Föstudagur, 6. febrúar 2009
Langþráð helgi að byrja.
Það er langt síðan mig hefur hlakkað svona mikið til helgarinar eins og núna, að þurfa ekki að vakna kl 6 í tvo morgna ohhhh bara æði, kannski vakna ég nú samt kl 6 en ég get þó leyft mér að kúra lengur þessa morgna, er orðin svo óendanlega þreytt eftir þessa síðustu vikur og þá sér í lagi þessa sem er að líða núna.
Kútur er gjörsamlega að keyra mig og sjálfan sig í algjöran baklás með svefninn og ég er alveg að verða búin á því að vakna upp mörgum sinnum á hverri nóttu, en sem betur fer á ég símatíma hjá doksanum hans á mánudag og vona það af öllu hjarta að kútur verði settur á eitthv aftur til þess að sofa, nú er hann búin að vera svefnlyfjalaus hátt á þriðja mánuð þannig að það hlýtur að sýna sig nú að án lyfjana getur hann ekki verið.
Ég tel mig hafa verið alveg óendanlega duglega að halda þetta út svona lengi en nú er komið nóg, ég finn það að meira get ég bara ekki og hvað þá hann. Að sjálfsögðu hafa fylgt þessu kostir líka, það má ekki gleyma því, hann td hætti þessu veseni með að þurfa borða á frekar seint á kvöldin og eins varð hann opnari félagslega en reyndar líka svolítið agressívari, á orðið meira til með að pota og stríða öðrum og áráttuhegðuninn hefur snarversnað finnst mér.
Þessa dagana snýst allt um það að passa uppá að Jenny stingi ekki af út í hvert sinn sem hurð er opnuð, þá rýkur minn upp og stendur nánast á gólinu þangað til að hurð lokast aftur úfff.
Allt í einu tók svo hann uppá því að blóta eins og alversti sjóari og tvinnar stundum saman þvílíkum blótsyrðum að meira seigja ég roðna og kalla ég nú ekki allt ömmu mína.
Æji ég er bara rosalega þreytt eitthv í dag og vildi óska að ég gæti sofið í svona eins og 2 til 3 mánuði og endurnýjast þannig.
Heyrðu já svo er maður farinn á hanga á facebook og er bara virkilega gaman af því, er að detta um fólk sem ég hef ekki hitt í áravís og bara ferlega gaman að rifja upp gömul kynni við gamla vini, bara snilld þessi vefur.
ADIOS ELSKURNAR MÍNAR
Færsluflokkar
Bloggvinir
- anitabjork
- fanneyunnur
- villinor
- unns
- jyderupdrottningin
- dora61
- mammann
- helgamagg
- heidihelga
- tigercopper
- ernafr
- annambragadottir
- daudansalvara
- ringarinn
- jodua
- jonaa
- ingabaldurs
- skrifa
- tofraljos
- katlaa
- katja
- hugs
- lady
- skelfingmodur
- mammzan
- ylfamist
- huldumenn
- skessa
- tungirtankar
- hallarut
- gurrihar
- nanna
- helgadora
- godinn
- skordalsbrynja
- thelmaasdisar
- rannveigmst
- ipanama
- benna
- ragnarfreyr
- almaogfreyja
- jensgud
- stebbifr
- berglindnanna
- dofri
- olinathorv
- jahernamig
- gerlas
- steinunnolina
- eddabjo
- ellasprella
- sirrycoach
- bryndisfridgeirs
- smjattpatti
- asdisran
- bifrastarblondinan
- svanurg
- stina-sig
- brandarar
- ragnhildur
- leoros
- saedishaf
- solskinsdrengurinn
- dagny65
- topplistinn
- holmfridurge
bloggvinir
- Bói mágur...snilldarbloggari
-
þóranna dóttir mín
heimur þórönnu
Athugasemdir
Þú ert dugleg
Jónína Dúadóttir, 6.2.2009 kl. 08:44
Heiður Helgadóttir, 6.2.2009 kl. 11:06
Góða helgi mín kæra
Auður Proppé, 6.2.2009 kl. 12:32
Ég er líka komin í samband við gamla félaga,félaga sem ég hef ekki séð eða heyrt í í 25 ár.Góða helgi
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 12:51
Ég er líka komin á feisið Ásdís Sig og Bjarni Ómar er nafnið mitt.
Ásdís Sigurðardóttir, 6.2.2009 kl. 13:59
Reyndu að eiga góða helgi Helga mín
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 6.2.2009 kl. 15:06
Elsku sys, villi litli verður að komast aftur á svefnlyfin, það er heldur ekki hægt að bjóða þér uppá þetta. Knus til þín elsku sys
Kristín Gunnarsdóttir, 6.2.2009 kl. 15:51
Hæ elsku Helga mín.
Mikið er gaman að sjá blogg frá þér. Já helgin er að koma og hún er svo sannarlega langþráð. Það má með sanni segja.
Hafðu það sem best Helga mín og endilega ekki hætta að blogga.
Með bestu kveðju.
Valgeir.
Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 16:26
Nei Valli minn ætli ég hætti nú að blogga, held ekki, mér þykir alltof vænt um ykkur til þess
Helga skjol, 6.2.2009 kl. 20:09
Æi ekki gott,njóttu helgarinnar og reyndu að hvílast
Hafðu það sem best mín kæra
Anna Margrét Bragadóttir, 7.2.2009 kl. 00:36
Góða Helgi elsku Helga mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 7.2.2009 kl. 22:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.