Leita í fréttum mbl.is

Jæja þá er þessari páskahelgi að ljúka

og heyrist manni á fréttum að ansi mikið hafi gengið á í borg óttans.

Helginn hefur verið býsna góð hérna heima við mikið sukkað í matarveislum og kaffiboðum enda verður tekið vel á því í ræktini og mataræðinu og það strax á morgun.

Gaurinn hafði það af að brjóta all verulega af sér um þessa helgi eða allverulega í mínum augum og þarf hann að sæta straffi í samræmi við það og er það í fyrsta skipti á mínum uppeldisferli sem ég beitti hann eða eitthvert af mínum börnum svo langri refsingu,en málið er það að drengstaulinn braut útivistartíman og mamman varð aldeilis ekki hrifinn,en þar sem hann vissi að mamman myndi ekki leyfa honum að vera svona lengi úti þá ákvað hann að fara á bakvið mömmu sína og gera það samt,þannig að nú fær minn maður ekki að fara útfyrir húsins dyr í dágóðan tíma eftir kvöldmat.

Títlan mín er búin að eiga heima í sundlaug Akureyrar þessa daga og ekki hefur henni þótt það leiðinlegt enda er hún sportisti dauðans(hvaðan ætli hún hafi það Blush).

kúturinn er kominn í kvíðakast yfir því að þurfa fara í skólan á miðvikudag og frá því í gær er minn búin að vera veikur að eigin sögn,en svona er þetta bara alltaf eftir frí hjá þessari elsku en svo um leið og hann er búin með fyrsta skóladaginn er hann orðinn fínn.

Rétt í þessu hringdi skypeið hjá mér og þar var á línuni einir bestu vinir okkar í danaveldi og það var frábært að heyra í þeim og gerum við alltof lítið af því að vera í bandi,en sjaldan er betra en ekkert,ekki satt. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ja við gerum allt of lítið af því að spjalla vinkona... en nú er þinn linkur kominn inn á heimasíðuna okkar.. svo ég verð með annað augað reglulega her inni .hehe

kveðja stina og stebbi.

Stina og Stebbi (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 17:37

2 Smámynd: Anna Guðný

Hvar býrðu í bænum Helga?

Anna Guðný , 24.3.2008 kl. 18:04

3 Smámynd: Helga skjol

Anna ég er í borgarsíðuni

Helga skjol, 24.3.2008 kl. 18:41

4 Smámynd: Heiður Helgadóttir

Um að gera að sukka svolítið um stóhátíðar

Heiður Helgadóttir, 24.3.2008 kl. 19:39

5 Smámynd: Anna Guðný

Ok, Ránargatan hér.

Anna Guðný , 24.3.2008 kl. 19:55

6 identicon

Dugleg ertu að standa með þér .Það er alltof algengt að foreldrar segja eitt og gera annað.Svo eru þau hissa á stjórnlausum börnum.Það er styrkur að geta staðið við neiið.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 21:33

7 Smámynd: Helga skjol

Birna ég get alveg sagt þér það að stundum er það erfiðara en ég veit ekki hvað,því að röflið í þessum börnum og suðið getur alveg gert mann vitlausan,en börnin verða að læra að hlýða reglum,ég hef einsett mér að hafa þær fáar en góðar og vill að börnin mín fari eftir þeim.Annars veit ég að þú veist þetta líka

Helga skjol, 24.3.2008 kl. 21:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helga skjol
Helga skjol
Ég heiti Helga og er kona,móðir,amma ásamt því að vera fullt fullt annað

Note bene

JÚHÚ kíktu hingað

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband