Leita í fréttum mbl.is

Hvaða

hvöt skildi þetta þjóna mér er spurn,er skemmdarfýsnin orðinn svona mikill að það er bara ráðist að það næsta sem á vegi þeirra verður,annars er þetta náttúrulega engin ný bóla en af einhverjum ástæðum verð ég alltaf jafn hissa þegar ég les um svona lagað í fréttum.
mbl.is Kveikt í yfirgefnum bíl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mér líst

alveg ágætlega á þessa sem eru upptaldir hér og ég vona að sá sem hlýtur hnossið standi sig jafnvel og forveri hans er búin að gera,en ég hugsa að erfitt verði að feta í fótspor Magnúsar í þessum efnum þar sem maðurinn hefur hreinlega gert KRAFTAVERK fyrir bæinn okkar,en ég seigji alla vega sem borin og barnfæddur Akureyringur að ég mun taka þeim sem kemur opnum örmum og opnum huga og trúa því að viðkomandi muni leggja sig allan fram.
mbl.is Tólf sækja um starfið hjá LA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með árunum

hef ég misst áhugan á eurovision en ákvað að gera eins og flest aðrir landsmenn og horfa á keppnina í gærkv og ég er sátt og ég trúi því að þau séu vel að sigrinum kominn og muni standa sig með sóma úti þegar þar að kemur.
mbl.is Eurobandið fer til Serbíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jebb jebb

þetta er það sama og gerðist hjá mér um daginn nema hvað að ég gaf hringinn til góðgerðamála hehehe eða þannig.
mbl.is Kokteill á 4,5 milljónir króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann er ábyggilega

ekki sá eini sem óskar þess miðað við framkoma hans gagnvart sínum þegnum undanfarna áratugi.
mbl.is McCain vonast til að Kastró fari brátt yfir móðuna miklu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fór á árshátíðina

hjá títluni í gær og var það bara þrælgaman að vísu var ég að drepast í bakinu af setuni á þessum stólum sem voru í boði en ég lét mig hafa það að sitja þarna í tæpa 2 tíma með kút með mér við hlið.

Hann var nú ekki beint sáttur við alla þessa setu en lét sig hafa það,hann ætlaði að fara byrja með leiðindi en sem betur náði ég að tala hann ofan af því en mikið lifandis skelfing var hann kátur þegar þessu lauk og gat farið heim.

Svo var ball hjá gaurnum í skólanum í gærkvöldi og skellti hann sér á það með vinkonum og skemmti hann sér mjög vel.

Ég nefndi það um daginn að ég hefði hringt í ákveðinn einstakling sem var ekki að standa sig í stykkinu gagnvart gaur og viti menn þessi einstaklingur hringdi í gaurinn í gær og var hinn ljúfasti við hann og bauð honum heim og að gera eitthvað skemmtilegt saman í dag og fram á sunnudag og að sjálfsögðu þáði gaurinn minn það með gleði,þetta var langþráð símtal og brosti gaurinn minn hringinn að símtali loknu.

Annars er afskaplega mikil þreyta í gangi hjá minni þessa stundina og þá mest megnis andleg ég er alveg steinhætt að höndla einhverjar uppá komur eins og verið hafa á heimilinu þessa vikuna,þetta eru að vísu ekkert hættulegar uppákomur en álagsþröskuldrinn er bara nákvæmlega enginn hjá mér og bara það að hugsast geti að við þurfum að flytja er alveg nóg til þess að setja allt úr skorðum hjá mér.

Mig var farið að hlakka til að geta verið hér örugg í 3 ár en svo núna hangir maður í lausu lofti hvað það varðar,mér skilst reyndar á þeim mönnum sem ég hef rætt við um leigusamninginn að það sé ekki hægt að seigja mér upp þar sem þetta er tímabundinn samningur og ég hef ekkert brotið af mér að einu eða leyti og engin sérákvæði voru sett inn í upphafi leigutímans en ég er bara þannig að ég er steinhætt að nenna að standa í einhverju þrasi frekar er ég farin að lúffa fyrir fólki og það er alls ekki nógu gott að öllu leyti. 


Dúdda mía

16 ára og eiga 7 börn,hún er ekki öfundsverð greyjið stelpan,sjálf á ég 4 með löngu millibili og er það alveg nóg,hvað þá heldur 7 stykki á rúmum 2 árum ef ég skil þetta rétt.
mbl.is Unglingsstúlka eignast aftur þríbura
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg skelfilegt

ef ég man þetta rétt þá er þetta annað flugslysið hér við Ísland á þessu ári og það er febrúar,ég vona svo innilega að vélinn finnist sem allra fyrst.
mbl.is Ekkert sést til vélarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Djí hvað það er

erfitt að verða svona þreytt eins og ég var í allan gærdag,bara gjörsamlega púnkteruð á sál og líkama,get samt í raunini ekki bent á eitthvað eitt eða tvennt sem er að valda þessu hjá mér,ég fór nú samr sem áður í aukatíma í ræktina og tók vel á en það var bara einhvern vegin þannig að eftir það var ég alveg búin að náði mér ekki á strik aftur yfir allan daginn og var dottinn útaf fyrir framan imban kl 21.30.

Í dag er stefnan tekin aftur í ræktina og er vigtun líka svo það verður gaman að sjá hvort hún sé enn á niðurleið hún er það alla vega hérna á heimavigtini, svo verður skellt sér á árshátíð hjá títluni minni og horft á hana leika í leikriti það verður örugglega gaman,svo þarf að sækja Birtuna á leikskólan og þessi elska er alveg einstök.

Ég má til með að seigja ykkur frá því að um daginn varð það þannig að ég var búin að lofa kút innihaldi af kindereggi þannig að ég fór að keypti 3 slík eitt fyrir hann og eitt fyrir títluna og eitt til vara,svo er ég með þetta í töskuni þegar heim er komið og þá seigjir kútur.....mamma keyptir þú kinderegg og ég svara já en ekki láta Birtuna sjá því það er ekki nammidagur og hún skilur það kanski ekki eins og þú seigji ég .....ok svarar minn og læðist ofaní tösku og seigjir um leið við frænku sína......Birta mín villi frændi er bara að sækja meðal af því að hann er veikur í höfðinu sínu og Birtan svarar bara ok......en stuttu síðan fer litla konan ofaní ömmu tösku dregur upp eitt egg og seigjir......amma setta bittu meal (amma þetta birtu meðal) og sýnir mér eggið og ég náttúrulega klikkast úr hlátri,en þetta seigjir manni bara það hversu fljót börn eru að læra það sem fyrir þeim er haft.

Ég tek það líka fram að súkklaðið fengu þau ekki heldur bara dótið sem inní egginu var,sem betur fer hefur kútur aldrei verið hrifin af nammi hvorki súkkúlaði né öðru eina sem honum þykir gott er prins polo og það  fær hann af og til,meira að seigja nammi sem hann fékk á öskudaginn hefur hann varla snert þetta var spennandi á sjálfan öskudaginn og síðan ekki söguna meir,gaurinn hefur alfarið séð um að borða þetta fyrir þau bæði systkini.

 


Vá ekkert

smá dugleg,búin að kíkja á hvern og einn einasta blogg vin og vinkonu og kl bara 8.10 að morgni,er hins vegar ekki jafn dugleg að kvitta en þið vitið þá alla vega elskurnar að ég kíki og geri ég það alltaf reglulega.

Annars var gærdagurinn gjörsamlega stappaður af fundum og fyrirlestrum allan seinni partin og til kl 22 í gærkvöldi að annað eins hefur ekki komið uppá hjá mér lengi lengi,varð meira að seigja sleppa einum fundi svo ég gæti mætt á annan og mig sem langaði svo á þá báða,

stundum þyrfti ég að klóna sjálfa mig svo ég næði öllu því sem ég stundum þarf og langar að gera,enn eins og ég segji þá fór ég á fund í Hlíðarskóla í gær og var þetta svona foreldrahittingur en mættu að vísu fáir en þetta var samt ótrúlega gaman,

mikið spáð og spokúlerað í framfarir hjá börnum og eru þær svo sannarlega að gerast á mínu heimili með kútin minn,það var farið yfir hans tíma í skólanum og þegar maður lítur til baka þá getur maður ekki annað en sagt VÁVÁVÁ þetta er ótrúlegt miðað við þann stimpill sem hann var búin að fá í norgeinu og svo bara allt í einu þá á maður sér von að elskan eigi sér framtíð,það var einmitt nefnt í gær að þegar hann byrjaði í skólanum í haust þá átti ég ekki von og bjóst ALDREI við því að hann gæti tekið þeim framförum sem orðið hafa hjá honum.

Honum meira að seigja finnst alveg meiriháttar gaman í ræktini og það er bara ekkert vesen að fá hann til þess að fara þangað eftir skóla með kennarinum sínum,þetta er bara FRÁBÆRT.

Svo með kvöldinu var skellt sér á fyrirlestur um mataræði og alltaf lærir maður eitthvað nýtt og sem betur fer seigji ég bara því þetta nýtist allri fjölskylduni og þjálfarinn minn var á staðnum og bar fram dýrindis kökur og ís allt búið til úr lífrænt ræktuðu,ekkert hveiti,engin sykur og ég get sagt ykkur að þetta er bara syndsamlega gott,smakkaði meðal annars köku sem búin er til úr sætum kartöflum og avakadó og einhverju fleiru og nammi namm,eins var á boðstólnum gulrótarkaka ekki síðri plús túnfisksalat búið til úr kotasælu ásamt fullt af öðru góðgæti og allt var þetta hvert öðru betra.

En þegar maður hefur ekki hugmyndaflugið eða þekkinguna til þess að búa til svona gúmmelaði þá verður maður alltaf jafnhissa þegar maður smakkar eitthvað nýtt og finnst það svona frábærlega gott,enda er það alveg á tæru að þetta verður búið til á mínu heimili um leið og ég er búin að fá uppskriftirnar í hendur sem vonandi verður á eftir þegar ég hitti þjálfaran í ræktini.

Það hefur ýmislegt neikvætt líka gengið á hérna inni á heimilinu sem ég er ekki tilbúin til þess að blogga um en þrátt fyrir það er ég eitthvað svo óendanlega bjartsýn að það er eignilega bara hálf undarlegt en samt svo GOTT. 

Adios kæru vinir. 


Er ekki sama

vandamálið að eiga sér stað í íslensku þjóðfélagi eitthvað hefur mér skilist það,ég seigji fyrir sjálfa mig að mikið ofsalega yrði ég glöð ef eitthvað svona væri tekið upp hérna á íslandi,það er nefnilega alls ekki nóg í boði fyrir þessi börn og tala ég nú af eigin reynslu,ég er reyndar að tala um börn í yngri kantinum samanber son minn 10 ára gamlan.

Get líka í þessu samb nefnt að um dagin kom hér ungur herramaður í heimsókn og er hann líka 10 ára og í þykkari kantinum en langt því frá að vera í jafnmiklum holdum og sonur minn,þetta er ofboðslega skýr strákur og við ræddum eitt og annað og meðal annars offitu og þá kom uppúr þessum unga manni að hann vildi prófa herbolife,

því honum gengi svo ílla að léttast og ég verð bara að viðurkenna það að mér brá eiginlega vegna þess að þessi ungi maður er orðin mjög meðvitaður um sína þyngd og hans lausn var herbolife 10 ára,ég veit að þessi ungi maður er að æfa 1 ef ekki 2 íþróttir utan skóla þannig að hreyfing ætti að vera í mjög góðum málum en virðist ekki duga hjá honum.

Ég alla vega yrði mjög sátt ef eitthvað sambærilegt yrði í boði á okkar ylhýra landi,því ég efast ekki um að þörfin sé brýn hjá fleirum en mér. 


mbl.is Fitubúðir fyrir börn njóta vinsælda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvænar skildi

þessum helv%)/=/%% hækkunum linna,ég held að það sé komin tími á að við almenningur mótmælum þessum sífelldum hækkunum,þetta er hætt að vera fyndið sem það reyndar var aldrei.

Ég man þegar ég var krakki þá tóku landsmenn sig til og flautuðu útí eitt og keyrðu um bæinn og ég man bílaraðirnar sem fóru um bæinn flautandi,ég man reyndar ekki hvort þetta virkaði eitthvað á yfirvaldið enda bara barn þá,en það væri kanski athugandi að framkvæma einhverjar mótmæla aðgerðir eða er það ekki.......Þetta er alla vega orðið gott. 


mbl.is Bensínverð aldrei verið jafnhátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fór með

gaurinn í fyrsta tíma til sálfræðings og gekk það mjög vel,hann að vísu var ekkert á því að opna sig svona í fyrsta tíma en kanski var það vegna þess að mamman satt þarna líka,stundum er erfitt að tala um einhverja hluti þegar mamman er á svæðinu,en alla vega erum við komin af stað og ég verð að seigja það að sálfræðingunum leist ekki vel á blikuna þegar ég sagði henni frá eineltinu úti í norge og þegar kennarinn hans barði hann með kústskafti eða hrinti honum niður stiga og öll þau niðrandi orð sem hann lét falla um gaurinn á þessum tíma.

Hann á alla vega að mæta í nokkur skipti og svo verður séð til,annars var hún mjög ánægð með það hversu vel hann hefur náð að aðlagast í nýjum skóla og nýju umhverfi og fannst hann vera mjög þroskaður að mörgu leyti miðað við aldur,enda var hann með flest svör á reiðum höndum þegar hann var spurður einhvers og svaraði vel og hreinskilnislega.

Hann er líka bara algjört æði þessi elska og ég tel mig vera mjög heppna með það að eiga einstakling sem vill takast á við það sem gengið hefur á,á hans stuttu ævi.

Annars var farið í dag og fjárfest í nýjum þurrkara,alveg ferlegt hversu háður maður getur orðið einhverju heimilstæki og samt er þetta í fyrsta skipti sem ég hef til afnota þurrkara alla mína búskapartíð utan við einhverjar vikur í norge þar sem ég fékk gefins einn gamlan sem virkaði í ca 2 til 3 vikur og þá dó hann,en þessi sem var hérna fylgdi húsinu og ég lét leigusalan vita af því að hann væri dáinn og það kom henni ekkert á óvart sagði að hann væri kominn til ára sinna,en sökum þess hversu gott mér fannst að grípa til hans þá skellti mín sér á einn splunkunýjan í dag.

Enn næst á dagskrá er sjónvarpsgláp þanig að hér með er ykkur óskað góðs kvölds sem og önnur kvöld.

adios. 


Er engin

óhultur fyrir þessum óþjóðalýð,allt læst inní skáp á vinnustað mannsins en samt eru þau svo býræfin að ná kortinu hans.
mbl.is Stolið greiðslukort notað til að svíkja út vörur á Selfossi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Helga skjol
Helga skjol
Ég heiti Helga og er kona,móðir,amma ásamt því að vera fullt fullt annað

Note bene

JÚHÚ kíktu hingað

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband