Færsluflokkur: Bloggar
Sunnudagur, 20. júlí 2008
Skelltum okkur í dagsferð
til hrísey í gær, ég, títlan og Birtan hennar ömmu sinnar, ég fékk pabba hennar Birtu til þess að skipta um hlutverk við mig þannig að ég kæmist með títluni svo hún gæti tekið þátt í söngvakeppninni þar. Elskan stóð sig eins og hetja á sviðinu og söng lystavel, þetta árið vann hún ekki en það er líka allt í lagi og hún var sátt við sitt og ég líka.
Það var mjög gaman að koma þarna í gær en hins vegar var ekki mikið af fólki þarna utan við heimamenn, kannski hefur fólk eitthvað verið hrætt við veðurspána eins og hún læt út fyrr í vikunni og farið eitthvað annað, hver veit, það var alla vega fínt að vera þarna þennan dagspart og koma sér svo heim.
Í dag rennur upp sá dagur sem ég hef beðið eftir síðan á þriðjudag, því í dag kemur í ljós hvort uslinn verði metinn eða ekki hehe, ég hef nú svosem enga trú á öðru en að þeir aðilar sem málið varða verði ánægðir með okkar verk, en á morgun mun ég láta ykkur vita hvað þetta var sem gert var.
knús
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 18. júlí 2008
Jæja þá er bíllinn seldur
og gekk það fljótt og vel fyrir sig. Það er með mig eins og marga aðra að tími var kominn til að minnka aðeins greiðslubyrðina og fá sér minni bensínhák og merkilegt nokk að þá leið ekki langur tími frá því að ég setti hann á sölu að tilboð kom um skipti á bíl sem er nákvæmlega eins nema nýji minn er beinskiptur, dekkri blár og þremur árum eldri, en ég fékk toppverð fyrir minn plús það að ég gat stytt lánið um 2 ár og greiðslubyrðinn minnkaði um slatta góðan pening líka, ekki slæmt. Hvað þá á þessum síðustu og verstu tímum
Lengi vel var ég búin að velta vöngum yfir því að fara á Hríseyjarhátíðina þessa helgi en kútur minn tekur það bara alls ekki í mál og ég á voða erfitt með að draga hann eitthvað sem hann vill ekki fara, honum finnst nóg komið af ferðalögum í sumar. Annars er spáinn ekkert til þess að hrópa húrra fyrir þannig að það er kannski alveg eins gott að halda sig bara heima við, ég ætla nú samt að kíkja með tíltuna þarna á morgun og leyfa henni að taka þátt í söngvakeppnini þeirri sömu og hún vann í fyrra.
Annars er bara verið að bíða eftir því að uslinn sem gerður var í borginni verði uppgötvaður, en það mun gerast á Sunnudag og þá kemur í ljós hvort við verðum hausnum styttri eða viðkomandi ráði sér ekki af gleði, það gæti nefnilega farið á báða bóga miðað við það sem gekk á þarna syðra hehe. Enn allur þessi usli var gerður með góðum hug og engu öðru, svo er bara spurning hvort þessum usla verði tekið sem slíkum eða ekki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Miðvikudagur, 16. júlí 2008
Komin heim.
Eftir hvíldina í borginni sem síðan varð engin hvíld þvi við tókum okkur 3 saman og gerðum smá usla sem ekki má seigja frá fyrir enn á næsta mánudag því það á að koma á óvart. Annars var fínt að vera í borgini þennan tíma nema hvað að ég og kútur gátum engan vegin sofið í þessari íbúð sem við fengum að láni útaf hverju veit ég ekki það var bara títlan sem náði að sofa á sínu græna, þannig að í rauninni komum við þreyttari heim heldur en þegar við fórum af stað.
Við kíktum til Grindavíkur á laugardag til vina okkar þar sem okkur var boðið í grill og gistingu og þegar þangað var komið var húsmóðirnn á bænum ekki heima því hún var vant við látinn að vera viðstödd fæðingu fyrsta barnabarnsins þannig að henni var alveg fyrirgefið það og í heiminn kom líka þessi fallegi drengur sem var hvorki meira né minna en 18 merkur og 58 cm. En húsbandið hennar tók vel á móti okkur og var grillað hvorki meira né minna en 2 læri ofaní mannskapinn en eftir stóð eitt alveg ósnert læri en gott var það.
Annars er ég óskop löt að blogga þessa dagana, finnst ég hafa eitthvað lítið að seigja þó reyndar ég hafi alveg fullt að seigja frá, er bara ekki að nenna því.
knús
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Föstudagur, 11. júlí 2008
Þá er það borg óttans.
Já mín er sko mætt í borg óttans ásamt minni fjölskyldu og verð hér í einhverja daga, það gerðist frekar óvænt að tekinn var stefnan hingað suður en þar sem okkur stóð til boða fríkeypis (eins og þeir hjá vodafone seigja)íbúð þá ákváðum við að slá til og skella okkur hingað.
Kútur var nú ekki alveg sáttur við þetta ferðalag finnst vera komið nóg af því í bili en fyrir rest þá hafðist það að tala hann til með góðu, reyndar á þeim forsendum að hálft herbergið hans væri með í för og þar sem ég er nú ekki á beint stórum bíl og með 2 hunda líka þá mátti gjöra svo vel að tengja kerru í bílinn fyrir farangurinn því það var ekki nokkur leið að koma þessu í skottið þegar risastórt hundabúr var komið þar.
Birtan hennar ömmu sinnar var líka með í för því hún var að fara heimsækja fósturömmu sína í nokkra daga og það alein, en það er líka í góðu lagi þar sem hún þekkir hana mjög vel líka, annars lét þessi amma eins og hún væri að kveðja sitt eigið barn þegar hún var sótt að hafði fósturamman orð á því við mig og lofaði að passa hana rosa vel hehe, sem ég veit að hún gerir því þetta er yndisleg kona, þessi kona var semsagt gift pabba elstu dóttir minnar áður en hann dó en hún hefur alltaf tekið dóttir minni sem sinni eiginn og hennar núverandi maður líka, þau eru bara æðisleg bæði tvo.
Títlan mín var vel sátt við þetta ferðaleg því hún elskar að vera á fullu allan daginn og þar sem hún hitti frænku sína strax við komuna hingað þá hefur varla þurft að hafa fyrir henni.
Gaurinn minn varð eftir hjá pabba sínum þar sem hann er að vinna fyrir hann og hefur verið að gera það síðustu 3 vikur núna og gengur bara glimrandi vel eftir því sem ég kemst næst, ég spjallaði aðeins við pabban um síðustu helgi og gaurinn er bara hörkuduglegur hjá honum sem ég reyndar vissi að hann væri, það vantaði bara að fleiri hefðu trú á honum heldur en ég og ég vona svo sannarlega að svo sé í dag, ég veit að þessi elska er alveg hörkuduglegur ef hann vill vera það og ég held að hann hafi sýnt pabba sínum það hvers megnugur hann er. Enn nr 1, 2 og 3 er að hann er sáttur við að vera þarna þannig að ég held að lífið sé eins og best verður á kosið fyrir þessa elsku.
Mín skoðun er sú að ef að börnum er hrósað fyrir það sem vel er gert að þá tíeflast þau og vilja sanna sig ennþá meira og ég held einmitt að það sé málið með þessa elsku að hann er sko sannarlega að sýna það hvað í honum býr, mér fannst svo æðislegt í gær þegar ég heyrði í honum og spurði hvort það væri brjálað að gera hjá honum þá var svarið já ég og pabbi erum að gera við eina vél hérna og bara það að þessi elska hafi verið að gera við vél með pabba sínum seigjir mér hversu mikið hann sé tilbúin að leggja á sig og þetta er einmitt eitt af því.
Það er svo stutt síðan að mér leið eins og ég væri að keyra hann í einangrunarvist á hrauninu þegar ég skutlaði honum í sveitina, elskan gaf sér alveg extra langan tíma til þess að bera inn dótið sitt og kveðja mömmu sína en það leið ekki dagur áður enn að minn var orðinn sáttur við sína vinnu.
Ég held satt að seigja að málið með hann hafi verið að það væri ekki kúl að vinna í sveit, hvað skildu vinirinir seigja, en þar sem hann hefur alltaf elskaði að vera hjá pabba sínum og umgangast dýrinn hér áður fyrr þá var ég nokkuð vissum að hér væri verið að taka rétta ákvörðun þegar hann fékk já frá pabba sínum við því að taka hann í vinnu. Ég vona svo af öllu hjarta að þeir feðgar nái að mynda þau tengsl sem horfinn voru og að þeir verði sáttir hvor við annan.
Jæja elskurnar nær og fjær ég mun reyna að blogga eitthvað meir á þessu ferðalagi mínu en þangað til.
ADIOS.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Þriðjudagur, 8. júlí 2008
Nei Anna mín ég slapp við það að detta í ánna.
Hehe bara búið að vera mikið að gera síðan að heim var komið á Sunnudag, hér eru ennþá gestir með börn og í nógu að snúast, hvað þá þegar þetta eru 3 ársgamlar títlur sem finnst gaman að skoða allt sem nýtt er.
Annars var helginn alveg frábær og allir skemmtu sér vel í Vaglaskógi, veðrið var yndislegt nánast allan tíman og ég er ekki frá því að maður hafi tekið meiri lit þarna á 2 dögum heldur en á Mallorca í 2 vikur, enda sat maður úti frá morgni til kvölds. Það var gjörsamlega stappað af fólki þarna en sem betur fer var nánast ekkert um fylleri eða læti, alla vega varð ég ekki var við neitt sem raskaði ró minni þarna. Krakkarnir léku flest við hvern sinn fingur og alltaf var nóg að gera hjá þeim, kútur var sá eini sem ekki var alveg sáttur við þessa útilegu og vildi fara heim á hverjum degi, annars kynntist hann 2 bræðurum sem að hafa sömu áhugamál og hann, þannig að þeim varð vel til vina og gátu dundað sér vel og lengi með yu gi oh spil og var það alveg meiriháttar að horfa uppá þá 3 leika sér saman. Yfirleitt er það nefnilega þannig að hann fellur ekki í hópinn neins staðar þannig að úr verður að þessi elska er í flestum tilfellum einn með okkur fullorðna fólkinu, eða þá að hann ráfar eitthvert í burtu í leit að félagsskap og nánast undantekingarlaust endar það í einhverjum krísum og ofast nær vegna þess að honum er strítt útaf útiliti sínu.
Það er svo skelfilegt hvað börn geta verið miskunnarlaus við þá sem eitthvað eru öðruvísi í útiliti, reyndar ekki bara börn því oft sér maður fullorðið fólk sem gjörsamlega ætlar að missa útúr sér augun þegar það sér hann, síðast í gærkvöldi vorum við vitni af því á greifanum að við borð nálægt okkur sat kona nokkur og hún reyndi ekki einu sinni að fela það þegar hún starði úr sér augun á kút, það var ekki fyrren búið var að stara á hana á móti í þónokkra stund og einn við borðið seigjir það mætti halda að þessi kona hafi aldrei séð börn sem eru öðruvísi en önnur börn sem hún vaknaði til lífsins og varð skömmustuleg, því ekki fór á milli mála að hún heyrði það sem sagt var og skildi að sneiðinni var beint til hennar.
Oft get ég alveg ímyndað mér hvað fólk hugsar þegar það sér hann að þetta sé nú alfarið mataræðinu að kenna og ég sem foreldri sé ekkert að hugsa um hvað hann borðar en því miður er það ekki svo, því ef svo væri þá ættu hin 3 börnin mín að vera svona líka þar sem þau öll hafa verið á sama mataræðinu og eru hin 3 eins og tannstönglar, það hefur nánast allt verið reynt til þess að láta hann léttast en ílla hefur gengið í þeim efnum, að vísu má samt seigja að hann hafi lést þar sem hann hefur lengst gríðarlega mikið síðasta árið en ekkert þyngst með því heldur bara staðið í stað sem er gott mál.
Eigið góðan dag elskurnar og knús á ykkur öll
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Miðvikudagur, 2. júlí 2008
Títlan að koma heim
og mikið hef ég saknað hennar þessa daga, það er búið að vera alveg hrikalega tómlegt síðustu daga þegar að 2 börn vantar á heimilið, meira að seigja kútur saknar systur sinnar mjög mikið og er bara ekkert sáttur við það að hún sé svona lengi í burtu.
Annars er húsið að fyllast hér eftir örskamma stund því Aníta systir og hennar fjölskylda er að mæta í bæinn eftir smástund og í þessari fjölskyldu teljast hvorki meira né minna en 6 börn en inní því eru þríburadúllur rúmlega ársgamlar þannig að það verður mikið fjör hér á eftir, reyndar kemur ekki elsta dóttirinn með þar sem hún er á götusmiðjuni en hin 5 eru öll með í för, þannig að hér í kvöld verða hvorki fleiri né færri enn 7 stykki af börnum og 4 fullorðnir, plús allir gestirnir sem vilja sjá þríbura dúllurnar mikið gaman og mikið fjör.
Svo er stefnan tekinn á Vaglaskóg á morgun með öllu fólkinu og ég er alveg vissum að það verður mjög gaman sérstaklega ef að veðurspáinn stenst sem ég trúi að hún geri.
Knús á ykkur inní helgina ef ég skildi ekki sjást hér meir fyrren eftir helgi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Mánudagur, 30. júní 2008
Þreytt þreytt þreytt
Ég get svarið það að ég er orðinn of gömul til þess að vera úti langt frammá nótt og skemmta mér, skelltum okkur á innbæingamótið á laugardag en þar var fámennt en góðmennt, stoppuðum nú ekki lengi þar sem manni varð skítkalt þrátt fyrir að hafa dregið fram lopapeysu, flísbuxur, húfu vettlinga og kuldaskó þá bara dugði það engan veginn til, þannig að um 10 leytið var bara drifið sig heim og í ballgallan og skellt sér á Vélsmiðjuna og ekki var mikið um fólk þar heldur, hitti reyndar fyrir gamla vinkonu mína sem ég hef ekki séð í áraraðir og það var mjög gaman að spjalla við hana en um 2 var svo haldið heim þreytt eftir kvöldið enda mín ekki vön að vaka til kl alveg að verða 3 svei mér þá.
Verst er það að það er sama hversu seint ég fer að sofa ég vakna alltaf jafnsnemma fyrir því, gærdagurinn fór svo bara í það að slappa af með Birtu ömmustelpu og kút en í fyrsta skipti á ævinni svaf hann hjá vini sínum og gekk það líka svona ljómandi vel og kom minn heim sæll og glaður eftir þá heimsókn, bara frábært, í mínum huga er þetta svona ákveðið þroskamerki hjá honum að hafa þorað að gista annars staðar.
Annars er svo skrýtið með það að í hvert sinn sem mér finnst eitthvað ganga vel hjá honum þá ævinlega þarf hann að taka uppá einhverju miður skemmtilegu (alla vega fyrir mömmuna). Þannig var að í morgun taldi hann sig þurfa setja eitthvað í hárið á sér þar sem hann var nú í klippingu á föstudag og útkoman af því varð blanda af tannkremi, sápu, froðu og kremi til þess að lina verki í fótum, útaf baðinu kom minn sem sagt alsæll fram og sýndi mér einhvern blágrænan lit í hárinu á sér og tilkynnti mér það að hann væri búin að finna upp nýtt hárefni svo nú yrði það alveg stíft, því miður gat mamman nú ekki stillt sig um að hlægja þegar hún sá hvað hefði farið í hárið á mínum og þegar hlátukviðunum lauk þá benti ég honum á það að betra væri nú að nota bara venjulega froðu í hárið ef hann vildi vera töffari, en minn hélt nú ekki og tilkynnti mér það að hún væri bara alls ekki nógu góð fyrir hans hár, hahaha.
Minn var sko alls ekki sáttur þegar tilraun var gerð til þess að þvo þetta jukk úr hárinu á honum en eftir mikla mæðu þá hafðist það loks.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Laugardagur, 28. júní 2008
Frábært hjá Möggu
Ég held að þetta eigi eftir að ganga fínt þessa helgi, ég vill alla vega trúa því að svo geti orðið, verð reyndar að viðurkenna það að þessa einu verslunarmannahelgi sem ég hef búið hérna á síðastliðnum 8 árum þá fann ég lítið sem ekkert fyrir því að sú helgi væri eitthvað öðruvísi en allar hinar, kannski vegna þess að ég bý það langt frá miðbænum og hélt mig mest megnis utan við hann þessa helgi.
En ég seigji bara eins og Magga að það er óskandi að fólkið hafi mannasiðabókina meðferðis.
![]() |
Öðru vísi stemning |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Föstudagur, 27. júní 2008
Flöskudagsblogg...Úpps meina föstudagsblogg
það er eiginlega búið að vera brjálað að gera hjá mér síðustu 2 daga en samt finnst mér ég engu koma í verk,nýji þurrkarinn minn er bilaður og er ég ekki sátt við það að hafa kannski keypt einn af þessum mánudagsheimilstækjum, enn alla vega er hann kominn í viðgerð og þrátt fyrir að nota hann ekki mikið þá er samt fúlt að hann skuli bila strax.
eins og venja er á föstudögum þegar veðrið er skítsæmilegt þá fæ ég í mig útilegu fíllinginn og langar eitthvað í burtu en þar sem spáinn er vægast sagt ömurleg þá verður bara setið heima, enda verður Birtan hjá ömmu sinni á morgun og sunnudag þar sem mamman er að vinna alla helgina fyrir einhvern annan, nú svo er innbæingamót annað kvöld og ef veðrið helst svona skítsæmilegt þá kannski að maður skelli sér á innbæingamó, annars er líka oddeyrarmót á morgun og þar sem ég bjó þar nú í ein 20 ár að þá er kannski spurning um að skella sér þanngað líka.
Til stendur að títlan skelli sér á skagan í kvöld og verði frammí næstu viku og kútur ætlar að gista hjá vini sínum þannig að í fyrsta skipti í langan tíma verð ég barnlaus, vá hvað það verður skrýtið.
Það er búið að vera mikið hundafans hérna síðustu 2 daga, Jenny að sættast við Yrju, þær sváfu 2 saman í búri í nótt og það gekk ljómandi vel, þannig að framvegis verður það þannig.
Eftir því sem mér skilst þá gengur gaurnum mínum vel í sveitinni og er bara sáttur við sína vinnu sem er bara frabært og ég vona bara að þannig verði það í allt sumar.
knús á ykkur öll sem eitt og megi helginn verða ykkur sem allra best.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Miðvikudagur, 25. júní 2008
mikið er erfitt að seigja nei stundum
gaurinn minn hefur verið í mjög góðu sambandi við þann hundaræktanda sem hann keypti tíkinni okkar af, fengið að vera hjá þeim þegar hann hefur farið suður með hana á sýningar og er það bara hið besta mál, nú er hins vegar kominn upp sú staða að þau þurfa pössun fyrir eitthvað af sínum hundum þar sem aðstæður hafa breyst en bara í sumar þannig að gaurinn bauð fram hjálp sína sem er líka allt í lagi, það gerði hann eftir að vera búin að tala við mig, en svo breyttust hans aðstæður líka og hann fór að vinna hjá pabba sínum í sveitinni í sumar sem er alveg frábært, en ég gat ekki hugsað mér að láta hann svíkja sitt loforð þannig að með kvöldinu fáum við gest sem heitir yrja og verður hjá okkur í einhvern x óákveðinn tíma.
Hún er reyndar að koma til okkar í annað sinn núna þannig að ég veit alveg hvernig tík þetta er og hún er æðisleg,svo blíð og góð og lét strax eins og hún hefði búið hér alla sína tíð, þannig að það verður ábyggilega bara gaman að hafa hana, Jenny veitir heldur ekkert af því að fá félagsskapinn því að hún hegðar sér eins og drotting í ríki sínum og vill öllu ráða, þannig að nú verður hún kannski að læra að lúffa aðeins fyrir öðrum hundum, hehe.
Gaurinn minn tók semsagt þá ákvörðun í samráði við okkur foreldra sína að fara að vinna hjá pabba sínum í sveitinni í sumar þegar ljóst varð að hann fengi enga almennilega vinnu hérna í bænum og sem betur fer er hann einn af þeim sem nennir að vinna, þannig að úr varð að pabbi hans og hans kona ákváðu að gefa honum séns og ég vona bara að hann tolli hjá þeim í allt sumar því að félagsskapurinn sem hann var farinn að sækja í var ekki mikið til þess að hrópa húrra fyrir, svo þessi dvöl hans hjá þeim verður vonandi til þess að hann sjái hlutina í því ljósi sem þeir eru og líka það að þeir feðgar nái að mynda einhver tengsl sín á milli, því að því miður hefur ekki verið svo mikið um þau undanfarið ár eða svo og það þykir mér afskaplega leitt, nú er ég ekki að seigja að það sé gaur að kenna né pabbanum, ætli málið sé ekki bara það að lífsviðhorf þeirra feðga sé svo ólíkt og þar af leiðandi hefur þeim ekki samið eins og ég hefði óskað.
En nú vonandi stefnir þetta allt til betri vegar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
anitabjork
-
fanneyunnur
-
villinor
-
unns
-
jyderupdrottningin
-
dora61
-
mammann
-
helgamagg
-
heidihelga
-
tigercopper
-
ernafr
-
annambragadottir
-
daudansalvara
-
ringarinn
-
jodua
-
jonaa
-
ingabaldurs
-
skrifa
-
tofraljos
-
katlaa
-
katja
-
hugs
-
lady
-
skelfingmodur
-
mammzan
-
ylfamist
-
huldumenn
-
skessa
-
tungirtankar
-
hallarut
-
gurrihar
-
nanna
-
helgadora
-
godinn
-
skordalsbrynja
-
thelmaasdisar
-
rannveigmst
-
ipanama
-
benna
-
ragnarfreyr
-
almaogfreyja
-
jensgud
-
stebbifr
-
berglindnanna
-
dofri
-
olinathorv
-
jahernamig
-
gerlas
-
steinunnolina
-
eddabjo
-
ellasprella
-
sirrycoach
-
bryndisfridgeirs
-
smjattpatti
-
asdisran
-
bifrastarblondinan
-
svanurg
-
stina-sig
-
brandarar
-
ragnhildur
-
leoros
-
saedishaf
-
solskinsdrengurinn
-
dagny65
-
topplistinn
-
holmfridurge
bloggvinir
- Bói mágur...snilldarbloggari
-
þóranna dóttir mín
heimur þórönnu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
197 dagar til jóla
Nýjustu færslurnar
- Sami vandi, þitt er þannig, ljóð frá 23. október 2018.
- Bréfið
- AA samtökin 90 ára
- Trump ákveður að senda, Landgönguliða - til Los-Angeles! Kemur í kjölfar ákvörðunar sl. sunnudag, að senda hermenn úr Þjóðvarðarliði Bandar. til sömu borgar. Trump greinilega ætlar að tékka á, hversu langt hann kemst áður en dómstólar stoppa hann!
- Hvers vegna galið að bólusetja gegn flensu og RSV - Halda ekki vatni!