Færsluflokkur: Bloggar
Mánudagur, 26. maí 2008
Mánudagur til mæðu.
Nei seigji bara svona, góð helgi að baki og veðrið yndislegt. Það var mikið gaman í eurovision teitinu og mikið hlegið, hins vegar komst maður ekki hjá því að verða pínu fúll þegar maður sá hvers kyns var í kosningunni, en ég er mjög stolt af okkar fólki þau stóðu sig með prýði og Friðrik hreint og beint geislaði á sviðinu og framstaðan þeirra var til fyrirmyndar.
Hér er grillað alla daga og alltaf verið að prófa eitthvað nýtt á grillið og alltaf heppnast það jafnvel, hér var svo farið út í morgun en af garðinum girtur af fyrir hana Jenny svo hún stingi ekki af þessi óþekkatarormur.
Kútur virðist ætla að ætla að enda skólaárið á því að vera veikur, hann veiktist á laugardaginn með hálsbólgu og hita þessi ræfill en hann hafði það samt af að stinga af í gærkvöldi með báða hundana eða öllu heldur Jenny stakk af og kútur skellti max (það er hundur sem við erum að passa) í band og trallaði sér úr á naríonum einum fata að elta Jenny án þess svo mikið að láta mig vita, hér varð að sjálfsögðu uppi fótur og fit og allir út að leita en ekki fundust þau í fyrstu atrennu, en svo þegar lagt var aftur af stað þá kom kútur trallandi með Max í bandi en einhver yndislegur strákur hélt á Jenny og hjálpaði honum heim aftur, en þetta er svona lýsandi dæmi um hvatvísina sem getur fylgt honu, það er bara farið eitthvað án þess að láta kóng eða prest vita.
Þetta verður til þess að maður missir úr slag af hræðslu, því útí norge átti hann til að stinga svona af en rataði svo ekki heim aftur greyjið, hann getur verið svo eiginlega áttavilltur þessi ræfill og veit ekki hvort hann er að koma eða fara.
Eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Laugardagur, 24. maí 2008
Munið þið eftir þessu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 24. maí 2008
Hummm hvað varð um bloggletina
Nei seigji bara svona, annars mátti ég til með að láta vita af því að þar sem ég er vog í orðsins fyllstu merkingu, að þá er ég búin að vera valhoppa hérna eins og hæna síðan á Fimmtudagskvöldið því á ákváðum ég og 2 aðrar vinkonur mínar að ef að Ísland kæmist áfram þá skildi sko vera haldið eurovision partý hjá einni okkar, en mín var bara engan vegin að getað ákveðið sig eins og venjulega eftir að við komumst áfram, en svo fékk ég spark í minn æðri enda þannig að það varð úr að í eurovision partý verður farið í kvöld og ekkert vesen með það.
Ég viðurkenni það fúslega að eftir að vera búin að taka ákvörðun þá bara virkilega hlakkar mig til að fara, það er nú ekki eins og maður fari svo andsk mikið út fyrir dyr heimilsins til þess að hitta annað fólk nema þá í bónus eða svol sjoppum.
Þannig að í kvöld ætla ég að skemmta mér í góðra vina hóp og engum mun koma til með að leiðast, það er alveg á hreinu, enda eru þessar tvær vinkonur mínar alveg yndislegar í alla staði og það er svo gott og gaman að eiga góða vini....Ekki satt.
Ég vona að kvöldið hjá ykkur verði gaman eins og ég ætla að hafa það hjá mér.
Knús á ykkur öll elskurnar mínar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laugardagur, 24. maí 2008
Það er bloggleti í gangi.
Já satt að seigja er ég að fyllast af bloggleti, kannski vegna þess að vikan hefur einkennst af mikilli spennu við það að koma sér fyrir aftur í húsinu, nú svo er veðrið búið að vera hreint út sagt dásamlegt síðustu daga, hér var tekið sig til í gærmorgun að tjaldinu tjaldað út í garði við mikla lukku barnana, sérstaklega títlunar og fékk hún og vinkona hennar að sofa í tjaldi og gellurnar sofa enn, ekkert smá duglegar.
Það er komin alveg heljarinnar útilegufílingur í mig og mig er farið að hlakka alveg hrikalega til að skella mér í útilegu og ætla ég að gera mikið af því ef veður leyfir og ég ætla bara að trúa því að veðrið verði gott í allt sumar um allt land.
Þar sem að mín er með þennan sumarfíling enn er eins og næpa eftir veturinn og er hætt að vilja liggja í ljósabekkjum þá ákvað gellan að notfæra sér eitt af þessum brúnku spreyjum sem eru á markaðnum í dag og viti menn það var sebrahestur sem skreið framúr rúminu í morgun hehe, eða svona allt að því, ég var nefnilega svo gáfuð að þegar ég var að ganga frá eftir kvöldmatinn þá náttúrulega er ég að vinna með vatn sem varð til þess að vatn rann eftir handleggjunum á mér og ég er semsagt hvít á kafla en fagurbrún á öðrum stöðum, andlitið tókst að vísu vel sem betur fer og er ég bar þokkalega fín þar, en núna verður mín að gjöra svo vel að haga sér eins og prinsessa og koma ekki nálægt vatni næstu tímana því auðvitað varð ég að laga skemmdirnar áðan.
Nú hef ég sleppt því að lesa slæmar fréttir í dágóðan tíma og svei mér þá það virkar alveg þrælvel, ég finn að ég er mikið léttari í skapi og slepp við það að taka inná mig allar heimsins áhyggjur í staðinn, bara gott mál.
Eigið góðan laugardag elskurnar
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 23. maí 2008
Allir að leggjast á eitt með hjálp fyrir þessa yndislegu fjölskyldu.
fimmtudagur, 22 maí 2008 | |
Sett hefur verið af stað söfnun vegna mikilla veikinda sem komið hafa upp hjá, Öldu Berglindi Þorvarðardóttur. Alda sem er borin og barnfæddur hornfirðingur, hefur nú greinst með illkynja sjúkdóm og framundan er strangur og erfiður tími hjá henni og fjölskyldu hennar. Ljóst er að eiginmaður hennar Lárus Óskarsson verður frá vinnu á þessum erfiðu tímum. Lárus og Alda eiga þrjár litlar stelpur á aldrinum 2ja til 7ára. sem þurfa á hans umönnun að halda, og einnig okkar stuðnings í þessari baráttu.Stofnaður hefur verið söfnununarreikningur handa þessari fjölskyldu í Sparisjóð Hornafjarðar. Látum okkur málið varða og sýnum samhug í verki og leggjum þeim lið!! Margt smátt gerir eitt stórt. Reikningsnúmerið er: 1147-05-401196 Kt: 260574-3379. Viljið þið vera svo væn að setja þetta á ykkur síðu. Velunnarar. |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 22. maí 2008
Enn ein dagur í upppökkun hehe
en nú er það líka búið, sem betur fer kláraði að ganga frá restinni af því sem ég var búin að pakk niður fyrir flutninga og var ráðist á ruslapokana og þeir tæmdir, svo nú er bara eins og maður sé nýfluttur eina ferðina enn, en er samt á sama stað, þetta er eiginlega pínu fyndið svona ef maður lítur að björtu hliðarnar í þessu öllu saman.
Annars er búið að vera hér stöðugur gestagangur síðan um hádegi fékk fjórar góðar vinkonur í heimsókn og það var mikið spjallað og hlegið, svo um 3 leytið kom elsku litla systurdóttir mín til mín og ætlar að gista hjá okkur í nótt, hún er reyndar ekkert lítill lengur orðinn 13 ára en þar sem hún er svona bland í poka eins og frændi sinn þá finnst manni hún alltaf lítil, en það er bara yndislegt að hafa hana hjá sér, hún er svo einlæg og samt stundum svo gömul í orðum og maður getur alveg drepist úr hlátri stundum, hún sagði við gaurinn minn....Árni minn þú ert mikið fallegri rauðhærður en dökkhærður, viltu ekki bara lita þig rauðan aftur Árni minn og þetta var sagt í svona ömmutón, alveg hrikalega fyndið þegar það kom frá henni, en kannski ekki jafn fyndið á prenti hehe.
Hér var stokkið til í gær og stefnt á jysk (rúmfatalagerinn) til þess að kaupa öryggisnet á trampolínið sem ég keypti í jysk í norge og ég taldi nú víst að þar sem þetta væri sama stærð og sama búð að þá ætti netið að passa en það var nú ekki svo gott, því nú er búið að breyta fótunum á líninu og þá er ekki hægt að festa netið á það þannig að eina lausinn er að kaupa nýtt trampolín þegar þau koma aftur í sölu, ömurlega fúlt að ekki sé hægt að nota þetta net, því nú er kútur aldeilis farinn að hreyfa sig, hann hoppar og hoppar endalaust eftir að hann kemur heim úr skólanum og það er ekki verra.
Eigið gott kvöld elskurnar mínar og trúum því að Ísland komist áfram í kvöld
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 21. maí 2008
Er hægt að hafa meira að gera.
Ég bara spyr, ég hef ekki einu sinni haft tíma til að fara blogghring hvað þá að blogga eins og ég ætlaði mér í gær.
Ég fór á þennan fund í gær sem ég er búin að tala um hérna en því miður var mér ráðlagt að fara ekki með það hingað inn að svo stöddu því mér skilst að ekki verði það mér til framdráttar vegna manneskju sem kíkjir hérna við reglulega, en ég get samt sagt ykkur það að þetta var meiriháttar góð niðurstaða í þessu fyrir mig og mig eina, það er komið af stað ákveðið ferli sem síðan verður hrint í framkvæmd næsta vor svo mikið get ég alla vega sagt ykkur, kannski kemur sá tími að ég blasti þessu öllu hérna inn en því miður bara ekki að svo komnu máli.
En þið elskurunar mínar verðið bara að sætta ykkur við það að vita bara það að þetta voru langþráðar fréttir fyrir mig af hinu góða.
Annars hafa fjórir síðustu dagar einkennst af því að hér er ekki stoppað frá morgni til kvölds, því hér er verið að koma öllu í samt horf aftur, ég var náttúrulega að fara flytja og var þar að leiðandi búin að pakka niður alveg helling og bjó hér í kössum, þannig að nú er verið að pakka uppúr þeim aftur og koma sér fyrir eina ferðina enn og það á sama stað, alveg ótrúlegt.
En kostirnir eru þeir að nú er vandað til verksins og aukið við geymlsudótið því ekki ætla ég að rífa allt uppúr kössum aftur því það er hellingur sem maður notar aldrei en tímir samt ekki að henda alveg strax, þannig að það verður geymt aðeins lengur eða í eins og tvö ár í viðbót, því hérna ætla ég að vera þangað til að upphaflegum leigusamning lýkur og ekkert múður með það.
Nú þýðir ekkert rugl við mig lengur og ef þetta kemur aftur uppá af hálfu leigusala þá seigji ég stopp, ég get bara einfaldlega ekki lagt þetta á börnin mín aftur, því að sjálfsögðu hafa þau fundið fyrir spennuni hjá mér útaf tilvonandi flutningum sem síðan varð svo ekkert af.
Annars er það að frétta af kútnum mínum að hann var trappaður niður af einum lyfjum sem hann byrjaði að fá í norge fyrir tveimur árum síðan en búið er að taka af honum núna og ég seigji það satt að það eru að gerast ótrúlegar breytingar til hins betra með hann, nú fer minn maður orðið út að leika sér, hann hangir í símanum eins og sönnum tilvonandi ungling sæmir að leita eftir félagsskap og er farinn að bjarga sér miklu meira hérna heima en hann gerði áður, hann stundar alls kyns tilraunastrafssemi í eldhúsinu með eitt og annað matarkyns ekki til þess að borða ónei heldur er minn að búa til sprengjur að eigin sögn úr hinum og þessum efnum sem tengjast bakstri, ekkert hættulegt heldur bara gaman að sjá þessa elsku vera að vakna til lífsins og það besta af öllu er að hann gengur frá öllu eftir sig og eldhúsið verður nánast spikk og span af hreinlæti og sprengjan hefur ekki heppnast ennþá kannski vegna þess að hann á það til að bæta við uppþvottalegi í gjörninginn
en svo einhverjir fari nú ekki að hafa áhyggjur þá er alltaf einhver sem situr við eldhúsborðið og fylgist með aðförum kúts.
Annað sem líka er svo gaman og það er að stóra systir hans kom hérna færandi hendi með gamlan gsm handa honum og hann varð svo ánægður að fá gemsa að það var bara nánast fyndið, stóra systir splæst á hann 500 kr inneign í leiðini og minn var fljótur að klára hana því hann varð að hringja í okkur hin og láta okkur vita að hann ætti gemsa þó við værum öll stödd hérna heim, hann bara varð að prófa nýja gemsan sinn og hvernig er hægt að stoppa það af þegar maður sér barnið sitt vakna til lífsins þó það kosti smá aur, alla vega gat ég það ekki.
Jæja elskurnar mínar ég vona að þið fyrirgefið mér að geta ekki komið með nánari upplýsingar um fundinn minn góða alla vega ekki strax.
Vá hvað þetta er orðinn löng færsla.
Eigið góðan dag öll sem eitt það ætla ég að gera.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Mánudagur, 19. maí 2008
HAHAHAHAHA Hrikalega getur maður verið klikkaður
Mín skellti sér á leyndó staðinn í dag eins og til stóð og viti menn, mín var degi á undan áætlun.......... Svarið sem ég fékk þegar inn var komið var...... Nei Helga mín það er á morgun sem þú átt að mæta og ég bara haha var það ekki 20 mai og hún svaraði jú og það er á morgun og ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin eyrum, allan þennan tíma er ég búin að standa á því fastara en fótunum að mánudagur skildi vera 20 mai ekki 19 mai, hrikalega er maður ruglaður, svo nú verðið þið að bíða einn dag enn.
Annars er þetta búið að vera vita klikkaður dagur, það kom í ljós að nú vilja leigusalar mínir halda mér hérna áfram því að aðstæður breyttust hjá þeim og ég ákvað að taka því vegna þess að ég er búin að standa í smáveseni með nýja leigusalan útaf greiðslu sem ég átti að inna af hendi 1 júni að ég hélt en nei hann vildi fá hana strax eða ekkert yrði að samningum okkar á milli og þar sem ég var ekki kominn með leigusamninginn í hendurnar þá var ég ekki tilbúin til þess að reiða fram þessa fjárhæð án þess að hafa einhverja tryggingu fyrir því sjálf að ég fengi íbúðina því upphæðinn var töluvert hærri en eins mán leiga. Þannig að nú er staðan þannig að hérna mun ég vera þangað til að mínum tíma lýkur eða eftir 2 ár og málið er dautt, ég mun ekki beygja fyrir þeim aftur ef til þess kemur (no way hose).
Þessi vitleysa er búin að stnda yfir frá því á laugardag og ég get alveg sagt ykkur það að taugarnar hjá mér voru vægast sagt að fara í hengla, aldrei á ævi minni hef ég staðið í annari eins vitleysu við leigusala og hvað þá tvo leigusala, en nú er því lokið og verður ekki meir, ég skal standa föst á mínu næst það er alveg á hreinu.
Nú svo af því að ég bjóst við að flytja héðan þá varð ég að fjárfesta í ísskáp og þvottavél og viti menn nú sit ég uppi með tvennt af hverju hahahaha en málið er það að þetta fylgdi þessu húsi en ekki því sem til stóð að leigja þannig að nú vill ég losna við það gamla og inn með það nýja. Takk fyrir takk, en eru þessi heimilstæki sem hérna eru komin til ára sinna og alveg tímabært að fara skipta því út fyrir nýtt og ekki ætla ég að láta nýju hlutina mína standa í geymslu í 2 ár til og hana nú.
Svo elskurnar mínar það verða engar fréttir fyrren á morgun af leyndóinu mínu.
Eigið yndislegt kvöld öll sem eitt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Sunnudagur, 18. maí 2008
Hrikalega skrýtin helgi á enda.
Það er ekki svo lítið búið að ganga á hérna (eða svoleiðis) gærdagur fór í þokkalegan þvæling útum allan bæ og var verið að stússast í hinu og þessu svo þegar heim var komið var grillað og svo var fjölskyldustund með tilheyrandi dvd glápi með börnum.
Í morgun var svo rifið sig eldsnemma af stað því títlan var að taka þátt í vorsýningu í fimleikum og þetta var alveg rosalega flott hjá þessum krökkum öllum saman, mér skilst að þarna hafa verið hátt í 200 börn að sýna og ég sé það að hafa barn í fimleikum er bara að hinu góða, því að maður sá það svo vel þarna hversu mikin aga þessi börn þurfa til þess að getað tekið þátt í einhverju svona hópverkefni sem þarna var, þetta var bara hreint frábært.
Ég verð nú reyndar að seigja ykkur frá því að þegar ég kom heim í gær biðu mín all sérkennilegir e mailar frá báðum leigusölum, semsagt þeim núverandi og þeim tilvonandi, ég ætla reyndar ekki nánar útí það hér fyrren en allt er komið á hreint í þeim efnum, en sékennileg voru þau bæði þessi bréf (mailar) svo ekki sé meira sagt.
Það frábæra við daginn í dag utan við fimleika sýninguna er það að kútur fór til vinar síns kl 9.30 í morgun og var þar í allan dag og það get ég svarið að það var ferlega skrýtið að geta verið á flakki í allan dag án þess að þurfa að taka tillit til hans, enda gat ég ekki hugsað mér að vera heima heldur þvældist ég um allan bæ við að gera ekki neitt, bara frábært.
Á morgun rennur upp langþráður dagur, dagur sem ég sagði frá fyrir ca 2 vikum síðan, ég reyndar sagði ekki frá því hvað væri í deigluni og mun ekki heldur gera það núna, en kannski á morgun mun ég seigja frá ef þetta verða góðar fréttir sem ég vona svo af öllu hjarta að verði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Laugardagur, 17. maí 2008
Gott hjá henni að kæfa niður
![]() |
Rúmeni fær skírlífisvottun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
anitabjork
-
fanneyunnur
-
villinor
-
unns
-
jyderupdrottningin
-
dora61
-
mammann
-
helgamagg
-
heidihelga
-
tigercopper
-
ernafr
-
annambragadottir
-
daudansalvara
-
ringarinn
-
jodua
-
jonaa
-
ingabaldurs
-
skrifa
-
tofraljos
-
katlaa
-
katja
-
hugs
-
lady
-
skelfingmodur
-
mammzan
-
ylfamist
-
huldumenn
-
skessa
-
tungirtankar
-
hallarut
-
gurrihar
-
nanna
-
helgadora
-
godinn
-
skordalsbrynja
-
thelmaasdisar
-
rannveigmst
-
ipanama
-
benna
-
ragnarfreyr
-
almaogfreyja
-
jensgud
-
stebbifr
-
berglindnanna
-
dofri
-
olinathorv
-
jahernamig
-
gerlas
-
steinunnolina
-
eddabjo
-
ellasprella
-
sirrycoach
-
bryndisfridgeirs
-
smjattpatti
-
asdisran
-
bifrastarblondinan
-
svanurg
-
stina-sig
-
brandarar
-
ragnhildur
-
leoros
-
saedishaf
-
solskinsdrengurinn
-
dagny65
-
topplistinn
-
holmfridurge
bloggvinir
- Bói mágur...snilldarbloggari
-
þóranna dóttir mín
heimur þórönnu