla lóð hérna rétt hjá og ég var bara á nálum allan tíman sem þeir voru þarna......Svona er maður orðinn ruglaður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Þriðjudagur, 1. apríl 2008
Jey lenti í mótmælaakstri
Þeir tóku sig til þessar elskur hérna fyrir norðan og keyrðu mótmælaakstur og ég er ánægð með það að hafa lent í þeirri aðgerð alveg óviljandi,ég ætla bara að vona að öll þessi mótmæli sem eru að gerast hjá bílstjórum að þetta hafi eitthvað að seigja,reyndar finnst mér að við þurfum að taka okkur saman í andlitinu og sýna mótmæli á fleiri vígstöðvum.
Ég hef fram til þess verið ágætlega meðvituð um vöruverð og hækkanir og hef tekið þá ákvörðun að sniðganga þær vörur sem hækka hvað mest í verði á næstuni og ég mæli með því að fleiri geri slíkt hið sama.
Ja hérna maður er bara byrjaður með áróður á eigin bloggi,en það var nú kanski aldrei stefnan.ætli þetta seigji manni ekki bara það að maður er að fá uppí kok í allri þessari dýrtíð,mér er sérstaklega hugsað til allra þeirra sem hafa fram til þess ekki haft svo mikið á milli handana og geta ekki látið enda ná saman ég er ansi hrædd um að róðurinn eigi eftir að þyngjast töluvert hjá þeim ef áfram heldur sem horfir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Mánudagur, 31. mars 2008
Hahaha við eigum óborganlegan hund.


Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Mánudagur, 31. mars 2008
Svona á að gera þetta.
Auðvitað eigum landsbyggðarfólkið að taka okkur til líka og gera eitthvað þessu líkt,þessu verður að linna,ein góð vinkona mín sagði mér í morgun að þegar einhver tiltekin vara hækkar of mikið í USA þá taka landsmenn sig þar saman og sniðganga þá vöru nánast allir sem einn og það virðist vera að virka þar eftir því sem hún sagði.
Af hverju er ekki hægt að sýna þessa samstöðu hér á landi þar sem við erum mörgum milljónunum færri en bandaríkjamenn.
Ég hugsa að það myndi fljótt sýna sig hjá framleiðanda eða innflytjenda.
![]() |
Bílstjórar lokuðu hringvegi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 31. mars 2008
Druslaðist niður
á búseta í dag með hor í nefi og gellti eins og hundur allan fundin of tárinn flæðandi niður á kinn úr vinstra auga,var sko í engu ástandi til þess að fara þarna en þar sem mikið liggur á að finna sér fasta búsetu þá lét ég mig hafa það,átti mjög góðan og jákvæðan fund með framkvæmdarstjóra búseta og er ég orðinn 99% örugg með íbúð hjá þeim,nú þarf bara að kreista alla vasa og klappa mínum yndislega bankastjóra á kinn og þá gengur dæmið upp og ég ætla mér að láta það ganga upp,ég get bara ekki gert börnunum mínum það að fara í eitt leiguhúsnæðið til og þá kanski bara í 1 ár,þetta er orðið gott.
Bara við það að þurfa fara þetta þá finn ég hvað mér slær niður svo nú verð ég bara að vera hörð við sjálfa mig og vera áfram innandyra næstu daga ef ég ætla að ná þessu úr mér,ég sef varla fyrir helv hósta og nefrennsli á næturnar,þið fyrirgefið blótið er bara svo ógeðslega pirruð á þessu og má bara ekkert vera að því að vera lasinn.
Kútur er reyndar veikur líka og mér sýnist á öllu að honum sé að versna,hann kvartar undan höfuðverk þessi elska og er íllt í maganum,ég vona samt að hann verði ekki jafnslæmur og ég er búin að vera OJBARA BJAKK.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
anitabjork
-
fanneyunnur
-
villinor
-
unns
-
jyderupdrottningin
-
dora61
-
mammann
-
helgamagg
-
heidihelga
-
tigercopper
-
ernafr
-
annambragadottir
-
daudansalvara
-
ringarinn
-
jodua
-
jonaa
-
ingabaldurs
-
skrifa
-
tofraljos
-
katlaa
-
katja
-
hugs
-
lady
-
skelfingmodur
-
mammzan
-
ylfamist
-
huldumenn
-
skessa
-
tungirtankar
-
hallarut
-
gurrihar
-
nanna
-
helgadora
-
godinn
-
skordalsbrynja
-
thelmaasdisar
-
rannveigmst
-
ipanama
-
benna
-
ragnarfreyr
-
almaogfreyja
-
jensgud
-
stebbifr
-
berglindnanna
-
dofri
-
olinathorv
-
jahernamig
-
gerlas
-
steinunnolina
-
eddabjo
-
ellasprella
-
sirrycoach
-
bryndisfridgeirs
-
smjattpatti
-
asdisran
-
bifrastarblondinan
-
svanurg
-
stina-sig
-
brandarar
-
ragnhildur
-
leoros
-
saedishaf
-
solskinsdrengurinn
-
dagny65
-
topplistinn
-
holmfridurge
bloggvinir
- Bói mágur...snilldarbloggari
-
þóranna dóttir mín
heimur þórönnu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.8.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 123916
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar