Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

GLEÐILEG JÓL

og farsælt komandi ár

megið þið öll eiga sem yndislegustu jól og áramót. 


3 dagar

og ég er loksins að finna jólagleðina aftur enda þrátt fyrir orkuleysi náði ég að klára að skreyta í gærkvöldi fór svo og keypti nýtt jólatré í morgun og það lifandi,ég hef ekki haft lifandi tré í ein 9 ár en langaði að prufa núna þar sem minni hætta er á að einhver keyri það niður eins og fyrir 9 árum þegar kúturinn minn keyrði á tréið okkar í göngugrind og reif það allt niður og við sem vorum búin að spreyja það allt í jólasnjó svo þið getið ímyndað ykkur verknaðinn eftir þá keyrslu heheTounge.

Eina sem skyggir á jólagleðina núna er það að það er sama hvað ég reyni ég fæ ekki að njóta þess að  hafa barnabarnið hérna á aðfangadagskv og náttúrulega fjölskylduna alla hennar líka,málið er bara það að þau vilja ekki gera uppá milli mín og föðurömmunar sem er reyndar alveg skiljanlegt,hins vegar voru þau þar á síðustu jólum og þá að sjálfögðu langar mig að hafa þau þessi jól,en þetta er víst eitthvað sem ég fæ ekki ráðiðFrown þannig að eina sem hægt er að gera er að sætta sig við orðin hlut ekki satt og gera það besta sem maður getur.

Ég hugga mig við það að bestu foreldrar í heimi sem sagt mínir ætla að vera hjá okkur og borða og opna pakka sem er bara best í heimi og ég svo óendanlega ánægð með það,enda tilkynnti ég þeim það á síðustu jólum að næstu jól yrðu þau hjá okkur því heim skildi ég vera kominn fyrir þann tíma og það stóðst. JIBBÍ JIBBÍ.

 

OVER AND OUT. 


Er hægt

að verða orkulausari ég bara spyr,ég er svo gjörsamlega búin á því að það hálfa væri hellingur,tímamismunrinn er búin að vera miklu erfiðari núna eftir að heim kom heldur en þegar við komum út,ég er að srkíða í rúmið í kringum 22.30 svo n er vöknuð aftur um 00.30 og næ ekki að sofna aftur fyrren kanski um 4 leytið og sef þá til 06.15 og er svo að leka niður restina af deginum og kem nánast engu í verk og það er sko alveg hellingur eftir af undirbúning,ég svona rétt drattast áfram í húsverkin og reyni að klára að skreyta en það gengur alveg hrikalega ílla eitthv hjá mér.

Kúturinn minn er alveg að tapa sér í geðíllsku í dag og í gær og ég vill meina að það sé útaf ferðini og svo jólaundirbúning,þetta er alltaf svo erfiður tími hjá honum að það er skelfilegt,hann var að fá útúr námsmati í skólanum í gær og það var reyndar fínt en að vísu var bara tekið mið af því sem búið er af vetrinum hann tók engin próf af því að við vorum úti þegar að þau voru tekinn.

Kennarinn hins  vegar tók eftir því að honum hafði hrakað í lestri eftir fríið og það er eitthvað sem mér datt aldrei í hug að gæti gerst,ég hélt bara einfaldlega að þegar maður er byrjaður að læra að lesa þá væri ekki svo auðvelt að gleyma því en jú takk fyrir það er hægt alla vega hjá kútum eins og mínum,en þetta seigjir manni það að nú verð ég að vera 150% vakandi yfir honum í öllum fríium og láta hann lesa reglulega ef greyjið á að ná þessu,svo var hann vigtaður í gær og þá hafði hann bætt á sig 2kg í ferðini sem er mjög skrýtið því að hann var á ferðini frá morgni til kvölds alla daga og finnst amerískur matur alveg hryllilega vondur og borðaði nánast ekki neitt allan tíman drakk mikið vatn og reyndar gos líka en miðað við það sem hann lætur stundum ofan í sig hérna heima þá má seigja að hann hafi verið sveltur úti,en þetta styrkir bara skoðun lækna úti í noregi að hann sé með brater willy syndrom en það á eftir að fá staðfestingu á því eins og svo mörgu öðru.

Til stendur að taka hann af öllum lyfjum eftir áramót og það er tími sem mér kvíður virkilega fyrir því það er nú þegar komið í ljós að hann er LLLLAAAANNNNGGGGGTTTTT yfir öllum meðalmörkum í greiningum á lyfjum hvað þá heldur án þeirra en ég læt mér nægja að taka 1 daga í einu þegar þar að kemur.

kv Helga orkulausa. 


Það endar vel

eða þannig ferðalagið okkar,í gær þegar við vorum rétt nýbúin að skila af okkur húsinu er hringt og okkur tilkynnt að búið sé að aflýsa fluginu og það um heilan sólarhring takk fyrir og við húsnæðislaus þannig að það endaði með því að við skráðum okkur á hótel og héldum bílnum degi lengur því ekki er hægt að vera bíllaus með allan þennan farangur,en við ákváðum að gera bara gott úr þessu öllu saman og fengum okkur herb á hilton hóteli og höfum það bara fínt,en mig var nú farið að hlakka svo til að komast heim til mín.

Við erum búin að vera svo ótrúlega heppinn með veður,aldrei ringt en endahnúturinn hjá okkur virðist ætla að vera rigning,þrumur og eldingar því þegar ég vaknaði áðan og leit útum klukkan blöstu við mér eldingar og MÍGANDI rigning,en engu að síður 23ja stiga hiti.

kveðja úr rigningu á orlando. 


Komið að ferðalokum

því að á morgun leggjum við af stað heim,þetta er búið að vera alveg hreint yndislegur tími á heildina litið og ég mun seint eða aldrei getað þakkað VILDARBÖRNUM ICELANDAIR að hafa gert okkur kleift að fara þessa ferð,við erum búin að fara 6 sinnum í garða hérna sem eru hver öðrum fallegri í gær var endahnútur sleginn með ferð í  disney animal kingdom og svo í  disney MGM studios og guð minn góður hvílík fegurð þegar kveikt var á hvorki meira né minna en 9.000.000 milljón JÓLALJÓSUM (er ekki annars 6 núll í milljónBlush ) á amerikan street þetta var bara klikkun svo fallegt var það og múskín stjórnaði ljósonum,það urðu allar 3 myndavélarnar batteríslausar við tökur á dýrðini en þá vorum símar teknir upp og haldið áfram að mynda.

Kútur er búin að vera svolítið trekktur síðustu 2 daga en ég held að það komi til af yfirvofandi heimferð  ekki það að hann langi ekki heim heldur tilhugsunin um breytt umhverfi eina ferðina enn og þó að umhverfið sé heim þá er samt alltaf svo erfitt að fara með hann í annað umhverfi.

Hér er hitinn búin að vera um og yfir 30gr síðustu daga og ég seigji nú bara guðs sé lof fyrir að við biðum ekki frammá næsta sumar til þess að fara því þá hefðum við dáið,litla skottið mitt er bara venju samkvæmt orðin dökkbrún meðan við hin höfum rét skipt lit,en það er bara þannig með hana að það er nóg fyrir hana að vita að sólin skín þá fær hún lit,enda sagði ég við hana í gær að það mætti halda að hún ein hefði verið á florída en við hin orðið eftir á grænlandi hehe.

 Við sem sagt leggjum af stað með flugi kl 18.00 annað kvöld en lendum ekki fyrren kl 06.00 á sunnudagsmorgni að staðartíma og mestu áhyggjur okkar núna eru þær að hvernig í óskoponum eigum við að koma öllum ferðatöskonum fyrir í bílonum því þetta er ekkert smáræði sem við komum með til baka,við megum koma með 14 töskur til samans og við náðum að fylla þær allar haldið þið að þetta sé klikkun og HÓST meira að seigja 2 töskum betur.

kv frá olrlando. 


DISNEY WORLD

jebb jebb í gær var farið i disney world dagur 1 og þetta er bara alveg meiriháttar garður mér leið eins og litlu barni í nammi eða dótabúð að labba eftir main street og allt flóði í jólaskrauti,það er sko eitthvað fyrir mína.

í dag á hins vegar að slappa af með kútinn og barnabarnið meðan restin fer í vatnagarð,kútur er nefnilega orðinn frekar þreyttur á þessum þönum alla daga,hann hefur aldrei fílað sig vel innan um mikinn mannfjölda þannig að hann tilkynnti það hátíðlega áðan að við mættum öll fara hann ætlaði að vera heima og slappa af þannig að meðan að hann er sáttur þá er ég sátt.

Á morgun verður hins vegar tekin restin af disney eða það sem við komumst yfir við keyptum svokallaðan park hopper miða sem vð ætlum að nýta í þá disney garða sem okkur langar í og þeir eru 3 sem við viljum sjá en allt í allt eru garðarnir 7 takk fyrir og það er ekki möguleiki á því að klára þá alla á 2 dögum en við tókum magic kingdom í gær sem er einna stærstur og dagurinn rétt dugði í hann þannig að við sjáum bara hvað setur.

Ég er mikið búin að þusa yfir verðinu inní í garðana hérna við fjölskylduna en ég verð samt að viðurkenna það að ég skil alveg af hverju þetta er svona dýrt það er svo ótrúlega mikið lagt í þetta allt og þetta er alveg glæsilegt en VÁ að þurfa borga um 110.000 kr fyrir að skemmta börnum og fullorðnum í 2 garða með útúrdúrum er bara glæpur plús það að borða svo þarna inni og að kaupa eitthvað til minja um ferðina þetta er rosalegt,en ætli maður verði ekki að hugsa sem svo að kanski sé þetta eitthvað sem maður gerir bara einu sinni á ævini fyrir sig og sína ég held það.

Annars erum við búin að vera lygilega heppinn með veður u.þ.b. 30 stiga hiti dag eftir dag og það fyrir okkur íslendinga í desember er bara unu,ég er hins vegar farinn að hlakka alveg ótrulega til að koma heim aftur í kulda og snjó og jólin,það er nefnilega svo merkilegt með það hvað ég sakna alltaf klakans hversu stutt sem ég er í burtu,kanski er það vegna þess að ég bjó í 4 ár í norge og þjáist íllilega af heimþrá öll árinn mín þar.

hætt að bulla í bili.

kv Helga og orlandobúarnir. 


Vó Orlando

Jibbí komst óvænt á netið þannig að um að gera að skella inn smá færslu ekki satt.

Af okkur er allt gott að frétta,við lentum á sanford flugvelli kl 20.20 á staðartíma á mánudagskv og þá var tekið við að finna bílana sem við fengum leigða og gekk það vel,hins vegar þegar haldið var útá á vegina vandaðist málið örlítið eða svoleiðis það er ekki best í heimi að keyra í fyrsta skipti í niðamyrkri á hraðbrautum florida fylkis það get ég sagt,en eftir tæplega klukkustundar akstur komum við að hverfinu sem við áttum að vera í og þá vandaðist málið,hliðið lokað og gleymst hafði að gefa okkur upp passwordið inn þannig að það var byrjað á því að hringja í þá sem leigja út húsin hérna en engin svaraði þar,en sem betur fer kom umsjónarmaður hérna á staðnum og var svo væn að gefa okkur upp númerið sme þarf að slá inn í hvert skipti sem við komum í hverfið.

Annars er þetta búið að vera mjög fínt,við erum búin að fara í universal studios einu sinni en förum aftur á morgun,svo verður farið í disney world á þriðjudag og miðvikudag og svo í vatnagarð á fimmtudag og kannski föstudag,þannig að vikan verður fullsetinn af skemmtunum,enda er þessi vika sem er að líða búin að fara í það að versla frá sér allt vit og líka í það að slappa af hér heima,það er sundlaug hér við húsið og hún er sko fullnýtt af öllum fjölskyldumeðlimum þegar verið er hérna heima við.

kúturinn minn er búin að vera alveg í þokkalegu jafnvægi og var fljótur að venjast tímamismuninum hérna og reyndar við öll enda vorum við búin að vaka í rétt tæpan sólarhring þegar út var komið þannig að allir gátu sofnað sáttir fyrstu nóttina hér.

Hitinn hérna er eins og þá mjög góðu sumri heima á klakanum þannig að hér er bara gengið um á stuttbuxum og hlýrabol alla daga.

Ég verð hins vegar að lýsa vonbrigðum mínum með orlando búan vegna þess að þeir eru bara ekkert fyrir það að skreyta hjá sér búhhúhú og mig sem hlakkaði svo til að sjá AMERÍSKA jólastemmingu en það er sko eitthvað lítið um það,og ég sem er þetta líka rosalega jólabarnið,ég get svo svarið það að mig langaði til þess að keyra eitthvert þar sem skreytt er og snjór er til þess að upplifa jólinn eins og maður hefur séð í biomyndonum hehe,en ætli ég láti ekki orlando duga í þetta sinn.

Haldið við gamla settið höfum ekki skellt okkur í tattoo í dag kallinn fékk sér alla upphafstafi krakkana á bakið og ég lét gera hjarta og blóm á fótlegginn á mér með borðum og þar voru sett öll nöfn krakkana minna plús nafnið á barnabarninu mínu þannig að nú er ég búin banna fleiri barnabörn svo ég þurfi ekki að bæta við á legginn á mér HEHEHEHE ætli hinn leggurinn verði ekki tekinn þá bara næst,hins vegar var málið það að ég ætlaði bara að bæta við stafnum B við annað tattoo sem ég er með á brjóstinu en svo ákvað bara mín að fá sér eitt stórt á legginn og nöfnin á öllum þar líka.

kveðja frá orlando. 


Höfundur

Helga skjol
Helga skjol
Ég heiti Helga og er kona,móðir,amma ásamt því að vera fullt fullt annað

Note bene

JÚHÚ kíktu hingað

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband