Færsluflokkur: Bloggar
Laugardagur, 8. nóvember 2008
Hér fer að bresta á eitt kraftaverkið enn.
Kúturinn minn er að fara í sitt fyrsta afmæli í dag hjá skólabróðir sínum og fer hann ALEINN og veislan verður frá kl 18.00 til 22.00. Vá hvað þetta er skrýtið. Barnið mitt sem átti best heima á einhverju sambýli útí Norge er bara að þroskast og verða unglingur.
Mér finnst þetta frábært en er samt kvíðin á það hvernig gangi að fara í afmæli hjá strák þar sem allir sem þar mæta eru á einn eða annan hátt ekki eins of flestir aðrir en samt allir svo yndislegir.
Kúturinn er búin að bíða eftir þessum degi í mjög langan tíma, bíða eftir því að loksins sé honum boðið í afmæli alveg einum. Aldrei nokkrun tíman var honum boðið í afmæli útí, alltaf var hann skilinn útundan og ég held satt að seigja að hann hafi lokið sig meira af fyrir vikið, því hann er ekki vitlausari en það að hann sá alltaf hvað var í gangi en aldrei kvartaði þessi elska svo mikið sem einu sinni.
Það sem ég gerði fyrir hann í staðinn þegar svona koma uppá úti, þá yfirleitt fór ég eitthvað með hann td í bio eða út að borða, yfirleitt eitthvað gert til þess að bæta honum þennan missir.
Ég sé það alltaf betur og betur hversu rétt það var af mér að taka þá ákvörðun að flytja heim til Íslands aftur því að ég efast um að hann hefði nokkurn tíma fengið þá hjálp þar eins og hann er að fá hérna heima.
Barnið mitt sem átti sér engrar viðreisnar von af þvi er talið var er farinn að gera hluti sem engan dreymdi um fyrir einu ári síðan. Þegar ég horfi til framtíðar þá eigi ég von. Von fyrir barnið mitt sem kannski getur að einhverju leyti hjálpað sér sjálfur, von sem ég átti ekki snefill af fyrir ári síðan.
Guð hvað það er gott, svo gott að hérna er einhver sem ekki stendur á sama um barnið mitt, einhver sem leggur sig fram um að hjálpa barninu mínu að verða sjálfstæður einstaklingur í framtíðinni.
Æji vitið þig hvað. Lífð er yndislegt, sér í lagi þegar maður fær séð hvað við höfum það gott. Mín trú er sú að okkur er öllum ætlað eitthvað verk hér á jörðu og mitt verk er að koma mínum börnum til manns sama hvað og tel ég mig hafa unnið ágætisverk fram að þessu.
Auðvitað hef ég þurft hjálp eins og fyrir kútin og mér verið kennt ýmislegt, en er það ekki af hinu góða að maður sé alltaf að læra eitthvað nýtt.
Okkur væri ekki treyst fyrir þessum dásamlegum einstaklingum sem við eignumst ef við værum ekki frambærileg til þess.
Ég er bara eitthvað svo glöð og sátt við lífið og tilveruna og finn það í hjarta mér að þetta mun allt fara vel. Hvort sem er heldur útí þjóðfélaginu eða innan veggja á mínu heimili.
Knús á ykkur elskurnar mínar inní frábæra og góða helgi
BURT MEÐ SPILLINGALIÐIÐ.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 7. nóvember 2008
Kútur kom til mín
frammí í eldhús settist við borðið og spyr mig........Mamma hvænar fæ ég eiginlega ipod, og ég svara ég veit það ekki elskan langar þig svona mikið í ipod. Minn svarar. Já sko Þóranna á ipod, Árni á ipod og Sylvía á á ipod ( sem er reyndar ekki rétt því hún fær einn gamlan lánaðan hjá bróðir sínum af og til.
Svo heldur minn áfram og seigjir....... Ætli það verði ekki bara hundurinn og kötturinn sem fá næst ipod.Mamma þetta er bara ekki sanngjarnt, sem er alveg satt, en í stað þess að kaupa handa honum ipod mun hann líka fá einn lánaðan af og til.
Allra best fannst mér þetta með hundinn og köttinn hehe.
Birtan mín var á leiðini í morgun að keyra frænda sinn í skólan og var mamma hennar bílstjórinn, þegar hún allt í einu byrjar að vola afturí uhuhuhuHUUUU og seigjir í þvílíka vælutóni, mig langar ekki í skólan uuuhhhhuuuuhhh mig langar ekki í skólan. Þá seigjir Árni við hana... Svona svona Birta mín þú ert ekki að fara í skólan, mamma er bara að keyra mig í skólan.... Þá svarar mín kokhraust...... Ég veit, ég er bara að hrema eftir ÁRNA hahahahahahahahaha.
Ég tek það fram að þessi snillingur er bara rétt að verða 3ja ára og það besta við þetta er að gaurinn var EKKI einu sinni að væla um það að nenna ekki í skólan.
Mamma hennar kom frá USA í fyrradag og að sjálfsögðu var keypt eitthvað smáræðis af fötum á skvísuna og þar á meðal eru 3 grænar peysur, svo í morgun þegar mamma hennar er að klæða hana og ætllar sér að setja hana í eina af grænu peysunum þá gellur í minni...... NEI NEI ekki græna peysu, ekki græna peysu, Villi má eiga grænar peysur. hahahaha. Mín með sjálfstæðar skoðanir á sínum fatnaði.
Á þriðjudag þegar ég sótti hana á leikskólan og við komum síðan hérna heim, þá byrjar Sylvía eitthvað í því að stríða henni og ég seigji við Sylvíu, farðu nú og gerðu lexurnar þínar og láttu Birtu í friði, þá öskrar mín á frænku sína.......Sylvía viltu koma þér í leggings strax hahahaha, þetta átti semsagt að vera lexur.
Ég hef af einhverjum ástæðum haldið í þetta orð lexur í staðinn fyrir heimanám alveg frá því í Norge.
Annars datt mér nú bara svona í hug að setja þetta hérna inn þegar ég fór að hugsa um þessa smávægilegu hluti sem okkur er svo tamt að gleyma en einmitt gleðja mann svo mikið og þegar ég hugsa til baka þá man maður ýmislegt fyndið sem börnin manns hafa látið útúr sér við hinar og þessar aðstæður og sumar þeirra mis góðar. En þær sögur koma kannski seinna.
Knús á ykkur öll elskurnar inní góða helgi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Föstudagur, 7. nóvember 2008
Ljós í myrkri.
Á þessum skammdegisdögum er nauðsyn að birta og ylur kærleiks og vinskapar streymi um nágrenni okkar. Við þyrftum nú strax að hvetja alla til að byrja á því sem kallað er -Ljós í myrkri-. Í fyrstu væri einungis lifandi kertaljós í einum glugga, falleg kveðja til nágrannanns.
Þetta er í raun byrjun á ljósaskreytingu aðventunnar en væntanlega meir með hvítum ljósum sem síður eru tengd sjálfum jólunum. Stígandi væri í þessu sem byrjaði á kertaljósi í glugga og endar í fallegum velupplýstum gluggum í byrjun aðventu.
Látið þetta berast.
Tekið af síðuni hjá Guðrúni jyderupdrottingu.
BURT MEÐ SPILLINGARLIÐIÐ.........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 6. nóvember 2008
Jæja þá er fjórða og síðasta fundi þessarar viku lokið
Hann gekk í sjálfu sér ágætlega og kennarinn hennar er alveg yndisleg og öll að vilja gerð að hjálpa til, ég held hins vegar að hún kannski líti þetta ekki jafn alvarlegum augum og ég geri.
Nú er ég búin að liggja yfir síðuni sem hún Auður var svo yndisleg að setja link inná fyirr mig og það fer ekkert á milli mála samkvæmt þessari síðu að þetta er það sem ég kalla þögult einelti og það er alveg á hreinu að ef þetta kemst ekki í lag sem allra fyrst þá mun ég biðja um flutning fyrir hana aftur í gamla skólan hennar, ég læt hvorki bjóða henni né mér uppá það að þetta sé eitthvað lítilvægilegt sem ekki þurfa að taka á.
Í morgun heyrði ég eina þá sorglegustu sögu sem ég hef heyrt af einelti.
Þannig er að lítill 9 ára drengur er í skóla útá landi og þar er kennarinn hans að leggja hann í þvílíkt einelti að það er skelfilegt.
Hún kallar hann sauðheimskan, þorskaheftan, fífil og þar frameftir götunum, hún hefur rekið hann úr tímum til þess að hlaupa 2 hringi í kringum skólan einfaldlega vegna þess að hann er svo rólegur og tekur hann smá tíma að koma sér að verki.
Ég varð svo BRJÁLUÐ þegar mér var sagt þetta í morgun að ef ég hefði verið í viðkomandi bæjarfélagi þá hefði ég spólað úti viðkomandi skóla og hraunað við þennan kennara.
Mér varð hreinlega íllt og fékk gubbuna uppí háls og gæsabólur frá toppi til táar og reiðin varð þvílík að tárin meira að seigja streymdu fram.
Hvers lags manneskja leggur það á sig að mennta sig til kennara og getur svo leyft sér að koma svona fram við saklausa einstaklinga.
Þetta er bara hreinasti VIÐBJÓÐUR og ég er FOXÍLL.
Annars bara góð elskurnar
BURT MEÐ SPILLINGARLIÐIÐ.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Fimmtudagur, 6. nóvember 2008
Fundir fundir fundir.
Þessi vika hefur einkennst af fundum hjá skólum barna minna. Fyrst var það hjá kút á þriðjud og þaðan er allt gott að frétta, hann er að sættast við sinn nýja kennara.
Í gær var það svo gaurinn því hann er ekki búin að vera að mæta í sund eins og vera ber, en það horfir nú til betri vegar, og þessi gaur er sá sem er svo hryllilega flinkur í sundi og er margbúið að biðja hann um að keppa en nei minn nennir því nú ekki.
Svo aftur seinni partinn í gær var annar fundur hjá mér og aftur útaf kút og nú hjá læknir, það byrjaði ekkert sérstaklega vel því þegar ég mæti kl 15.45 og birtist doksi í hurðini hjá sér og horfir á mig með manndrápssvip, þannig að ég sá strax að eitthvað virtist vera að og spyr hann því, var það ekki kl 16.00, hann hváir og seigjir NEI þú áttir að mæta kl 15.30 og ég get svo svarið fyrir það að ég fölnaði, því það veit ekki á gott að mæta of seint hjá þessum, en jæja hann skellir á eftir sér hurðini og ég sit þarna eins og auli og hugsa með mér hvort ég ætti að fara heim, en ákveð að sitja smá stund og sjá hvort hann komi nú ekki fram aftur og viti menn á slaginu 16.00 birtist hann og biður mig afsökunar á þessu það sé víst rétt hjá mér, ég hafi átt að mæta kl 16.00 en ekki 15.30. HJÚKK.
Á þessum fundi var síðan rætt það að taka af kút tvö lyf og sjá hvernig það færi í hann og var fyrsta lyfið tekið af í morgun og svo næsta verður trappað niður, ég viðurkenni það fúslega að mér kvíðir frekar mikið fyrir því að taka af honum svefnlyfið og ég ætla að vera jávkæð og trúa því og treysta að þetta gangi allt vel, því þetta tiltekna lyf er þyngdaraukandi og draumurinn er sá að hann fari að léttast þegar þetta lyf er farið úr kroppnum á honum og ég ætla rétt að vona að svo verði.
Nú ef svefnin hans mun raskast verulega þá væntanlega mun hann fá eitthvað annað og þá kannski eitthvað sem ekki veldur þyngdaraukningu ( vonandi )
Svo núna kl 9.30 er fundur í skóla títlunar útaf því sem þar er að gerast, ég vona svo af öllu hjarta að eitthvað jákvætt komi útúr þeim fundi, títlan var mjög ánægð með að Eva Lind skildi leika við sig 2svar í gær í frímínotum og er ég henni alveg óendanlega þakklát fyrir það líka, það er svo yndislegt að vita til þess að þarna séu börn sem láta sér ekki standa á sama um önnur börn og það seigjir manni svo mikið um uppeldi þessara barna. Það að Huld mín þú ert svo sannarlega að gera góða og rétta hluti í þínu móðurhlutverki, þúsund þakkir fyrir það því það er mér og minni dömu til góðs.
Ég mun svo seinna í dag kannski láta ykkur vita hvað kemur útúr þessum fundi á eftir.
Knús á ykkur öll elskurnar mínar.
BURT MEÐ SPILLINGARLIÐIÐ.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Miðvikudagur, 5. nóvember 2008
Hahahahahahahahahahahahahahaha
Bara tær snilld, Nú hlýtur Dabbi dr að vera ánægður, og það besta við þetta er það að tekið skildi við honum í verslun hahahahahahahahahahahahahahahaha.
Burt með SPILLINGARLIÐIÐ...........................
Þessi setning að ofan er sett hér inn fyrir tilmæli Ólínu Þorvarðardóttir og mun ég halda því áfram svo lengi sem þurfa þykir.
![]() |
Notaði seðil með mynd af Davíð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Þriðjudagur, 4. nóvember 2008
Þriðjudagur til þrautar
Ekki satt, hér er búið að vera smá ástand á títluni minni undanfarna daga þannig að ég ákvað að fara með hana til doksa til að taka af allan vafa um það hvað gæti verið að áður en ég færi lengra með það sem ég taldi vera að og viti menn að öllum líkindum er þetta vegna vanlíðan í skólanum hjá elskuni í skólanum
Mér fannst þetta orðið frekar skrýtið að barn sem aldrei mátti vera að því að vera veik væri allt í einu alltaf veik, þannig að ég tók á það ráð að fara með hana til doksa og þegar upp er staðið er þetta semsagt vegna vanlíðunar í skólanum.
Elsku kellinginn nær ekki að tengjast neinum félagslega og er alltaf ein í frímínotum og er bara skelfilega einmana þessi elska, svo virðist sem þetta sé það lokaður hópur sem þarna sé á ferð að þau kæri sig ekki um einhverja aðra nýja inní þennan hóp.
Ég var reyndar búin að tala einu sinni við kennaran um þetta og hún lofaði að gera eitthvað í þessu en svo virðist sem það hafi dugað skammt, þannig að mitt fyrsta verk eftir að doksaheimsókn lauk var að hringja í kennarann og fá hjá henni tíma og þangað mæti ég á fimmtudagsm og mun ausa ærlega úr mér þar, því mér virðst sem svo að þetta sé það sem kallað er þögult einelti, það er nefnilega svo skrýtið að þegar kennarinn sér til þá eru stelpurnar mjög góðar við títluna en þegar komið er út vilja þær ekki sjá hana og allar neita þær að leika við hana.
Alla vega skal verða tekið á þessu og það strax, annars mun ég gera allt vitlaust það er alveg á hreinu.
Ég get bara ekki liðið það að hvort sem það er mitt barn eða annara sem eru skilinn útundan þá verð ég alveg brjáluð hreinlega og geri allt sem ég geti til að sporna við því.
On til nest my darlings
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Sunnudagur, 2. nóvember 2008
Já það gerðist kraftaverk ( alla vega í mínum augum)
Kúturinn minn fór einn í bio ásamt frænda sínum og hefur það aldrei gerst á hans ævi fyrr,þessi frændi er á svipuðum nótum og kúturinn þannig að ekki er hægt að seigja að þeir séu alheilbrigðir.
Þannig var að þessi frændi hans gisti hjá honum í nótt eins og svo oft áður og ákváðu þeir í sameiningu að skella sér í bio í dag sem er bara KRAFTAVERK í mínum augum, þar sem minn er svo félagsfælin eða bara rett og slett hræddur við allt utan veggja heimilis ef engin úr fjölskylduni er með í för.
Kútur var að vísu svolítið ragur við að fara einn og vildi helst fá mömmu með en sem betur fer þá gaf ég mig ekki í þetta skipti þannig að það eitt er líka kraftaverk útaf fyrir sig, ég hef nefnilega verndað þetta barn mitt gegn öllu íllu í gegnum tíðina og veit ég vel að oft hefur það verið aðeins of mikið af hinu góða. Málið er bara það að ég hef alltaf verið svo hrædd við það að hann yrði fyrir aðkasti ef hann er einhvers staðar einn á ferð og þar sem ég þekki skapsmuni hans ærið vel þá hef ég gengið í það hlutverk að vernda hann fyrir umhverfi sínu og umhverfið fyrir honum ef svo má seigja.
Ég er heldur ekki það vitlaus að ég viti ekki að það sé kannski ekki alveg rétt af mér að gera þetta, en því miður er bara eitthvað í móðurhjartanu sem seigjir mér að hann fúnkeri ekki einn og óstuddur útí lífinu, ég veit ekki af hverju það er því ekki hef ég látið svona við hin börnin mín.
Enn alla vega þá lifðum við þetta bæði af þrátt fyrir öran hjartslátt hjá mömmuni yfir þessari ferð en ég stóðst þá freistingu að fara með honum í bio og það er fyrir mestu ekki satt.
Svo var náð í þá eftir bioferðina og að sjálfsögðu hrósaði ég honum þvílíkt fyrir það hversu duglegur hann væri og spurði jafnframt hvort hann ætlaði ekki að fara aftur í bio einhvern tíman og þá með einhverjum vini, en minn hélt sko aldeilis ekki og svaraði mér á þessa leið.
Sko mamma þó að það hafi verið rosa gaman að fara með xxxxxx í bio þá ætla ég aldrei aftur að fara svona aleinn því ég var samt rosa hræddur. Svo mörg voru þau orð, ég mun nú samt halda áfram að hamra járnið meðan heitt er, því auðvitað veit ég sem er að einhvern tíman þarf að reyna að koma honum út án mín.
Þessi elska er orðinn 11 ára gamall og samkvæmt staðli ætti hann að geta alla þessi hluti einn núorðið en þar sem hans þroski er kannski ekki til jafns á við árinn hans 11 þá mun ég að ég held halda yfir honum hlífskildi eins lengi og þurfa þykir.
Ég vona samt af öllu mínu hjarta að svo þurfi ekki að vera alla mína ævi því auðvitað þarf hann að öðlast sjálfstæði eins og önnur börn, spurninginn er bara hvænar það verður.
Megi kvöldið verða ykkur sem allra best
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Laugardagur, 1. nóvember 2008
Undanfarnar vikur hef ég velt því mikið fyrir
hvernig lífið var hjá okkur, ja seigjum fyrir 20 til 25 árum síðan, munið þið hvað allt var mikið einfaldara, svo ég tali nú ekki um ef horft er lengra aftur í tíman.
Ég man þá tíð þegar engin debet eða kreditkort voru, þegar maður þurfti að gera sér ferð í bankan til að taka út pening, eða þegar maður fékk launin sín greidd í ávísun eða beinhörðum peningum, munið þið hversu lífið var einfalt.
Kannski á þeim tímanum fannst okkur þetta ekki svo einfalt en hvernig er það þegar við horfum til baka í dag, sjáum við þá ekki hversu einfalt þetta var.
Ég leik mér að því þessa dagana að gæla við þá hugmynd ef að svona yrði þetta aftur, hvernig yrði okkur við, ég held satt að seigja að við hefðum gott af því að missa aðeins af þessum sjálfsögðu hlutum sem allt er í dag.
Sjónvarpið getur td rúllað allan sólarhringinn ef maður kærir sig um og hefur allar þær stöðvar sem í boði eru, maður er ekki maður með mönnum nema vera sítengdur netinu, það eru nú ekki ýkja mörg ár síðan að maður tengdi tölvuna í símalínu og hringdi inn, eða þegar ruv var eina stöðinn, fannst ykkur lífið ekki einfalt áður en framfarirnar urðu svo miklar að maður getur varla fylgst með því allt gerist svo hratt.
Árið 1985 þurfti ég td að leggja fram læknisvottorð til þess að fá símannr sem fyrst útaf litlu dóttir minni að öðrum kosti hefði biðin verið svo og svo margar vikur og þar sem ég þurfti að vera með síma útaf veiku barni þá fékk ég hann með framvísun vottorðs, en í dag er öldin önnur, þetta tekur einhverja örfáa daga og þá er maður komin með allan pakkan.
Lengi vel var ég anti gemsisti ég þoldi ekki gemsa og fannst þetta óþarfa bruðl og varð afsakplega ósátt þegar fyrstu 2 gemsarnir komu inná mitt heimili, það sama mátti seigja um tölvuna, taldi ég enga ástæðu til þess að taka inn eitthvað svona rusl en auðvitað lét maður undan og talvan var keypt og áður en ég vissi af var ég líka komin með gemsa í vasan ojbara.
En í dag kemst maður varla af án þess að hafa þessi tæki við hendina.
Ég seigji bara fyrir mína parta að oft á tíðum vildi ég óska þess að geta horfið aftur til fortíðar og notið þess að hafa það einfalt.
Þessar hugleiðingar eru í boði Helgu á laugardags kvöldi
Megi þetta laugardagskv verða ykkur sem allra best.
Og munið að vera JÁKVÆÐ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Laugardagur, 1. nóvember 2008
Ég vill nú meina það að 1 nóv sé í dag en ekki í gær
eins og kemur farm í fréttinni. En engu að síður........
Strákar til hamingju með daginn
![]() |
Fjórir bræður fæddir sama dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
anitabjork
-
fanneyunnur
-
villinor
-
unns
-
jyderupdrottningin
-
dora61
-
mammann
-
helgamagg
-
heidihelga
-
tigercopper
-
ernafr
-
annambragadottir
-
daudansalvara
-
ringarinn
-
jodua
-
jonaa
-
ingabaldurs
-
skrifa
-
tofraljos
-
katlaa
-
katja
-
hugs
-
lady
-
skelfingmodur
-
mammzan
-
ylfamist
-
huldumenn
-
skessa
-
tungirtankar
-
hallarut
-
gurrihar
-
nanna
-
helgadora
-
godinn
-
skordalsbrynja
-
thelmaasdisar
-
rannveigmst
-
ipanama
-
benna
-
ragnarfreyr
-
almaogfreyja
-
jensgud
-
stebbifr
-
berglindnanna
-
dofri
-
olinathorv
-
jahernamig
-
gerlas
-
steinunnolina
-
eddabjo
-
ellasprella
-
sirrycoach
-
bryndisfridgeirs
-
smjattpatti
-
asdisran
-
bifrastarblondinan
-
svanurg
-
stina-sig
-
brandarar
-
ragnhildur
-
leoros
-
saedishaf
-
solskinsdrengurinn
-
dagny65
-
topplistinn
-
holmfridurge
bloggvinir
- Bói mágur...snilldarbloggari
-
þóranna dóttir mín
heimur þórönnu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar