Leita í fréttum mbl.is

Smá veitingahumor

 


Í síðustu viku fór ég með nokkrum vinum út að borða á vinsælum veitingastað. Ég tók eftir því að þjónninn sem tók pöntunina okkar var með skeið í skyrtuvasanum. Þetta var nú frekar óvenjulegt en ég leiddi það hjá mér. Þegar "glasabarnið" kom með vatnið til okkar, tók ég eftir því að hann var einnig með skeið í skyrtuvasanum og þegar ég leit í
kringum mig tók ég eftir því að allt starfsfólkið var með skeiðar í vösunum sínum.
Þegar þjónninn kom aftur með súpuna til okkar spurði ég hann:
 
"Hvað er með skeiðina?"
 
"Sko...", útskýrði hann, "eigendur veitingastaðarins réðu ráðgjafafyrirtækið Greiningavinnsluna, sem eru sérfræðingar í skilvirkni og afköstum, til að endurskipuleggja alla verkferlana okkar.
Eftir margra mánaða greiningu og tölfræðilegar rannsóknir komust þeir að þeirri niðurstöðu að skeiðin væri það áhald sem oftast dettur í gólfið. Gera má ráð fyrir að tíðnin sé 3 skeiðar á hvert borð á klukkustund. Ef starfsólkið okkar er tilbúið til að mæta þessu vandamáli, þá getum við fækkað óþarfa ferðum í eldhúsið og sparað sem varar 15 mannstundum á hverri vakt."
Eins og örlögin kusu þá misst ég skeiðina í gólfið og hann gat skipt henni út fyrir þá sem hann hafði í vasanum. "Ég næ í aðra skeið næst þegar ég fer inn í eldhús í stað þess að gera mér auka ferð þangað núna."
 
Ég var nú frekar "impressed" af þessu öllu saman. Ég tók eftir því að það var lítill spotti hangandi út úr buxnaklaufinni hjá þjóninum. Þegar ég leit betur í kringum mig tók ég eftir að allir þjónarnir höfðu svona bönd hangandi út úr buxnaklaufunum. Þetta vakti forvitni mína á ný og áður en hann komst í burtu spurði ég þjóninn: "Afsakið, en geturðu sagt mér af hverju þið hafið þessa spotta hangandi þarna...".
 
"Já, það...", sagði hann vandræðalega og lækkaði röddina "það eru ekki allir eins athugulir og þú. Þeir hjá ráðgjafafyrirtækinu sem ég nefndi áðan, fundu einnig út að við gætum sparað tíma sem eytt er á klósettinu."
 
"Hvernig þá?"
 
"Sko", hélt hann áfram, "með því að binda þennan spotta á þú veist ..., getum við togað hann út án þess að snerta hann og með því móti eytt þörfinni fyrir að þvo okkur um hendurnar og þar með stytt tímann á klósettinu um 76.39%."
 
"En eftir að þú nærð honum út, hvernig seturðu hann þá inn aftur?"
 
 
"Ja...", hvíslaði hann jafnvel enn lægra, "ég veit ekki um hina, en ég nota nú bara skeiðina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birna Dúadóttir

Birna Dúadóttir, 23.3.2008 kl. 19:36

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Gunnar Helgi Eysteinsson, 23.3.2008 kl. 19:43

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 23.3.2008 kl. 20:35

4 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

, he he

Kristín Gunnarsdóttir, 23.3.2008 kl. 21:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helga skjol
Helga skjol
Ég heiti Helga og er kona,móðir,amma ásamt því að vera fullt fullt annað

Note bene

JÚHÚ kíktu hingað

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband