Færsluflokkur: Bloggar
Föstudagur, 19. febrúar 2010
GULLMOLAR BARNABARNS. :)
Amma. Hún mamma mín er að fá rosalega stóra bumbu. Ha seigjir amma og spyr.... Er hún þá með barn í maganum. Nei amma hún borðar bara svo rosalega mikið. Hahahahaha. ;)
Amma hver er með Sylvíu á skíðum. Amma svarar.. hún Brynja er með henni. Birta.... Og hver er það. Amma.... Það er frænka þín. Birta já ok ég hef aldrei séð hana. Amma.... Jújú þú hefur séð hana. Birta... Nei amma, sko hún mamma er oft búin að vera keyra mig til Brynju en hún fer alltaf í hina áttina, hina áttina. ohhh hún er svo klikkuð hún mamma mín. hahahaha
Amma þegar ég var 1 árs þá fór ég alein á skauta í strætó og þeir eru bleikir, já ok þarf amma þá ekkert að gefa þér nýja skauta, jú auðvitað amma þæu veist að ég er 4ra ára núna.
Amma ég á ekki kærasta en Aníta og Emilía eru systur mínar (Aníta og Emilía eru vinkonur hennar) og amma það er alveg satt. Þetta eru samræður milli mín og barnabarnsins við kaffiborðið rétt í þessu.
Ert þú að fara til pabba á morgun spyr amma....Já svarar Birta. Og hvað ætlar þú að vera lengi hjá honum ( ég vissi að það yrði alla vega vika ) Þá svarar hún..... jjjjjaaaaa kannski svona 20 mínotur. hehe.
Amma þegar snjórinn fer þá get ég ekkert hjólað, nú af hverju spyr amma...Nú vegna þess að hjólið mitt er bilað. ÆÆ seigjir amma, verður þá ekki afi bara að gera við það, Neibb sko amma hann afi Valur er svo rosalega flinkur að hann ætlar að laga hjólið mitt þegar hann er búin á sjó.
Langaði bara að geyma þessa gullmola einhvers staðar :)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 16. september 2009
Ætti maður að kasta inn eins og svona einu bloggi. :)
Eftir langt og gott frí frá bloggheimum. Mikið hefur gengið á hjá okkur í þessari fjölskyldu undanfarna mánuði og bæði hefur það verið gott og slæmt, en þar sem ég nenni ekki svo mikið að velta mér uppúr því slæma þá ætla ég mest megnis að blogga um það góða :)
Það er semsagt búið að liggja í útilegum í tæpar 5 vikur af sumri og hefur það verið alveg glymrandi gaman í öll skiptin, það var byrjað á því að fara vestur á Snæfellsnes í brúðkaup og var staldrað þar við í ef ég man rétt 4 daga, þaðan var svo haldið á Akranesi og þar stoppað í vikutíma eða svo og tekið þátt í hátíðahöldum bæjarbúa en það voru Írskir dagar og var það fínt.
Í allt sumar var svo lagt í hann um hverja helgi austur í Vaglaskóg og ég held að við höfum sleppt úr tveimur helgum í allt sumar, bara gaman.
Enn nú er komið að hausti og skólar byrjaðir og lofar byrjunin mjög góðu hjá öllum mínum börnum. Elsti gaurinn minn fékk inngöngu í VMA og er það í námi sem heitir ótilgreint nám á tæknisviði, sem í raunini þýðir undirbúningsvinna fyrir viðkomandi nám sem er í hans tilfelli hárskeri/greiðslunám og hefur honum gengið mjög vel það sem af er skóla.
Kúturinn minn er enn í sínum sama gamla skóla, Hlíðarskóla og var hans byrjun frekar erfið, en batnaði þó til muna þegar hann byrjaði í þjálfun hjá sjúkraþjálfara á Bjargi og ég er að seigja ykkur það að þessi þjálfari er bara SNILLINGUR í samskiptum við börn og á hann orðið hvert bein í syni mínum og þá daga sem þjálfun er þá er ekkert mál að koma honum í skólan því þjálfun er strax á eftir skóla þá daga, bara FRÁBÆRT. Nú svo er hann byrjaður í Talþjálfun einui sinni í viku og eitthvað í Iðjuþjáfun á skólatíma, þannig að boltinn er farinn að rúlla fyrir þessa elsku.
Títlan mín byrjaði svo í nýja hverfisskólanum sem var að opna hérna rétt hjá okkur og gengur það ágætlega fyrir hjá henni, hún ætlaði að fara hengja sig á einhverjar tvær stelpur enn sem betur fer er hún farinn að skilja það að svol borgar sig ekki þar sem alltaf ein er skilin útundan, svol að hún er farinn að kynnast fleirum og er það bara gott mál.
Undirrituð hefur svo verið í átaki síðan í Mai og hefur það gengið svona lala, auðvitað vill maður alltaf sjá meiri árangur en þó eru farinn 6 til 8 kg, ég virðist rokka rosalega á milli þessara tveggja kilóa og stend þar af leiðandi í stað svona næstum því, en þá er bara að bíta á jaxlinn og halda ótrauð áfram því fyrir rest þá tekst þetta allt saman ekki satt.
Jæja ætli þetta sé ekki nóg til inntoku í þetta sinn þannig að hér er kvatt með orðunum
ADIOS.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 5. maí 2009
Shit hvað maður er latur orðinn hérna inni.
Kannski vegna þess að maður hefur í nógu öðru að snúast og fullt af góðum hlutum að gerast hjá okkur þessa dagana, það styttist í skólalok og mikið verða börnin ánægð með það, alla vega á þessu heimili.
Það er reyndar búið að ganga hér flensuskítur, við höfum verið að leggjast eitt af öðru undanfarið og nú er bara títlan eftir þá eru allir búnir með þessa flensu alla vega, ég er veik núna, með hita hausverk og bullandi kvef og hálsbólgu og það versta er að ég er með svo mikið kvef í augunum að ég geri ekki annað en að grenja þessa stundina, get varla keyrt bíl fyrir tárum.
Í gær var ég á fundi með skólanum hjá kút og missti þar smá stjórn á skapi mínu þar og sagði þeim þar að nú væri komið gott ég nennti ekki að vera með hann hjá læknir sem líkti hans svefnvenjum við hellisbúa, já þessi blessaði doktor vildi meina það að það væri mjög eðlilegt að kútur færi kannski á fætur kl 2 eða 4 að nóttu, því við værum jú kominn af steinaldarmönnum og þar sem þeir hefðu þurft að vakna oft uppá á nóttini til að huga að eldinum þá hlytum við að þurfa gera það líka hahahahaha, er hægt að vera ruglaðri.
Ég sagði þeim þarna útfrá að nú vildi ég greiningu í eitt skipti fyrir öll sem segði mér hvað væri að barninu mínu, ekki þetta helv hálfkák sem búið er að vera undanfarið. Ráðgjafinn okkar meira að seigja viðurkenndi það að erfitt væri að svara þegar hún væri spurð hvað greiningar hann væri með, því þessi blessaði DOKTOR er búin að bakka niður allar þær greiningar sem hann var búinað fá í Norge.
Annars er ég að byrja inná kristnesi 18 mai og hlakkar mig alveg gríðarlega mikið til að byrja þar því þetta er það sem ég er búin að bíða eftir í langan tíma. seigji betur frá því seinna.
ADOIS ELSKURNAR
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Þriðjudagur, 21. apríl 2009
Sumarið er komið, sól í heiði skín tralalalalalala
Finnið þið hvað allir verða mikið glaðari og jákvæðari, ég finn það mikið eftir að hlýna fór í veðri og gula snótin fór að láta sjá sig oftar hummmm bara gott.
Hér byrjar morguninn venjulega á blaðburði um 6 leytið eða þegar blöðinn koma og þá er tekið á rás í ca 45 mín, ég er alltaf að keppast við klukkuna þegar ég ber út, vill alltaf gera betur og fara hraðar yfir og hef ég náð þessu á 40 mín en þá líka lak vel af manni.
Kallinn minn fer nú þetta alltaf með mér, kallgreyjið draghaltur og allur orðin skakkur og skældur eftir þessi tvö slys sem hann lenti í í fyrra, alveg merkilegt hvernig hlutirnir geta breyst í einni svipan hjá manni, þetta er maður sem hefur unnið eins og geðsjúklingur alla tíð og óhætt er að kalla hann vinnualka svo bara er öllu kippt undan honum og hann veit ekkert hvernig hann á í rauninni að haga sér, lagðist á tímabili í þunglyndi og kiloinn hlóðust utan á hann, en sem betur fer í dag er hann kominnn í endurhæfingu inná Kristnes og vona ég bara að það geri honum gott.
Annars erum við bara nokkuð góð og krökkunum farið að hlakka ískyggilega mikið til að komast í sumarfrí. Gaurinn er að ljúka 10 bekk og fer í VMA í haust, eflaust bara á almenna braut fyrsta veturinn en eftir það er stefnan tekinn á hárgreiðslunám ef hann kemst inn.
Kútur er að taka þvílíkum framförum að það er kraftaverki líkast að horfa á hann. Hann mun byrja í 7 bekk næsta haust og erum við öll að vonast til þess að um áramót geti hann byrjað að aðlagast almennum skóla, vá það yrði bara draumur, hann er búin að vera rosalega duglegur að bera út með okkur líka og á hann heiður skilið fyrir það, hann nær yfirleitt ca 20 til 30 mín með mér á morgnana, en reyndar ekki alla morgna en þó flesta.
Títlan mín er líka uppá sitt besta, hún mun fara í 6 bekk og það í nýja skólan sem verið er að byggja hérna hinu meginn við götuna hjá okkur og verður það bara frábært að hún kynnist fleiri krökkum hérna í hverfinu því hérna vill ég vera.
Að vísu gæti það orðið smá vandamál, en þannig er að elsku litla tíkinn okkar er bönnuð hérna og ég er að hamast við að fá undanþágu fyrir hana, ég get bara ekki hugsað mér að láta hana frá mér, því hún er orðinn eins og eitt af börnunum mínum og lífið yrði svo innantómt og erfitt ef hún þyrfti að fara frá okkur, en ég krosslegg fingur og bið til guðs um að hún fái að vera hérna með okkur áfram.
En nóg af rausi í þetta sinn.
ADIOS MY DARLINGS ON TIL NEXT
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 16. apríl 2009
Vá hvað maður er orðinn latur að blogga.
Annars er fínt að frétta úr kotinu, hér voru páskar óskop rólegir og góðir með reyndar 3 fermingarveislum ásamt matar og kaffi boðum hjá yndislegri vinkonu minni og er hún algjör snilldarkokkur ásamt dóttir sinni og maturinn þar var ekki af verri endanum frekar en fyrri daginn hjá þessum elskum.
Reyndar lenti í ég því að fara með gaurinn minn uppá FSA í fríiinu því elskan var með svo hryllilega mikla verki í baki og vegna hræðslu þá fór minn að ofanda svo svakalega að það leið yfir hann þrisvar sinnum en sem betur fer kom ekkert alvarlegt í ljós hjá honum, heldur leikur grunur á að hann hafi tekið svo inni á sig andlát hjá pabba vinar síns sem átti sér stað fyrir skemmstu og hans upphaf af því var einmitt bakverkur, það kom í ljós hjá gaurnum að hann hafði ekki náð að vinna úr sínu áfalli ef svo mætti að orði komast og ekki náð að tala nóg um sína vanlíðan þegar svo hann fékk þennan bakverk og varð svona líka hræddur þessi elska.
Annars finnst mér ég hafa voða lítið um að tala hérna inni maður er orðinn hálfskeptískur á það hvað maður seigjir hérna útaf öllu þessu rugli sem búið er að ganga á annars staðar á blogginu, hér var og er fólk að rotta sig saman í hópa og níða hvort annað svo niður, til hvers, ég bara spyr, af hverju getur þessi opinberi vettvangur ekki verið bara ljúft og gott eions og var hérna í upphafi ég skil þetta bara ekki.
Nú svo er maður farinn að hanga miklu meira á fésinu og er ég þar í pet leiknum alveg eins og vitleysingur, mér finnst þetta ekkert smá gaman, svo sinni ég dýrunum fyrir börnin mín líka því þau eru latari við það en ég hehe mamma smábarn, ég seigji öllum að þarna fái ég útrás fyrir innanhús arkitektinn í mér, alltaf að breyta og bæta þar sem ég hef ekki efni á því in real life hehe. Bara gaman af því.
En alla vega knús á ykkur elskurnar mínar sem hingað kikið þó fá séuð
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 3. apríl 2009
Árshátíðinn afstaðinn
og ég fékk leyfi til þess að fara með títluna þangað, enda er hún hitalaus og bara orðinn hin hressasta á ekki lengri tíma.
Atriðinn voru hvert öðru skemmtilegri og stóðu börninn mín sig alveg meiriháttar vel í sínum atriðum, títlan lék indiána og var hún rosalega flott með sitt atriði, gaurinn minn gjörsamlega brilleraði sem nörd í söngleiknum grís ( kann ekki að skrifa það á ensku ;) hann var bara hreinasta snilld þessi drengur, enda var ég með tvær vélar í gangi, aðra tók ég alla sýninguna uppá og hina var smellt á eins og brjáluð væri, mun setja inn myndir þegar ég kem þeim í tölvuna hjá mér, vantar nefnilega snúruna á milli.
Nú tekur við tvær ferminginarveislur á morgun, ein um hádegi og hin seinni partinn, ég veit nú ekki hvernig þetta kemur til með að ganga hvað kútinn varðar, hann er nú ekkert spenntur fyrir því að vera innan um fullt af fólki, sér í lagi ef hann þekkir það ekki, en við sjáum hvernig þetta fer allt saman.
Þau voru afskaplega kát börnin mín þegar þau fengu sín laun fyrir blaðburð, sitt hvorn 10.000kallinn, kútur fór og keypri sér leik fyrir 4000 en hitt fór inná nýja debetkorta reikninginn hans, minn sótti sko um debetkort og fær svona alvöru kort sem hægt verður að nota í búðum og svol, minn var ekkert smá montinn með það, títlan er líka komin með debet en það er bara hraðbankakort og sú kona ætlar að fara versla sér einhver föt í dag, alla vega eins og eitt stykki buxur, bara góð á því.
Góða helgi á ykkur elskurnar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 1. apríl 2009
Afskaplega er erfitt að vera 10 ára títla í dag með hlaupabólu.
Sorgin hjá minni er svo sár yfir því að geta ekki tekið þátt í öllu því skemmtilega sem að er að gerast í skólanum þessa dagana, ég reyndar talaði við kennarann hennar í morgun og ef hún treystir sér til að koma á morgun og er hitalaus þá má hún það og taka þátt í skemmtuninni því hún er hvort eð er löngu byrjuð að smita þar sem fyrstu bólurnar komu í síðustu viku reyndar án þess að nokkurn grunaði að um hlaupabólu væri að ræða.
Í gærkv tók ég svo eftir því að hún er með heljarinar kýli á bak við annað eyrað og ætla ég að láta athuga það í dag því að við erum að fara til eyrnalæknis og ég ætla biðja hann um að kíkja á þetta í leiðinni ef hann getur, þau eru bæði að fara í heyrnamælingu þar sem vitað er að kútur heyrir ílla og títlan kvartar stóran um hversu ílla húin heyri, þannig að það er um að gera að láta tjékka hjá henni í leiðinni.
Kútur er búin að vera snarvitlaus í geðinu þessa vikuna og þá meina ég snarvitlaus, bæði í gær og í dag barði hann mig einfaldlega vegna þess að ég vildi setja hann í sturtu, hann brjálast ef hann á að gera leksur og það má bara hreinlega ekkert útaf bera hjá honum þessa dagana, kannski er þetta vegna norsku stelpunar sem er hérna hjá okkur ég veit ekki.
Annars er ég ekki frá því að þetta veiti manni ákveðið frelsi að blogga á læstu bloggi, nú get ég bloggað um allt og ekkert án þess að eiga það á hættu að fá skítakomment eða duldar hótanir eins og ég hef fengið af og til.
Ég skil bara engan veginn hvernig hægt að vera með drullukast og vesen inná opnum vettvangi þar sem allir getað lesið, frá 18 mars og til dagsins í gær var ég að velta vöngum yfir því hvort ég ætti að hætta hérna inni, en málið er bara það að mér finnst þetta gaman og gott að getað tjáð mig hérna inni þegar mér hentar.
Knús inní daginn elskurnar sem þetta lesið þið eruð fólkið sem ég treysti.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 31. mars 2009
Long time no see
Annars erum við bara góð á þessum bæ, nema hvað að títlan mín er komin með hlaupabólu og er afskaplega sár yfir því sér í lagi vegna að þess næstu daga verður árhátíð í skólanum hjá henni og svo á hún að taka þátt í sundkeppni á laugardag og þetta er svo erfitt að geta ekki tekið þátt í svona skemmtileg heitum.
Þessa dagana er hjá okkur ung stúlka frá Norge, hún kom í gær á vegum skólans síns og skóla gaursins eitthvað verkefni sem er í gangi á milli skólana og verður hún hjá okkur frammá föstudag, gaman af því, reyndar svolítið skrýtið að fara tala norsku aftur og þar sem díalegtan er allt önnur í hennar landshluta er svolítið erfitt að skilja hana stundum, en hún seigjist skilja okkur og það er bara fínt.
Í langan tíma hef ég velt því fyrir mér að læsa blogginu eða hreinlega hætta að blogga og í dag tók ég þá ákvörðun að læsa því og sjá hvernig gengur. Ég er svo skelfilega undrandi á allri drulluni og viðbjóðnum sem gengur manna á milli hérna að ég neita að taka þátt í því, ég hreinlega hef ekki orku né kjark til að standa í því að skíta mann eða annan út á opinberum vettvangi.
Í upphafi taldi ég að gaman yrði að blogga um daginn og veginn og tel ég mig hafa gert það hingað til, ég því miður dróst inní atburðarrás sem ég aldrei vildi taka þátt í og er ég búin að sjá það að ég get hreinlega ekki tekið þátt í svona löguðu, þannig að niðurstaðan varð sú að hér verður læst og fáir útvaldir munu fá hér aðgang.
Knús á ykkur elskurnar mínar sem hingað fá að kíkja
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 18. mars 2009
Þann 18 mars kl 10.01 árið 1993 fæddist mér
yndislega fallegur rauðhærður gaur sem strax varð augasteinn mömmu sinnar. Hans fyrstu ár einkenndust af því að leika sér með dýr, hann hreinlega elskaði öll dýr enda hafði hann svosem ekki langt að sækja það þar sem pabbi hans er bóndi.
Aldrei klikkaði það að hann færi í sveitina aðra hverja helgi og nánast í öllum fríium líka, það dugði oftast nær að verðlauna hann eins og með einni kýr eða einu dóta lambi og þá var minn sáttur í marga daga á eftir.
Þessi elska hefur ávallt verið rosalegur mömmustrákur og höfum við ævinlega verið mjög háð hvort öðru, hann er sem betur fer einn af þeim sem getur talað við mig um nánast alla hluti og alltaf höfum við saman komist að niðurstöðum úr því sem við höfum þurft að glíma við saman.
Árinn okkar í Noregi urðu okkur erfið og höfðum við nánast bara hvort annað til að halla okkur að, gekk það nú yfirleitt vel hjá okkur, í dag og þann tíma sem liðinn er frá því að heim var komið höfum við gengið mörg erfið skrefinn saman en sem betur fer hefur alltaf birt upp um síðir og er það frábært.
Í dag mun hann svo fara í sinn fyrsta ökutíma og er mikill kvíði í mínum manni, en ég veit að hann á eftir að standa sig eins og hetja þar sem og annar staðar í lífinu, hann ætlar sér stóra hluti og ég veit að ef hann leggur sig fram þá mun honum takast þeir hlutir.
ELSKU KALLINN MINN INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ ÁRINN ÞÍN 16 OG MEGI ÞESSI DAGUR VERÐA ÞÉR SEM ALLRA BESTUR. ÉG ELSKA ÞIG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Laugardagur, 14. mars 2009
Hlaupabóla hlaupabóla.
Kúturinn minn vaknaði í gærmorgun alsettur í bólum þetta grey og enn eru að spretta á honum bólur, útum allan kropp á augnlokum og vörum líka, meira að seigja uppí honum, þessi elska er svo náttúrulega drulluslappur með þessu öllu og svo til að kóróna þetta allt saman þá er hann með hálsbólgu líka, það á ekki frammaf þessu greyi að ganga, ég held meira að seigja að undir þessu öllu saman myndi hann frekar vilja fara í skólan heldur en að vera svona veikur.
Til að byrja með í gær var hann afskaplega kátur þegar hann vissi að hann væri með hlaupabólu og gamanið fór nú að versna þegar kláðin og hitinn bættist við svo nú liggur þessi elska í mömmuholu afsakplega lítill í sér.
Annars er ég búin að vera óttalega þreytt og uppgefinn allan þennan mánuð, það er vægt til orða tekið þegar ég seigji að það sem búið er af þessum mánuði hefur verið með allra versta móti í allri sinni mynd, það hefur gjörsamlega allt gengið á afturfótunum undanfarið og þá skiptir ekki máli hvert litið er, það gengur nákvæmlega ekkert upp hjá mér núna, bílinn minn er kominn á tími með að skipta um tímareim og eitthv fl og það kostar dágóðan skilding að gera við hann og sá skildingur er ekki til á þessum bæ, en samt verð ég að láta skipta um reimina áður en hún fer alveg því þá mun það kosta mig mun meiri pening.
Ég er búin að panta mér tíma hjá doksa eftir helgi og nú ætla ég að heimta rannsókn á því hvers vegna ég er svona endalaust þreytt, ég er orðin svo þreytt á því að vera alltaf þreytt endalaust, mér finnst eins og allt sem ég geri sé gert á einhverrri auka orku sem er ekki til staðar heldur er ég að keyra á loftinu einu saman og það er ekki gott.
Ég gæti eflaust kvartað endalaust en til hvers, jú kannski myndi mér líða eitthvað betur eftir á en þar sem ég vill frekar reyna að halda í það jákvæða þá ætla ég að gera það.
Ég get til dæmis verið þakklát fyrir það að hafa þak yfir höfuðið, ég á yndisleg börn og yndislegt barnabarn, ég hef nóg í okkur og á. Við tökum okkur saman nokkra morgna í viku og berum út öll saman, kútur er annars mjög duglegur að bera út með okkur á morgnana, röltir þetta með mér í ca 30 mín yfirleitt á hverjum morgni áður en hann fer í skólabílinn, enda vill hann vinna sér inn pening og það mun hann fá, hann er nefnilega ákveðinn í því að safna sér fyrir wíí tölvu og ég æta að leyfa honum það.
Lífð gengur nokkurn veginn sinn vanagang utan við þau skakkaföll sem dunið hafa yfir mig undanfarið en sem betur fer þá veit ég að fyrri reynslu að betri tímar eru handan við hornið og þá lagast allt aftur, ekki satt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Færsluflokkar
Bloggvinir
- anitabjork
- fanneyunnur
- villinor
- unns
- jyderupdrottningin
- dora61
- mammann
- helgamagg
- heidihelga
- tigercopper
- ernafr
- annambragadottir
- daudansalvara
- ringarinn
- jodua
- jonaa
- ingabaldurs
- skrifa
- tofraljos
- katlaa
- katja
- hugs
- lady
- skelfingmodur
- mammzan
- ylfamist
- huldumenn
- skessa
- tungirtankar
- hallarut
- gurrihar
- nanna
- helgadora
- godinn
- skordalsbrynja
- thelmaasdisar
- rannveigmst
- ipanama
- benna
- ragnarfreyr
- almaogfreyja
- jensgud
- stebbifr
- berglindnanna
- dofri
- olinathorv
- jahernamig
- gerlas
- steinunnolina
- eddabjo
- ellasprella
- sirrycoach
- bryndisfridgeirs
- smjattpatti
- asdisran
- bifrastarblondinan
- svanurg
- stina-sig
- brandarar
- ragnhildur
- leoros
- saedishaf
- solskinsdrengurinn
- dagny65
- topplistinn
- holmfridurge
bloggvinir
- Bói mágur...snilldarbloggari
-
þóranna dóttir mín
heimur þórönnu