Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Og já það er kominn 1 september

hvorki meira né minna, hrikalega líður timinn hratt og mér finnst ekki nema örstutt síðan ég flutti heim á mitt yndislega Ísland og sé ekki eftir því, þrátt fyrir allar kreppur.

Í dag var farið og verslað eitthvað smotterí af vetrarfötum á þessi 2 yngstu, ekki veitti af þar sem þau eru dugleg að týna húfum og vettlingum, þannig að það varð að endurnýja það, nú svo þurfti að kaupa stígvél á þau og kút vantaði líka einhverja yfirhöfn og þar sem hann er heitfengur með eindæmum þá er býsna erfitt að finna eitthvað sem  bæði heldur frá sér vatni og vindi, þannig að ég fékk þessa brjálæðislegu  hugmynd um að reyna finna kannski eitthvað á hann í 66N og já takk góðan daginn jakki á hann þar kostaði bara LITLAR 28.900 kr og ég verð að viðurkenna það að ég hlýt að hafa verið örlítið veruleikafyrrt að halda því fram að ég hefði efni á því að versla á hann jakka þar (hahahahahahahahahahahahaha crasy hlátur).

Svoleiðis að ég hljóp eins og ég ætti lífið að leysa yfir í RL búðina og fann líka þennan fína jakka á heilar 2.490kr og kútur bara mjög sáttur við hann hehe.

Títlan mín var svo að byrja sinn annan vetur í fimleikum í dag og þar fengu peningar sömuleiðis að fjúka og hún hin ánægðasta með það að vera byrjuð aftur að æfa, hún hélt nú reyndar að hún gæti fengið að æfa Júdó líka plús það að æfa söng og fimleika en þá sagði mamman nú eitt stórt NEI, það væri nú ekki hægt að æfa allt sem manni langaði til, kútur nefnilega ætlar að prófa Júdó og þá vildi mín líka.

Gaurinn minn er svo ennþá staddur á spáni og eiginlega leiðist anganum mínum svolítið þar og hlakkar mikið til að koma heim á miðvikudag, elsku kallinn fékk svona hræðilega sýkingu í kringum munninn að fara varð með hann til læknis og fá eitthvað við þessu og sem betur fer er það að virka fínt.

Annars er mín bara góð með sig þessa dagana og hefur mér tekist að halda vel í jákvæðnina síðan á laugardag og hlutirnir ganga eins og þeir eiga að gera, hvað meira getur maður beðið um, ég bara spyr.

asta la vista babys. 


« Fyrri síða

Höfundur

Helga skjol
Helga skjol
Ég heiti Helga og er kona,móðir,amma ásamt því að vera fullt fullt annað

Note bene

JÚHÚ kíktu hingað

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband