Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Djísús hvað maður er duglegur stundum

Allir sem vettlíngi geta valdið skelltu sér uppá háloftið um 8 leytið og byrjað var að tína allt niður af því og niður á holið sem við vorum búin að tæma áður,á holinu var svo byrjað að opna alla kassa og úr þeim var hent og hent dóti sem við komum aldrei til með að sakna eða nota framar og við þetta fylltust slatta margir svartir ruslapokar og um leið tæmdust einir 10 stórir pappakassar,sem nú er svo hægt að byrja að fylla afturWink.

Þrátt fyrir að hafa bara búið hér í tæpt ár þá er alveg ótrúlegt hvað maður er fljótur að safna að sér dótinu sem maður heldur að maður geti nú einhvern tíman haft not fyrir,en málið er bara það að þetta gleymist og þá er keypt nýtt í staðinn,þannig er það bara (alla vega á mínu heimili ).

Ég reyndar viðurkenni það að ég á meira af jólaskrauti heldur en geymsludóti og því miður tími ég ekki að láta það frá,það er bara þannig um hver jól að þá þarf ég alltaf að bæta aðeins í safnið en það má alls engu henda af því gamla,enda er elsta jólaskrautið mitt komið vel til ára sinna alveg frá mínum fyrstu búskaparárum og sumt ennþá eldra sem mamma var kanski að lauma að mér,eitthvað sem hún átti fyrir.

Það er nú samt alveg á hreinu að það á eftir að henda eða gefa miklu meira en þetta,því að í nýja húsnæðinu sem við fengum er ekki svona gott geymslupláss eins og hérna og þar verður miklu meira haft í kössum vegna þess að maður hefur ekki hugmynd um hversu lengi maður verður á þeim staðnum við alla vega fáum þetta í 6 mán í einu þangað til þetta selst eða þangað til það kemur að okkur hjá búseta,ég mun alla vega ekki taka jafnmikið uppúr kössum þar og ég gerði hérna,enda bjóst ég við að vera hér í 3 ár en ekki 1 ár eins og raunin varð.

Í kvöld er tekin stefnan á grillið og er ég búin að bjóða uppáhaldsfólkinu mínu í mat en það eru elsta dóttir mín,fallega Birtan hennar ömmu sinnar og svo mínir yndislegu foreldrar svo það verður glatt á hjalla verðum heil 9 stykki til borðs og mér finnst það bara æðislegt.

Jæja best að hætta að slóra og koma sér aftur uppá loftið og taka til hendini. 


GLEÐILEGT SUMAR ELSKURNAR MÍNAR.

Ég seigji það en og aftur læknirinn hans kúts er meiriháttar,ég varð ekkert smá hissa í gærkvöldi hérna um kl 20.00 þegar hún hringir í mig til þess að seigja mér frá niðurstöðum úr röntgenmyndunum,ég bjóst aldrei við að fá að vita úr þeim fyrren í fyrsta lagi á morgun,en nei hún þessi frábæra kona hringir hérna til þess að seigja mér það að ristillin hjá kút er stútfullur og nú fer hann á eitthvað lyf til þess að hreinsa hann og þarf hann að vera á því í 6 vikur og ef það virkar ekki þá fær hann eitthvað annað.

Þetta er samt ferlega skrýtið því að nú hefur hann ekki verið í vandræðum með að gera nr 2 og gerir það allt að 4 sinnum á dag stundum en það virðist bara ekki vera nóg,en þarna er kanski komin ein skýring fyrir hans ofþyngd...hver veit.

Ég hélt bara í sakleysi mínu að maður hlyti að fá verki þegar ristillinn fyllist en hann kvartar alla vega ekki,kanski er hann bara orðin svo vanur þessu að hann sjálfur er kanski hættur að taka eftir því ef hann er með verki....gæti verið.

Ég er náttúrulega samkvæm sjálfri mér og komin á fætur kl 5.30 þrátt fyrir að hafa farið að sofa í seinni kantinum eða alveg að verða miðnætti,ég bara virðist ekki getað sofið í þessu húsi,um síðustu helgi þegar við vorum hjá Anítu systir minni á Akranesi þá svaf ég eins og ungabarn alla nóttina og meira að seigja alveg til að verða 7 og 8 á morgnana og ég sem hélt að maður svæfi alltaf best heima hjá sér en það er sko ekki þannig í mínu tilfelli.

Heyrðu já svo er ég búin að fá leyfi til þess að flytja héðan 1 júni í stað 1 júli og er það bara frábært þá þarf ég ekki að borga leigu af 2 húsum í júni mánuði,enda svosem gátu þau ekki samþykkt annað þar sem verið er að brjóta á mér með þessari uppsögn,í dag er mig farið að hlakka til þess að flytja héðan af svo ótal mörgum ástæðum,ég þekki húsið sem við flytjum í og við þekkjum helling af fólki í hverfinu plús það að þetta er besta hverfið í bænum að mínu mati,þarna ólst ég upp frá 4ra ára aldri og þekki hvern krók og kima á hverfinu. 


Við komin heim

reyndar fyrir nokkrum tímum síðan,sjúkrahúsdvöl kútsins gekk mjög vel það voru teknar blóðprufur og fylgst með svefni í nótt og kom allt vel útúr því (svefninum sko) en við þurfum að bíða í 2 vikur eftir niðurstöðum úr blóðprufunum því þær eru sendar til USA til rannsóknar ef ég skildi þetta rétt,svo fór hann í röntgen og fæ ég að vita úr því öðru hvoru megin við helgina.

Læknirinn gerði sér spes ferð inná herbergi til okkar til þess að hrósa okkur fyrir það hvað við værum nú samt að gera góða hluti með kútin,hún sýndi mér kúrfuna hans og samkvæmt henni er hann alla vega ekki að þyngjast og BMI vægið hefur lækkað töluvert og sagði hún að það væri hægara sagt en gert að lækka það en það seigjir okkur það að fitan er að minnka en vöðvar að stækka sem er gott mál,svo hefur hann lengst allverulega undanfarna mánuði og ef ég man það rétt þá hefur hann lengst um eina 7cm frá því við fluttum heim í júni í fyrra og er það mjög gott,þar af leiðandi eru komnar alla vega einhverjar skýringar á því af hverju hann léttist ekki svo mikið.

Ég viðurlkenni það líka alveg að ef hann hefði ekki komist inní hlíðarskóla síðastliðið haust og ég fengið svona mikla hjálp frá þeim þar þá væri hann ekki í svona góðum málum í dag það er alveg ljóst,þar sem ég var búin að standa í þessu nánast ein öll árinn og lítið sem ekkert gekk en svo fékk hann inngöngu í þennan líka ÆÐISLEGA skóla þar sem við erum að fá alla þá hjálp sem hægt er að hugsa sér og ég verð bara að viðurkenna það að ég dýrka þennan skóla og alla hans starfsmenn og ég hugsa að ég komi aldrei til með að getað þakkað þeim almennilega fyrir allt sem þau eru að gera fyrir kútin og okkur öll hin í leiðini.

Öll sú hjálp sem hann er að fá hérna heima er örugglega 1000 sinnum meiri en hann fékk öll árin í norge og þegar við fluttum heim þá bjóst ég aldrei við að fá alla þessa hjálp fyrir hann sem ég er að fá í dag,það var bara orðið þannig að ég var orðinn svo úrkula vonar að þessi elska myndi nokkurn tíma fá þá hjálp sem hann er að fá í dag,ég seigji það bara fyrir mig að HLÍÐARSKÓLI og allt það teymi sem er í kringum elskuna mína er bara satt að seigja að bjarga hans lífi svo einfalt er það.

 Í fyrsta skipti á hans ævi eigi ég VON,von til þess að hann geti átt sér líf utan veggja heimilsins og hann geti farið að hitta vini og gert það sem önnur börn gera í dag á þessum aldri,ég hins vegar viðurkenni það að þegar fjölskylduráðgjafinn okkar í skólanum sagði þetta við mig í haust þá var mín fyrsta hugsun sú að hún hlyti að vera eitthvað rugluð að halda það að hann gæti átt eitthvert líf,en viti menn það var ég mamman sem var orðn rugluð enda búið að innprenta það í hausinn á mér úti í norge að ég skildi fara að undirbúa sjálfan mig með það að setja hann á stofnun eftir einhver ár því fyrir rest gæti ég ekki hugsað um hann. Í dag seigji ég fuck you NORGE (afsakið orðbragðið).

Kanski erum við ein af þeim fáu sem getum þakkað fyrir svona góða þjónustu eins og við erum að fá og það vildi ég óska að allir foreldrar sem eiga börn eins og mitt væri jafn heppið og ég og ef þau eru það ekki nú þegar þá vona ég af öllu mínu hjarta að þau veri jafn heppinn og ég og nú er ég að verða fullvæminn,en það er líka bara allt í lagi,því að í minum huga eru bara hreint og beint að gerast KRAFTAVERK fyrir þessa elsku og ég er ekki vissum að svona hefði verið tekið á málum einhvers staðar annar staðar á landinu,en það er reyndar eitthvað sem ég fullyrði ekki.

Eigið gott kvöld elskurnar mínar   


Þar sem driftin var að drepa mig

í fyrra þegar gaurinn minn var fremdur og mamman rankaði ekki við sér fyrren hún var minnt á það að það ætti eftir að klára fermingarmyndatökuna og í dag fengum við afraksturinn að þessari ferð til ljósmyndarans og ætla ég að deila nokkrum myndum með ykkur,gaurinn hefur breyst alveg óhemju mikið á ekki lengri tíma,en hér kemur útkoman.

Minn flotti sonur.

_MG_5288_MG_5305IMG_9465IMG_9471IMG_9482IMG_9499IMG_9500IMG_9502IMG_9504IMG_9536Hann varð að láta tíkina sína fylgja með enda er hún líf hans og yndi og hann keypti sér hana fyrir fermingarpeningana sína og hún heitir Jenný,ég er alveg hrikaleg stolt af þessum strák,hann hefur gengið í gegnum margt ljótt á sinni stuttu ævi og varð fyrir hrikalegu einelti útí norge en hann hefur komið alveg ótrúlega heill útúr því öllu saman.


Hahaha einn svona í gríni

     



 Miðaldra kona stendur allsber fyrir framan spegilinn í svefnherberginu og dæsir. Karl hennar uppi í rúmi að lesa blað.

-Almáttugur að sjá hvernig ég er orðin segir hún, brjóstin komin niður á maga, rassinn ofan í gólf, allt í appelsínuhúð og keppum!
Magnús segðu eitthvað jákvætt til að hressa mig við.

-Ja, þú ert allavega með góða sjón, segir hann.


Eru virkilega til svona

siðferðislega BRENGLAÐIR menn,þetta er algjör VIÐBJÓÐUR og ekkert annað og svo langt frá mínum skilningi,ég rett og slett fyllist þvílíkri reiði þegar ég sé svona fréttir,hvernig í óskopunum dettur einhverjum manni það í hug að misnota fatlaðan einstakling eða bara hvernig getur fólk verið svona siðlaust gagnvart minnimáttar og þá er ég ekki bara að tala um fatlaða heldur alla þá einstaklinga sem eru misnotaðir Urrrr Arrrgggg.
mbl.is Braut gegn fatlaðri stúlku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mættum hérna uppá FSA

KL 17.00 eins og gert var ráð fyrir og það var byrjað á því að vigta kút og hæðarmæla,síðan var mældur blóðþrýstingurinn og svo var borið á hann deyfikrem á 4 staði á handleggjum til þess það yrði auðveldara að setja upp æðalegg,hann nefnilega lenti ansi ílla í því útí norge eitt sinn þegar reynt var að finna æð hjá honum og kjellingaruglan sem sá um það hrærði bara hræði í handleggnum á honum þannig að eftir það fór hann að hræðast nálar,enda get ég ekki ímyndað mér að það sé gott að láta hræra með nál í hendini að leita að æð.

Það er allt til alls hérna fyrir svona kúta alls kyns tölvur og tæki og mínum leiðist það nú ekki og eins og sést á þessu bloggi nettengd pc fyrir mömmunaWink,kútur hafði orð á því að hann væri sko bara alveg sáttur við það að vera hérna og þetta yrði sko ekkert mál,spurði nú svo reyndar hvort þetta væri nú ekki ábyggilega bara 1 nótt sem við þyrftum að vera hérna og ég vona að svo sé.

Jæja við fengum svo að skreppa heim að borða og sækja hitt og þetta og fá okkur að borða því ég var búin að setja upp matinn áður en við fórum uppeftir og elsta dóttirinn var svo hérna fyrir mig og sá um allt þessi elska,það var mikið að gera hjá lækninum þannig að það var bara hringt uppúr kl 19 og okkur sagt að nú gætum við komið aftur sem við og gerðum.

Þá mætti okkur alveg yndislegur læknir og hann tilkynnti kút það að ef hann yrði duglegur að leyfa setja upp æðarlegg skildi hann spila við hann tölvuleik og að sjálfsögðu stóð læknirinn við það og þeir spiluðu saman í ps2 og kútur vann .....En ekki hvað.

Svo var bara slakað á frameftir kvöldi þannig til að kútur sofnðai að vísu frekar seint en það hafðist fyrir rest og eins og sést þá er ég vöknuð og búin að blogga og klukkan rétt að ganga 7,en það er nú bara eins og venjulega ég kann ekki að sofa lengur,en það er líka kanski ágætt því nú undir morgunsárið byrja allar rannsóknirnar og munu þær standa yfir eitthvað fram eftir degi en ég mun koma með framhald þegar heim verður komið og láta ykkur vita hvernig gekk í dag.

Eigið öll yndislegan dag í dagInLove


Jæja þá er komið að því

Var að fá upphringingu frá læknir kúts og kútur á að leggjast inn kl 17.00 í dag,fyrirvarinn er stuttur en málið er að traffikinn datt aðeins niður á barnadeildini og hún ákvað að athuga hvort við gætum komið inn í dag og að sjálfsögðu samþykkti ég það um leið,það er ekki laust við að stressið láti á sér kræla þegar kallið kemur,ekki það að ég hafi ekki vitað af þessu en það er bara þegar svo loksins eitthvað gerist þá bankar kvíðin og stressið uppá.

Annars er þetta svo æðislegt sjúkrahús og læknirinn er alveg frábær þannig að það er engu að kvíða,reyndar ætti mig frekar að hlakka til þar sem vonandi koma einhver svör útúr þessu nú eða þá engin svör það er annað hvort eða.Alla vega verður þá búið að rannsaka allt það sem rannsaka þarf og er það bara hið besta mál.

Annars hefur dagurinn í dag einkennst af ferlegri þreytu og ég hef nákvæmlega engu komið í verk nema hanga hérna í tölvuni og ég get svarið fyrir það að þetta fer að verða hættulegt andlegri heilsu minni,sú var tíðin þegar ég kíkti varla í tölvuna í fleiri daga en eftir að fartalvan kom á heimilið þá er öldin önnur shitt hvað þetta er ávanabindandi rusl. 


Fyrirmyndarmóðir hér á ferð

Hún virðist þekkja sitt barn og ekki treyst honum fyrir bílnum alla vega ekki í bráð.

Tek ofan fyrir ábyrgum foreldrum. 


mbl.is Tók bílinn af syninum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skildi það hafa eitthvað að seigja

þó hann muni missa teinið kanski ævilangt,er það ekki bara svoleiðis með svona menn að þeir láta sér ekki seigjast þó teinið fái að fjúka,en kanski á máltækið við hérna.Batnandi mönnum er best að lifa.
mbl.is „Ég á ekki að vera með ökuréttindi"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Helga skjol
Helga skjol
Ég heiti Helga og er kona,móðir,amma ásamt því að vera fullt fullt annað

Note bene

JÚHÚ kíktu hingað

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband