Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

Long time no see

Annars erum við bara góð á þessum bæ, nema hvað að títlan mín er komin með hlaupabólu og er afskaplega sár yfir því sér í lagi vegna að þess næstu daga verður árhátíð í skólanum hjá henni og svo á hún að taka þátt í sundkeppni á laugardag og þetta er svo erfitt að geta ekki tekið þátt í svona skemmtileg heitum.

Þessa dagana er hjá okkur ung stúlka frá Norge, hún kom í gær á vegum skólans síns og skóla gaursins eitthvað verkefni sem er í gangi á milli skólana og verður hún hjá okkur frammá föstudag, gaman af því, reyndar svolítið skrýtið að fara tala norsku aftur og þar sem díalegtan er allt önnur í hennar landshluta er svolítið erfitt að skilja hana stundum, en hún seigjist skilja okkur og það er bara fínt.

Í langan tíma hef ég velt því fyrir mér að læsa blogginu eða hreinlega hætta að blogga og í dag tók ég þá ákvörðun að læsa því og sjá hvernig gengur. Ég er svo skelfilega undrandi á allri drulluni og viðbjóðnum sem gengur manna á milli hérna að ég neita að taka þátt í því, ég hreinlega hef ekki orku né kjark til að standa í því að skíta mann eða annan út á opinberum vettvangi.

Í upphafi taldi ég að gaman yrði að blogga um daginn og veginn og tel ég mig hafa gert það hingað til, ég því miður dróst inní atburðarrás sem ég aldrei vildi taka þátt í og er ég búin að sjá það að ég get hreinlega ekki tekið þátt í svona löguðu, þannig að niðurstaðan varð sú að hér verður læst og fáir útvaldir munu fá hér aðgang.

Knús á ykkur elskurnar mínar sem hingað fá að kíkjaHeart 


Þann 18 mars kl 10.01 árið 1993 fæddist mér

yndislega fallegur rauðhærður gaur sem strax varð augasteinn mömmu sinnar. Hans fyrstu ár einkenndust af því að leika sér með dýr, hann hreinlega elskaði öll dýr enda hafði hann svosem ekki langt að sækja það þar sem pabbi hans er bóndi.

Aldrei klikkaði það að hann færi í sveitina aðra hverja helgi og nánast í öllum fríium líka, það dugði oftast nær að verðlauna hann eins og með einni kýr eða einu dóta lambi og þá var minn sáttur í marga daga á eftir.

Þessi elska hefur ávallt verið rosalegur mömmustrákur og höfum við ævinlega verið mjög háð hvort öðru, hann er sem betur fer einn af þeim sem getur talað við mig um nánast alla hluti og alltaf höfum við saman komist að niðurstöðum úr því sem við höfum þurft að glíma við saman.

Árinn okkar í Noregi urðu okkur erfið og höfðum við nánast bara hvort annað til að halla okkur að, gekk það nú yfirleitt vel hjá okkur, í dag og þann tíma sem liðinn er frá því að heim var komið höfum við gengið mörg erfið skrefinn saman en sem betur fer hefur alltaf birt upp um síðir og er það frábært.

Í dag mun hann svo fara í sinn fyrsta ökutíma og er mikill kvíði í mínum manni, en ég veit að hann á eftir að standa sig eins og hetja þar sem og annar staðar í lífinu, hann ætlar sér stóra hluti og ég veit að ef hann leggur sig fram þá mun honum takast þeir hlutir.

 ELSKU KALLINN MINN INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ ÁRINN ÞÍN 16 OG MEGI ÞESSI DAGUR VERÐA ÞÉR SEM ALLRA BESTUR. ÉG ELSKA ÞIG HeartWizard


Hlaupabóla hlaupabóla.

Kúturinn minn vaknaði í gærmorgun alsettur í bólum þetta grey og enn eru að spretta á honum bólur, útum allan kropp á augnlokum og vörum líka, meira að seigja uppí honum, þessi elska er svo náttúrulega drulluslappur með þessu öllu og svo til að kóróna þetta allt saman þá er hann með hálsbólgu líka, það á ekki frammaf þessu greyi að ganga, ég held meira að seigja að undir þessu öllu saman myndi hann frekar vilja fara í skólan heldur en að vera svona veikur.

Til að byrja með í gær var hann afskaplega kátur þegar hann vissi að hann væri með hlaupabólu og gamanið fór nú að versna þegar kláðin og hitinn bættist við svo nú liggur þessi elska í mömmuholu afsakplega lítill í sér.

Annars er ég búin að vera óttalega þreytt og uppgefinn allan þennan mánuð, það er vægt til orða tekið þegar ég seigji að það sem búið er af þessum mánuði hefur verið með allra versta móti í allri sinni mynd, það hefur gjörsamlega allt gengið á afturfótunum undanfarið og þá skiptir ekki máli hvert litið er, það gengur nákvæmlega ekkert upp hjá mér núna, bílinn minn er kominn á tími með að skipta um tímareim og eitthv fl og það kostar dágóðan skilding að gera við hann og sá skildingur er ekki til á þessum bæ, en samt verð ég að láta skipta um reimina áður en hún fer alveg því þá mun það kosta mig mun meiri pening.

Ég er búin að panta mér tíma hjá doksa eftir helgi og nú ætla ég að heimta rannsókn á því hvers vegna ég er svona endalaust þreytt, ég er orðin svo þreytt á því að vera alltaf þreytt endalaust, mér finnst eins og allt sem ég geri sé gert á einhverrri auka orku sem er ekki til staðar heldur er ég að keyra á loftinu einu saman og það er ekki gott.

Ég gæti eflaust kvartað endalaust en til hvers, jú kannski myndi mér líða eitthvað betur eftir á en þar sem ég vill frekar reyna að halda í það jákvæða þá ætla ég að gera það.

Ég get til dæmis verið þakklát fyrir það að hafa þak yfir höfuðið, ég á yndisleg börn og yndislegt barnabarn, ég hef nóg í okkur og á. Við tökum okkur saman nokkra morgna í viku og berum út öll saman, kútur er annars mjög duglegur að bera út með okkur á morgnana, röltir þetta með mér í ca 30 mín yfirleitt á hverjum morgni áður en hann fer í skólabílinn, enda vill hann vinna sér inn pening og það mun hann fá, hann er nefnilega ákveðinn í því að safna sér fyrir wíí tölvu  og ég æta að leyfa honum það.

Lífð gengur nokkurn veginn sinn vanagang utan við þau skakkaföll sem dunið hafa yfir mig undanfarið en sem betur fer þá veit ég að fyrri reynslu að betri tímar eru handan við hornið og þá lagast allt aftur, ekki satt.

Heart


Meiri snjó meiri snjó meiri snjó, ónei. :(

þetta fer nú að verða fínt, þetta veður sem búið að geysa hérna undanfarna daga, já eða alla vega einn eða tvö ;).  Það kafsnjóðaði svo þvílíkt hérna í fyrradag og smá í gær að það var engin hemja, mér finnst þessi vetur bæði búin að vera langur og leiðinlegur. Ég var nú alveg búin að telja mér trú um það eftir fjögur ár í Norge að ég elskaði snjó, því þar sem ég bjó var bara nánast engin snjór, en ég er búin að komast að því að mér er jafnílla við hann nú og mér var áður en ég flutti út hihi.

Morgnuninn byrjaði á því að ég festi mig hérna beint fyrir utan bílageymsluna þegar ég var að keyra uppúr henni í morgun sem varð til þess að öll börnin mín komu of seint í skólan, málið var nefnilega það að ég ætlaði að mæta á kynningu hjá gaurnum í samb við framhaldsskóla nám kl 8 og þess vegna tóku þau ekki skólabíl, loksins svo þegar búið var að losa bílin þá var ég búin að missa af öllu saman því þetta stóð bara yfir í 40mín.

Svo mátti ég gjöra svo vel að keyra kútinn líka í sinn skóla sem er hérna út fyrir bæinn og þegar þangað kom þá var ófært upp að skóla þannig að við urðum að labba smá spotta, sem er reyndar allt í góðu.

Blöðinn komu náttúrulega mikið seinna en venjulega þannig að byrjað var að bera út að ganga 11 og það get ég svarið að sumt fólk fær ekki blaðið sitt á morgun ef ekki verður búið að moka þar, sum staðar mátti maður vaða snjó uppí klof og ég get svarið fyrir það að ég var orðinn blaut uppað herðablöðum þegar að heim var komið, já eða svona næstum því.

Púff, fer þetta hvíta rusl ekki að bráðna fljótlega, ég viðurkenni að það þetta er orðið frekar þreytandi  svona til lengdar að minnsta kosti.

Annars erum við bara góð og tökum stefnuna á að vera jávkæð eitthv frammá við.

ADIOS.


Já það er Laugardagskvöld ..........

og ég nánast búin að hanga í náttfötum í allan dag, rétt skellti mér úr þeim til að bera út í morgun, síðan heim í sturtu og aftur í náttföt, ekki það að ég hafi ekk haft nóg að gera hérna heima heldur ákvað ég bara að hafa þetta kósý dag.

Systurdóttir mín var mætt hér kl 9 í morgun og verður hjá okkur frammá seinni part á morgun og er bara gaman af því að hafa þessa elsku hjá okkur því hún kemur alltof sjaldan til okkar, það var síðan hrært í vöfflur og búið til rækjusalat, Mamma mín og Pabbi minn kom svo í kaffi og var það bara frábært, svo kom líka systir mín hér í kaffi, sú sem er næst fyrir ofan mig í aldri og var það bara frábært líka, allir sátu og gúffúðu í sig vöfflur og salat og líka kleinur sem steiktar voru í gær.

Lærið fór svo í ofninn og fékk að malla þar í dágóðan tíma því ég átti von á gestum en því miður bilaði bílinn þeirra á miðri leið þannig að ekkert varð úr þeirri heimsókn, en lærið smakkaðist engu síður frábærlega vel og bráðnaði í munni.

Ég hef gert það undanfarna daga að taka kútinn með mér í ca 30mín labb með fréttablaðið áður en hann fer í skólan á morgnana og er hann bara vel sáttur við það, því hann mun fá borgað fyrir það og það sama gildir um hin börnin mín, þau sem nenna að bera út með mér fá að hirða launinn og verður þeim þá bara skipt í þrennt ef svo ber undir.

Ég hef verið rosalega löt að blogga undanfarið, en fyrir því liggja margar ástæður, oft hef ég hugsað með mér að um þetta eða hitt geti ég bloggað um en svo einhvern veginn gleymist það.

Það gekk mikið á í öllum skólum barna minna í nýliðinni viku, fyrst urðu árekstrar á milli títlunar og tveggja annara en sem betur fer er það komið í lag, nú svo var komið að fundi á milli mín og kennara gaursins því hann er ekki að sýna náminu neinn áhuga og gerir það honum býsna erfitt fyrir uppá framhaldsskóla að gera því þangað liggur leiðinn næsta haust, það er búið að reyna tala hann til en lítið viriðst ganga í þeim efnum, ég veit nú samt að hann skilur alveg hversu mikils virði skólaganga er, það er bara málið að nenna leggja á sig eitthvað extra til þess að komast vel frá grunnskólanum.

Nú og svo pungturinn yfir I var þegar kútur lenti í árekstri í sínum skóla líka og voru þar víst látinn fjúka ljót orð á milli hans og annars nemanda, en mér skilst að það sé komið í gott lag líka, annars er ég að fara á fund þar á Mánudag og þá skýrist það allt saman betur.

ADIOS MY DARLINGSHeart


Púff ekkert nema vesen alls staðar.

Það er ekki ofsögum sagt hjá mér að síðustu tveir dagar eru búnir að vera hreint ömurlegir fyrir margar sakir.

Ég er að lenda í vandræðum með einstakling sem ég aldrei bjóst við að þurfa kljást við á þennan máta, en svo bregðast krosstré sem önnur tré. Ég er í eilífu argaþrasi við mann og annan og er það bara ömurlegt, svo til að bæta gráu ofaná svart þá kom kútur kom svona líka sárlasinn heim eftir skóla að ræfillinn lagðist beint uppí rúm og steinsofnaði og þetta er barn sem hægt er að telja á fingrum annarar handa hversu oft hann sofnar þegar hann veikist, og það allra versta er að hann er nýbúin að stíga uppúr einni pestinni og þá veikist hann aftur.

Annars gekk sumarbústaðarferðinn ljómandi vel að flestu leyti, eina sem var að þessi elsku börn mín voru ekki alveg að fíla nándina við hvort annað, þannig að það var mikil barrningur þeirra á milli alla dagana, sem gerði annars mjög góða ferð frekar erfiða.

Við kíktum á systur mína á Skaganum ásamt sinni stóru fjölskyldu og var það alveg meiriháttar gaman, þar á hún þríburadömur sem verða 2ja ára nú í mars og þær eru alveg yndislegar allar þrjár, svo hrikalega gaman af þeim. Gaurinn hennar sem er 10 ára kom svo með okkur í bústaðinn að gisti eina nótt og er hann alveg yndislegur líka, ásamt fleiri góðum gestum sem einnig gistu hjá okkur eina nótt.

Svo var líka kíkt í borg óttans og þar hitt maður gott fólk, það var kíkt í Ikea og kolaportið en að öðru leyti var ekki farið neitt.

Það var heitipottur við bústaðinn og var hann í stöðugri notkun alla daga þegar við vorum þar, og á títlan heiðurinn af þeirri miklu notkun sem þar átti sér stað, að sjálfsögðu skelltu aðrir sér þangað líka en þó ekki í jafnmiklum mæli og hún, ég sagði henni það að hún yrði bráðlega gegnsósa ef hún héldi áfram að hanga í pottinum því ekki nóg með það heldur varð hún að skella sér í sund líka þá daga sem farið var á skagan, haha bara snilld þetta barn mitt.

Annars veit ég að það sem á undan er gengið á eftir að lagast og það vonandi sem allra fyrst.

Knús á ykkur elskurnar mínarHeart


Höfundur

Helga skjol
Helga skjol
Ég heiti Helga og er kona,móðir,amma ásamt því að vera fullt fullt annað

Note bene

JÚHÚ kíktu hingað

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband