Leita í fréttum mbl.is

Hugur minn hefur undanfarnar vikur

leitað slatta mörg ár aftur í tíman og hef ég verið að velta lífinu og tilveruni svolítið fyrir mér,sértaklega í ljósi þess að fyrir tæpum 17 árum síðan varð ég vitni af kraftaverki þegar ég fékk að vera þess aðnjótandi að vera viðstödd fæðingu barns,barns sem ég gekk ekki með sjálf það er að seigja.

Alla vega þegar þetta barn kom í heiminn þá grét ég af hamingju yfir þessum fallega einstakling sem var að líta dagsins ljós,mitt hlutverk átti að vera að taka myndir að viðburðum handa föður barnsins þar sem hann var fastur útá sjó og komst ekki í land í tíma,en mamman varð að minna mig á í miðri fæðingu.....Helga taktu mynd hehe svolítið spaugilegt eftir á.

Strax í upphafi þótti mér alveg undurvænt um þetta barn og elskaði að dúlla með það og man ég að ég söng fyrir það oft á tíðum ört í sandinn með Helgu Moller,þetta barn var með þau fallegustu og stærstu brúnu augu sem sögur fara af.

Barnið óx og dafnaði eins og lög gera ráð fyrir,en í kringum 1 til 2ja ára aldur fór að bera á hinu og þessu tildæmis varð það seint til gangs og já eiginlega bara seint til flestra hluta,að sjálfsögðu fór móðir þess með það í alls kyns rannsóknir og barnið sett í þjálfun ýmiskonar og gekk þetta að flestu leyti vel ef ég man það rétt.

Timinn líður og barnið fer í skóla og þá fór að bera á hinum ýmsu hegðunarerfiðleikum og margt reynt til þess að sporna við þeirri hegðun sem var að myndast en allt kom fyrir ekki,greiningar virtust allar benda til þess að það eina sem hrjáði barnið var athyglisbrestur sama hversu margar greiningarnar voru alltaf var þetta eina vandamálið,en alltaf versnaði hegðun barnsins.

Það fékk alls kyns stuðning í skóla en alltaf sami óróinn í höfðinu hjá barninu og varð endirnn sá að barnið er sent í sveit,fyrst til sumardvalar en síðar kom að því að barnið er tekið útaf heimilnu og sent í sveit og sveitaskóla.

Barnið tók ágætum stakkaskiptum sem sýndu það og sönnuðu að barnið var langt því frá að vera eitthvað vitlaust,það plummeraði flott á öllum prófum og breytingin var undraverð rett og slett,nú töldu menn og aðrir að barninu væri bjargað og töldu óhætt að senda það heim á ný(ég tek það fram að engin óregla eða nokkuð slíkt var höfð inná heimilinu)en þá kom bara hið sanna í ljós enn á ný barnið hreinlega réði ekkert við sína hegðun eða sínar hugsanir og allt fór á sömu leið aftur en í þetta skipti fór barnið að neyta eiturlyfja hafði varla fyrir því að smakka áfengi fyrst eins og gerist í flestum tilfellum,heldur kastaði sér beint útí djúpu laugina með tilheyrandi látum og veseni,eitt af fyrstu skiptunum sem barnið tók dóp þá tók það of stóran skammt og lenti á sjúkrahúsi og í framhaldi af því í neyðarvistun á stuðlum og svo aftur í sveitina sem það hafði verið á áður.

Síðan þá eru að verða liðin 2 ár og ennþá heldur mamman áfram að berjast með kjafti og klóm til þess að bjarga sínu barni. 

En alla vega er staða þess barns mjög slæm í dag en valdi það þó að fara inná vog fyrir skemmstu þar sem það er enn sem betur fer.

Boðskapurinn í þessu er einfaldlega sá að ef betur hefði verið að gáð með þetta barn sem og svo mörg önnur í þessu þjóðfélagi og börnin væru kanski að fá viðunandi hjálp frá læknum og öðru batterí þá kanski væri þetta barn sem og mörg önnur börn þarna úti ekki komin á þá braut sem þau eru á í dag það er bara svo einfalt.

Af göngu minni með þessari móðir og þessu barni þá er ég handviss um það að betur hefði mátt gera,ég hef því miður séð til nokkura slíkra barna sem hefði kanski verið hægt að hjálpa en því miður svo lítið ger,mér hreinlega frýs hugur um öll þau börn sem eru að berjast við það að hafa hugan í jafnvægi og ég veit fyrir víst af samtölum mínum við mörg börn að þau eru að reyna að koma huganum í jafnvægi og er þetta ein leiðin af mörgum sem börnin reyna.


Ætli það verði þá börnin næst

sem reyna að ræna verslanir eða eitthvað annað.Maður kemst ekki hjá því að velta vöngum yfir því hvað sé að gerast í þessu þjóðfélagi okkar,fyrst eru það sprautunála ræninginn eða ræningjarnir og nú kona og að því er virðist ein á ferð að ræna verslun.Það er eitthvað mikið að,það er nokkuð ljóst,ekki nema kreppan hafi verið farin að banka uppá hjá blessunini og hún að reyna bjarga sér svona....Nei seigji bara svona.
mbl.is Ránstilraun í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er alltaf eitthvað.

Í sambland við upp og niðurgang bættist við þetta líka rosalega kvef og hálsbólga og það besta við það er að ég er með svo mikið kvef í vinstra auga að nú er ég að verða búin að skæla í sólarhring en bara á því vinstra,mér finnst það bara fyndið,þetta er 4 dagur inniverunar og ef áfram heldur sem horfir þá er ég ekkert á leiðini út næstu daga heldur.

Any ways,ég ætlaði að koma með hina hliðina á skilnaðarbörnum í gær en heilsan leyfði það bara ekki,en þar sem ég er skást á morgnana þá ætla ég að prófa núna.

Þessi kona á semsagt 2 börn með 2 mönnum og að því kom að þau slitu samvistum hún og barnsfaðir nr 2,en þar horfðu málin allt öðru vísi við,allt föðurfólk þessa barns tóku öll virkan þátt í uppeldi barnsins og pabbin stóð sig eins og best verður á kosið og sömuleiðis amman og afinn,barnið fór alltaf aðra hverja helgi til pabba síns og foreldrar skiptu með sér fríium samviskusamlega og ekkert vesen þar.

Alla tíð hafa föðuramman og afinn haft reglulega samb við barnið öll árinn og alltaf hafa þau látið jafnt yfir öll barnabörnin sín ganga,barnið hefur aldrei þurft að finna til þess að það sé skilnaðarbarn af hálfu föðurfjölskyldunar og þannig á það nákvæmlega að vera,en þann dag í dag mörgum árum seinna og barnið að verða fullorðið er samb held ég eins og best verður á kosið og ekki hægt að biðja um meira,alla vega ekki hvað varðar föðurömmuna og afan.

Það sorglega við þessar 2 sögur sem ég seigji frá hér er það að börnin eiga ekki sömu pabbana sem varð til þess að eldra barnið fann fyrir höfnun frá sinni föðurfjölskyldu en það yngra var vafið ást og umhyggju frá sinni föðurfjölskyldu.

Ástæða þess að ég skrifa þetta hér er vegna greinar sem birtist í að mig minnir í 24stundum fyrir nokkrum dögum þar sem talað er um að barnið skilji við pabban,afan og ömmuna,en ég tel að það geti alveg eins verið á hin vegin eins og ég bendi á í fyrri sögu minni.

Mín skoðun er sú að þegar um skilnaðarbarn er að ræða er það í verkahring fullorðna fólksins að halda sambandinu gangandi meðan að barnið er barn,en þegar barnið er orðið 18 ára gamalt eða alla vega komin með það mikin þroska að það geti tekið við stjórninni sjálft og það heldur áfram að viðhalda sambandi við sitt föðurfólk.

Sjálf á ég 15 ára gamlan son eins og komið hefur fram áður og í dag læt ég hann um að mestu leyti að hafa samb við sitt fólk,auðvitað kemur það fyrir að ég þarf að minna hann á það að nú sé kanski komin tími til þess að hringja í sitt fólk eða hvort það sé nú ekki kominn tími á það að kíkja til pabba síns,en sem betur fer að þá í flestum tilfellum er hann þessi elska búin að vera hringja í sitt fólk úr sínum GSM og þarf örsjaldan áminningar við,þannig að hann er að sýna þann þroska sem að marga hverja vantar og er ég alveg óendanlega þakklát fyrir það hversu mikinn þroska hann getur sýnt og séð hversu mikils virði sitt föðurfólk er. 


Snilldarhugmynd

en það hefði verið enn skemmtilegra að fá að sjá myndir af þeim gömlu hehe.
mbl.is Nekt skilaði vegabótum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En af hverju

gengur konan hans ekki með barnið úr því að hann er giftur,mér finnst svona einhvern veginn að að baki þessu liggi meiri köllun eftir umfjöllun en barninu sjálfu,en ég veit svosem ekkert um það,það gæti svosem vel verið að hún geti ekki eignast barn,það hefði þá mátt fylgja söguni eða hvað....
mbl.is Þungaður karlmaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Örlítið skárri í dag en í gær.

sem betur fer.

Ég hef hins vegar verið að kíkja á mína bloggvini og sé hjá fleirum en einum þar sem skrifað er um skilnaðarbörn og ég kemst bara ekki hjá því að seigja mitt álit á því.

Reyndar er um að ræða 2 sögur af 2 börnum sem sama konan á,þanig var að þegar hún skilur við barnsfaðir sinn af eldra barninu þá var ágætis samb við allt hans fólk alveg fram til þess dags þegar hann dó árið 1995 en þá var eins og barnið hefði dáið líka

Af einhverjum undarlegum ástæðum ákvað þetta fólk að grafa barnið með föður sínum og allt samb datt uppfyrir,konan margreyndi að ná sambandi við föðurömmuna en ekkert gekk,það meira að seigja gekk svo langt að eitt sinn þegar þær mæðgur komu þangað og bönkuðum uppá enn enginn svaraði,þá seigjir barnið....en mamma það er einhver á bakvið gardínurnar og var það alveg rétt hjá barninu það var einhver sem fylgdist með þeim,en alla vega þarna þá fékk móðirinn nóg og ákvað að leggja ekki meiri harm á barnið og taldi réttast að bíða eftir því að föðurfólkið hefði samb að fyrra bragði.

Þannig gekk þetta í nokkur ár,ekkert samb svo heitið getur,barnið fékk af og til að heyra það frá frænku sinni að þess biðu gjafir heima hjá ömmu,það myndi fá þær þegar það  kæmi næst í heimsókn en aldrei var barninu boðið í heimsókn og enn þann dag í dag hefur barnið ekki fengið þessar svokölluðu gjafir afhentar,þessa eina frænka sá sér fært að hringja af og til í barnið og ævinlega á afmælisdögum og alltaf fékk barnið að heyra það sama,þú færð afmælisgjöfina um mánaðarmótinn elskan,lengi vel velti barnið því fyrir sér hvað mánaðarmót væri verið að ræða því að þau liðu ansi mörg og aldrei kom neitt.

Jæja svo kemur að því að barnið á að fermast og mamman ákvað að láta í minni pokan og bjóða allri föðurfjölskylduni í ferminguna sem hún og gerir og viti menn það mætti ekki kjaftur,2 voru löglega afsakaðir og var það tekið gott og gilt en aðrir sáu sér ekki svo mikið sem fært að senda barninu skeyti hvað þá annað og er hér verið að tala um ömmuna sem hvorki hringdi né heldur sendi svo mikið sem eitt skeyti til barnsins,ég tek það reyndar fram að einn föðurbróðir sendi barninu gjöf og er það þakkarvert.

Í veisluni sá mamman hversu barninu sárnaði þessi framkoma og að sjálfsögðu blæddi mömmu hjartað með henni en jafnframt gaus uppí mömmuni þvílíka reiðinn að hún sá rautt,þannig að af veislu lokini tók mamman sig til og hringdi í barnsins föðurfólk og jós úr skálum reiðar sinnar í eitt skipti fyrir öll,þegar kom að símtali við föðurömmuna eftir mikla leit að símanúmeri hennar þá voru fyrstu orð mömmunar á þessa leið......Já góða kvöldið er það Xxxxxx xxxxxxxxxx og á línuni er svarað já það er hún þá kynnir mamman sig og seigjir .......Komdu sæl þetta er xxxxx mamma xxxxxxx xxxxxxxxxx,lengra komst mamman ekki því það var skellt á og siðan hefur mamman ekki talað við þessa konu og barnið hefur kanski talað við hana 5 til 10 sinnum síðan.

Barnið og mamman hafa oft á tíðum rætt þessi mál og mamman ævinlega gert barninu það ljóst að þetta sé ekki barninu að kenna heldur sé það að eitthvað sé að hjá ömmuni sem veldur þessu og það sé amman sem eigi erfitt en ekki að það sé eitthvað að hjá barninu.

Engu að síður líða árin og árið 2003 fær barnið loksins jólakort frá ömmuni og í því eru skilaboð þess efnis að nú loksins geti þau farið að hafa samb sín á milli því nú sé mamman ekki fyrir til þess að stoppa það,en sem betur fer fyrir mömmuna þá var barnið orðið svo þroskað að það sendi ömmu sinni línu á móti í jólakorti og í því stóð nokkurn vegin á þennan veg.......

Elsku amma gleðileg jól og farsælt komandi ár,eitt vill ég láta þig samt vita elsku amma mín að mamma mín hefur aldrei staðið í vegi fyrir okkar samb það hefur þú séð ein um.

Ástarkveðja xxxxxxx.

það var mikið rétt, aldrei hafði mamman staðið í vegi fyrir samb þeirra á milli en amman vildi hins vegar kenna mömmuni um vegna þess að hún gat ekki horfst í augu við það að þetta voru hennar gjörðir og engrar annara.

Staðan er svo þannig í dag að barnið er orðið fullorðið og er sjálft orðið foreldri og hefur margreynt að hafa samb við ömmu sína en allt kemur fyrir ekki,gamla konan hagar sér á nákvæmlega sama hátt og hún gerði fyrir 13 árum síðan.

Boðskapur sögunar er eiginlega sá að í þessu tilfelli skildi amman við barnið eða öllu heldur jarðaði það með föður þess.

Þetta barn er í dag reglumanneskja og hefur aldrei lent í óreglu hörkuduglegur einstaklingur og fallegur bæði að utan sem innan.

Seinni sagan kemur í dag þar sem þessi varð svo löngWink.


Ennþá að drepast

en get samt ekki sofið meir,er búin að liggja fyrir meira og minna í allan dag og ekkert getað borðað,þetta er ljóta helv ógeðið óska ekki einu sinni versta óvini mínum að fá þetta,Var svo rugluð í síðasta bloggi að ég gleymdi að nefna það að kútur er líka kominn með niðurgang en sem betur fer hefur hann ekkert ælt og ég vona að hann sleppi við það.

 


Allt er þegar þrennt er

og fullkomið í frjóða.

Ég fékk 3 slæmar fréttir í gær og svo milli 17 og 18 þá var eins og ég hefði verið sleginn niður með hamri og fékk líka þessa ÓGEÐSPEST og búin að vera með upp og niðurgang síðan og 39 stiga hita og er það kraftaverk að ég skuli getað setið hér og pikkað,en þetta verður líka stutt færsla.

lov u all. 


Ég held

að við hin sem keyrum um á fólksbílum ættum að gera slíkt hið sama og efna til mótmæla um allt land,þetta er komið gott finnst mér,við erum svo gjörn að kvarta hvert í sínu horni en svo er engin samstaða þegar í harðbakkan slær.
mbl.is Bílstjórar hætta aðgerðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessir menn

eiga heiður skilið og mættu margir aðrir taka þá sér til fyrirmyndar.
mbl.is Máluðu yfir veggjakrot í miðborginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er svona einn

af þessum dögum þar sem allt byrjar á aftur fótunum.

þegar ég vaknaði í morgun beið mín mail frá leigsölum þess efnis að mér væri sagt um leiguni með 3ja mánaða fyrirvara og tæki uppsögninn gildi 1 Apríl.Það sem er fúlast við þetta er að ég fékk þetta hús til leigu tímabundið í 3 ár og nú verður þetta bara rétt árið og aftur þarf maður að byrja að leita sér að húsnæði FÚLT.

Ég reyndar er búin að tala við lögfróða menn um þetta og samkvæmt þeim á ekki að vera hægt að seigja mér upp þar sem leigusamningur er tímabundinn og engin sérákvæði voru sett inn á upphafi samnings og hann þinglýstur og ég alltaf staðið í skilum með leigu uppá dag og ekki hef ég rústað húsinu né nokkurn tíman haldið partý eða neitt í þá veruna,en ég bara ómögulega get farið að standa í stríði útaf einhverju húsi,ég hef bara hreinlega ekki andlegt þrek í að fara að standa í stríði við eigendir þessa hús.

Svoleiðis að nú er mín bara með hnút í maga og liður hreint ekki vel.

Ástæða þess að ég valdi þetta hús á sínum tíma var einmitt vegna þess hér taldi ég okkur örugg í 3 ár og gæti vonandi að þeim árum liðið keypt mér mitt eigið,meira að seigja stóð okkur til boða annað hús til leigu á sínum tíma á 90.000 kr á mánuði en ég valdi þetta frekar þar sem hitt er á sölu en ekki þetta og valdi þar af leiðandi að borga hærri leigu líka.

Þetta er bara alveg ömurlegt hreint út sagt og mig langar til að öskra. 


Stína mín

Það eru komnar nýjar myndir eins og við töluðum um.Heart

Elsta dóttlan mín

svo lasinn í maganum þessi elska.

Þannig var að fyrir tæpum 23 árum þegar ég átti þessa elsku þá fæddist hún með gat á maga og garnir lágu úti og við tók 3 stórar aðgerðir til þess að laga hana og 3 og hálfur mánuður í sjúkrahúslegu og sökum meðgöngueitrunar hjá mér þá sýktust garnirnar hennar líka og taka þurfti alveg heilan helling af þeim,sem veldur því svo síðan í dag að hún er alveg að drepast í maganum greyjið mitt og mér finnst alveg ferlegt að geta ekki tekið þessa verki í burtu,en hún þarf bara að drífa sig til læknis og láta rannsaka þetta betur því mér finnst henni vera að versna með ári hverju.

Kútur var sko ekki á því að fara í skólan í morgun þannig að það endaði með því að ég lofaði honum óvæntu þegar hann mætti sem ég og gerði því úti stóð mamman og beið og fór með honum í 1 tíma,ég sagði reyndar við hann að ef hann yrði ekki glaður með þetta óvænta mætti hann vera heima á morgun og viti menn þegar hann kom heim áðan sagði minn...Mamma ég má vera heima á morgun og ég alveg nú af hverju.....Nú þú sagðir að ef ég yrði ekki glaður með þetta óvænta þá mætti ég vera heima....Úpps ég náttúrulega bjóst við því að hann yrði svo glaður að sjá mömmu sína að skólin á morgun yrði ekkert mál,þannig að ég spurði hann....Bíddu varstu þá ekkert glaður að sjá mig og svarið sem ég fékk var....Jújú bara ekki nógu glaður hehe,semsagt ekki nógu glaður til þess að vilja fara aftur í skólan á morgun,en sem betur fer náið ég að snúa honum aftur og í skólan fer hann. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Helga skjol
Helga skjol
Ég heiti Helga og er kona,móðir,amma ásamt því að vera fullt fullt annað

Note bene

JÚHÚ kíktu hingað

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband