Leita í fréttum mbl.is

Tók mér það bessaleyfi að setja þetta hérna inn, vonandi er mér fyrirgefið, þetta seigjir svo margt.Endilega gefið ykkur tíma til að þessa þetta.

Eins og fram hefur komið höfum við verið að styrkja ugandískan námsmann sem óvænt varð á vegi okkar fyrir rúmu ári síðan þar í landi, til vegs og virðingar þ.e. hann er í námi sem við greiðum fyrir. Hann sækir nám í virtasta snyrtiskóla Uganda (alveg bannað að hlægja) og gengur vel. Hann var búinn að lofa að senda mér einkunnirnar sínar sem hann og gerði. Góður árangur er nefnilega lykillinn að því að hann fái áfram styrk. Eins og hann vissi. Nú er frí í skólanum og hann byrjar aftur 10. nóvember.

 

Ég var að velta því fyrir mér hvort ég ætti að reyna að útskýra fyrir honum hvernig gangur mála væri hér á landi...ég stórefa að fréttir berist alla leið til hans þarna í Entebbe. Ég var að velta því fyrir mér hvernig ég gæti útskýrt þetta fyrir honum. Ef ég stæði augliti til auglitis við hann ímynda ég mér að samtalið færi svona:

 

* (Ég) Hæ E.

 

Hæ systir (er alltaf kölluð Sister Sigrun eins og þið munið).

 

*Heyrðu það er úr vöndu að ráða...íslenska þjóðin er orðin gjaldþrota!

 

Hvað segirðu, en leiðinlegt að heyra systir kær. Eigið þið þá ekki fyrir baunum og maís?

 

*Jú reyndar eru búðir fullar af mat og kindur og mjólk til í nægu magni.

 

Hvað segirðu, þið eigið þá mat, það er gott. En leiðinlegt að heyra að þið eigið ekki skjól eða þak yfir höfuðið!

 

*Jú við eigum reyndar íbúð eins og flestir, það eru fáir heimilislausir á Íslandi.

 

En hvað segirðu, eru þá allir veikir (sérstaklega þeir eldri og yngri) og heilbrigðiskerfið lamað?

 

*Nei nei reyndar ekki, við fáum nánast ókeypis læknaþjónustu og erum með ágætt heilbrigðiskerfi.

 

Nú jæja systir, gott að heyra en leiðinlegt samt að menntuninni muni fara halloka og að ekki muni allir hafi tækifæri til að læra að lesa, sérstaklega ekki konur.

 

*Jú reyndar er 99% læsi á Íslandi og menntakerfið er ágætt, margir með háskólagráður jafnt konur sem karlar.

 

Það er nú gott, þannig að það eina sem þið þurfið að passa er að lenda ekki í stríði við nágranna ykkar.

 

*Uuuu við erum reyndar ekki með her og erum nú friðsæl þjóð.

 

Ok en samt verst að þið komist ekki í hreint vatn.

 

*Jú við eigum reyndar besta vatn í heimi.

 

Nú en vegakerfið er þá eflaust ónýtt og fáir bílar á ferð..í Afríku ganga jú allir eða nota troðna strætóa, asna, reiðhjól o.fl...leiðinlegt ef að ekki einu sinni strætóarnir ganga.

 

*Uuu það er verið að ræða hvort almenningssamgöngur eigi að vera ókeypis og vegir eru malbikaðir og flestir eru á bílum, mótorhjólum og fallegum, skínandi reiðhjólum (gömul reiðhjól eru lúxusvara þarna um slóðir).

 

En það er verst ef þið eigið enga peninga til að gera ykkur glaðan dag, ef þjóðin er gjaldþrota.

 

*Flestir eiga reyndar sparnað á bókum þó margir hafi tapað honum síðustu daga, kannski erfitt að kaupa stærri sjónvörp og svoleiðis og utanlandsferðunum verður jafnvel að fækka.

 

Samt svakalegt ef atvinnuleysi er yfir 50-70% þannig að nánast ómögulegt sé að fá vinnu?

 

*Reyndar er atvinnuleysið um 2%......Íslendingar nenna bara ekki að vinna vinnuna sem útlendingarnir unnu...

 

Hmmm svo þið hafið húsnæði, mat, húsaskjól, heilsu, menntun, frið, hreint vatn, samgöngur (og bíla), peninga.....Sister Sigrun....hvert var vandamálið aftur?

 

Eftir að hafa lent í samræðum við ugandíska lærlinginn í huganum þá ákvað ég að vera ekki að íþyngja honum með ræfilslegum áhyggjum mínum af "gjaldþrota" eyríki. Ég sendi honum fyrir námsgjöldum næstu annar og kannski smá vasapening með. Hann þarf nefnilega að ganga í marga klukkutíma annars til að komast í skólann því hann hefur ekki efni á strætó, húsnæði, mat, bókum, skriffærum né neinu öðru. Systir hans E hefur hótað því að lemja hann ef hann stendur sig ekki vel (sagði hún mér sjálf) og ég vil ómögulega gera honum þetta erfiðara fyrir.

 

Ég er bara svakalega ánægð með að lærlingurinn fékk A í Make Up. Lægsta einkunnin var C- í efnafræði hárlenginga. Ég sagði honum líka að hann hefði staðið sig vel og þyrfti ekki að hafa áhyggjur af næstu önn. Sister Sigrun ætlar að sjá um málið þ.e. ef ég get þá sent peninga íslenskra terrorista til Uganda!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Tetta er gott til umhugsunar nú á tímun og alltaf.

takk fyrir innleggid í daginn.

Knús til tín.

Gudrún Hauksdótttir, 1.11.2008 kl. 11:22

2 Smámynd: Birna Dúadóttir

Gott innlegg

Birna Dúadóttir, 1.11.2008 kl. 12:13

3 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

Frábært innlegg sem fær mann til að hugsa mikið . Hafðu það gott um helgina .................

Erna Friðriksdóttir, 1.11.2008 kl. 13:13

4 Smámynd: Anna Margrét Bragadóttir

Gott innlegg

Góða helgi

Anna Margrét Bragadóttir, 1.11.2008 kl. 15:49

5 identicon

Nei, sko.

Málid er eiginlega ekki hvernig madur hefur thad.

Málid er hvernig madur tekur thvi.

Bless

Konsulen (IP-tala skráð) 1.11.2008 kl. 17:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helga skjol
Helga skjol
Ég heiti Helga og er kona,móðir,amma ásamt því að vera fullt fullt annað

Note bene

JÚHÚ kíktu hingað

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband