Leita í fréttum mbl.is

Var með kútinn hjá barnalæknir

sem jafnframt er sérfræðiningur í meltingafærum barna og ég seigji bara guð sé lof og dýrð þessari konu,hún gaf okkur allan þann tíma sem við þurftum og hún líka hlustaði á það sem ég hafði að seigja.Þessi yndislega kona sá ekkert eftir því að gefa okkur 45 mín af sínum tíma,tíma sem hún átti að vera farinn heim og allt vegna þess að ég leit svona hrikalega vitlaust á miðan og hélt við ættum að mæta kl 2 en nei þá var það kl 1 og hún ákvað samt að taka við okkur kl hálf 4 þrátt fyrir að hennar vinnutíma væri lokið.

Alla vega verður kútur lagður inn til rannsóknar og það verður allt rannsakað sem hægt er að rannsaka í þeim efnum og ég get sagt ykkur það að það vantaði ekki nema hársbreidd á því að ég færi bara að skæla,bara af þakklæti yfir því að þarna var einhver sem sá það strax að þarna væri tilfelli sem vert væri að skoða og það ekki mikið seinna en strax.

Eitt var svolítið skrýtið en það var hún var búin að vera að lesa sjúkrasöguna hans og seigjir mér það að blóðprufa hafi verið tekin að kút fyrir einum 7 árum síðan til þess að athuga prader willie syndrime og prufur hafi verið sendar til USA og ef ég skildi það rétt þá bara komu aldrei nein svör til baka,þannig að nú á að athuga það aftur.

Þetta var einn sá besti tími sem ég hef farið með kútinn minn til læknis á allri hans ævi og hef ég farið til þeirra margra. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábært.Vonandi verður árangur af öllu þessu og hann góður.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 14.4.2008 kl. 17:46

2 Smámynd: Anna Guðný

Var það Gróa?

Anna Guðný , 14.4.2008 kl. 17:51

3 Smámynd: Helga skjol

Jebb það er Gróa.

Helga skjol, 14.4.2008 kl. 18:03

4 Smámynd: Anna Guðný

Datt það í hug.Fór einmitt með mína litlu til hennar um daginn og fékk góða tilfinningu fyrir henni. Hún hringdi svo í mig með niðurstöður úr rannsóknunum fyrir helgi og hlustaði vel á það sem ég hafði að segja um málið. Líst vel á hana.

Anna Guðný , 14.4.2008 kl. 18:56

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Til hamingju með þetta Helga mín, skil vel tilfinningu þína með að vera nærri farin að gráta, nú verður allt tekið fyrir og er það yndislegt.
                           Knús kveðja til þín
                              Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.4.2008 kl. 19:23

6 Smámynd: Birna Dúadóttir

Flott

Birna Dúadóttir, 14.4.2008 kl. 20:30

7 Smámynd: Dísa Gunnlaugsdóttir

frábærar frettir ekki bara fyrir þig heldur aðalega fyrir hann þennan yndislega strák sem þú átt honum á eftir að líða svo vel ef eitthvað verður gert fyrir hann ég segji bara logsins til hamingju með það helga mín

Dísa Gunnlaugsdóttir, 14.4.2008 kl. 20:40

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mikið er þetta gott og fallegt.  Sumir eru einfaldlega englar í mannsmynd svei mér þá Helga mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.4.2008 kl. 21:56

9 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

þetta eru góðar fréttir,  vonandi finnur læknirinn hvað er að hrjá drenginn

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 14.4.2008 kl. 23:08

10 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Æi hvað það er gott að þú fórst til hennar, nú verður eitthvað almynnilegt gert fyrir hann elsku Helga mín

Stór koss til þin elsku systir

Kristín Gunnarsdóttir, 15.4.2008 kl. 06:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helga skjol
Helga skjol
Ég heiti Helga og er kona,móðir,amma ásamt því að vera fullt fullt annað

Note bene

JÚHÚ kíktu hingað

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband