Leita í fréttum mbl.is

Mamman hafði það af

að gera sig fína og skellti sér með elstu dóttluni út að borða og í bio.

Þetta var alveg yndislega gaman og ég hafði svo sannarlega gott af þessu,fyrst lá leið okkar á strikið en það er gamli fiðlarinn og þar var fengið sér humarsúpu í forrétt og svo naútalund í aðalrétt og var þetta alveg hrikalega gott nammi namm,eftir matinn var svo tekin smá rúntur áður en að bioið byrjaði og við spjölluðum alveg heilmikið saman ég og elskulega dóttir mín,síðan var skellt sér á eina svona drama gaman mynd og að sjálfsögðu féllu nokkur tár á þeirri mynd en er ég annáluð grenjuskjóða yfir myndum.Þetta var í alla staði meiriháttar og yndislega dóttir mín svo góð við mömmu sína að bjóða henni þetta allt saman,en þar sem þessi elska er búin að sjá það að mamman hefur ekki haft það sem best þá langaði henni til þess að gleðja mömmu hjartað sem hún gerði svo sannarlega.

TAKK ÆÐISLEGA FYRIR MIG ELSKU ÞÓRANNA MÍN,þú ert yndisleg og ég gæti ekki hugsað mér betri dóttir en þig,ég elska þig gullið mitt.

Helginn hjá kút hefur einkennst af gríðarlega miklum skapsveiflum og mikilli árásarhneigð á systkini sín á laugardag djöflaðist hann í þeim í 3 tíma takk fyrir og var að gera okkur nett brjáluð og tók svo hvert kastið á eftir öðru,blótaði eins og versti sjóari en spýtti öllum sínum blótsyrðum út á ensku,hann nefnilega heldur að það skiljist síður ef hann blótar á þvi tungumáli og alltaf verður hann jafnundrandi þegar ég skamma hann fyrir þetta og seigjir......Mamma skilur þú mig í alvöru,hann stendur í þeirri meiningu að svona gamlar konur skilji bara alls ekki ensku heheheGrin.

Sunnudagurinn var þó skömmini skárri en þá tók reyndar við alveg ofsalegur leiði hjá honum og var hann með grátstafinn í kverkunum meira og minna allan dagin,sem endaði síðan á því að ég komst ekki á vorhátíð hjá títluni eins og stefnan var,þetta er það erfiðasta af öllu að geta ekki staðið við það sem maður ætlar sér og auðvitað sárnar henni það gífurlega þegar hún sér að allt þurfi að snúast um bróðir hennar og skil ég hana mjög vel,núna er mig farið að hlakka smá til ef hann skildi fá stuðningfjölskydu því þá hef ég meira að gefa títluni já og gaurnum líka ef útí það er farið,en títlan er bara 9 ára þessi elska og hún skilur ekki að kútur skuli þurfa alla þessa hjálp sem hann þarf þegar hún þarf hana ekki,en ég horfi til framtíðar með jákvæðni og trúi því og treysti að allt muni lagast hjá okkur.

Í dag er svo stefnan tekin á að ná í 2 leigusamninga,fylla út minn part og setja þá síðan í póst og senda til Svíþjóðar en þar búa tilvonandi leigusalar mínir. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dísa Gunnlaugsdóttir

elsku helga mín ég sé að helgin hefur bæði verið góð og ervið en þar sem þú ert hörku kona og hefur staðið þið betur en nokkur annar með kút börn eins og hann ættu öll að eiga mömmu eins og þig ég skil það stundum ekki hversu mikla þolinmæði þú hefur

hafðu það gott helga min kveðja Eydís

Dísa Gunnlaugsdóttir, 28.4.2008 kl. 08:55

2 Smámynd: Helga skjol

Takk elskan.

Helga skjol, 28.4.2008 kl. 09:31

3 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 28.4.2008 kl. 10:27

4 Smámynd: Unnur R. H.

Já maður getur verið þakklát börnunum sínum, það er alveg á hreinu. Stóra mín hefur nokkru sinnum boðið mér svona út og það er alveg æðislegt

Unnur R. H., 28.4.2008 kl. 11:09

5 identicon

já þetta var alveg frábært mamma mín:) og mín var ánægjan.

þóranna (IP-tala skráð) 28.4.2008 kl. 12:10

6 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Gott að þú fórst út kæra systir, hefði viljað vera með.

Knus

Kristín Gunnarsdóttir, 28.4.2008 kl. 12:10

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þú ert yndisleg góð móðir og dugleg.

Kristín Katla Árnadóttir, 28.4.2008 kl. 15:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helga skjol
Helga skjol
Ég heiti Helga og er kona,móðir,amma ásamt því að vera fullt fullt annað

Note bene

JÚHÚ kíktu hingað

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband