Leita í fréttum mbl.is

Ótrúlegt.

Hvað hlýjar kveðjur frá ykkur elskurnar geta gert gott, bara það að fá þessar hlýju kveðjur er hreinlega að bjarga geðheilsu minni. Verst þykir mér samt að geta ekki blastað mínu vandamáli hérna inn, en það er bara þannig að þegar maður er með hálfgerða dagbók á opnum vef þá er ýmsir einstaklingar sem maður vill ekki að lesi líf manns ofan í kjölinn, enn svo sannarlega þyrfti ég að hitta á manneskju sem stendur í sömu sporum og ég, manneskju sem gæti kannski deilt með mér sínu þannig að ég fyndi að ég stæði ekki ein í þessu en það er akkúrat það sem mér finnst ég gera, þrátt fyrir að ég viti að svo sé ekki.

Annars átti ég yndislegt samtal við Stínu systir mína áðan og þar sem ég finn að ég get treyst henni þá sagði ég henni frá því sem gengur á hjá mér í dag og mikið ofsalega var það gott að getað talað við einhvern. ÞÚSUND ÞAKKIR ELSKU STÍNA MÍN FYRIR AÐ NENNA AÐ HLUSTA Á LITLU SYSTIR.HeartHeart

Þrátt fyrir að hún sé sem betur fer ekki í sömu sporum og ég í bókstaflegri merkingu þá var svo gott að einhver sem ég treysti nennti að hlusta og ég veit að hún fer ekki með þetta lengra.

ÉG ætla mér að eiga GÓÐAN DAG í DAG, er búin að taka ákvörðun um það og ekkert skal hagga þeirra ákvörðun minni, því það sem verður, verður bara og ekkert sem ég get gert í því.

 Í DAG VERÐ ÉG JÁKVÆÐ JÁKVÆÐ JÁKVÆÐ OG EKKERT MÚÐUR MEÐ ÞAÐ.

Knús á ykkur elskurnar mínar og megi dagurinn verða ykkur öllum yndislegurHeartHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þú ert bara yndisleg Helga mín og gott að þú gast talað við Stínu þína hún er nú betri en engin með alla sína lífsreynslu.
Ég hlakka til að hitta þig á laugardaginn.
Ljós og bjartsýni til þín
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.11.2008 kl. 11:51

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Elsku vina, eigðu ljúfan dag og ég sendi þér styrk og stuðning í huganum, vona að hlutirnir skáni smátt og smátt

Ásdís Sigurðardóttir, 18.11.2008 kl. 12:25

3 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Ég er altaf tilbúin að hlusta og það fer ekki lengra elsku systir. Vonandi rætist á einhvern hátt úr þessu

Kristín Gunnarsdóttir, 18.11.2008 kl. 13:11

4 Smámynd: Líney

Knús knús  knús í klessu Sendu mér skilaboð skvís ef ég get eitthvað hjálpað þér

Líney, 18.11.2008 kl. 13:29

5 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 14:32

6 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Gangi þér virkilega vel með það sem þú ert búin að ákveða að gera og hvað sem að er, þá vertu viss þú ert aldrei ein

Jónína Dúadóttir, 18.11.2008 kl. 16:38

7 Smámynd: Helga skjol

Æji þið eruð bara meiriháttar öll sömul og ég finn það alltaf betur betur hversu gott er að eiga ykkur að.

Knús í klessu á ykkur öll

Helga skjol, 18.11.2008 kl. 17:30

8 Smámynd: Birna Dúadóttir

Birna Dúadóttir, 18.11.2008 kl. 18:29

9 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Með þessu hugarfari kemstu yfir hvað sem er.

Helga Magnúsdóttir, 18.11.2008 kl. 21:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helga skjol
Helga skjol
Ég heiti Helga og er kona,móðir,amma ásamt því að vera fullt fullt annað

Note bene

JÚHÚ kíktu hingað

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband