Leita í fréttum mbl.is

Nú ætla ég að seigja stríð á hendur níkotín naglanum

Og er þetta minn síðasti reykinga dagur og það vonandi um alla framtíð, ég er vægast sagt komin með ÓGEÐ á þessum VIÐBJÓÐ. Undanfarna daga og vikur hef ég verið að reyna að heilaþvo sjálfa mig með því að seigja sjálfri mér hversu mikill VIÐBJÓÐUR  þetta er og loksins í dag tók ég ákvörðun.

ÉG MUN DREPA Í MÍNUM SÍÐASTA EITURNAGLA Í KVÖLD ÁÐUR EN ÉG FER AÐ SOFA.

Og hjálpartækið sem ég ætla að nota í þetta skipti er munnstykki og sjá hvernig það gengur. Þetta er reyndar í fjórða skiptið sem ég reyni þetta, en einhvern vegin í þetta skipti hlakkar mig til, en kvíð ekki fyrir eins og í hin 3 skiptin.

Langaði bara að deila þessu með ykkur.

Knúsi knúsHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

Lofaðu mér að heyra hvernig gengur, þarf að losna við þetta helvíti en gengur ekki,,,,,, auðvitað sjálfri mér að kenna ég veit það :(  Gangi þér sem allra best,,,,,, þú getur þetta

Erna Friðriksdóttir, 7.1.2009 kl. 17:23

2 Smámynd: Helga skjol

ÉG SKAL ÉG GET ÉG ÆTLA

Knús Auður mín

Helga skjol, 7.1.2009 kl. 17:37

3 Smámynd: Helga skjol

Ég skal leyfa þér að fylgjast með Erna mín

Helga skjol, 7.1.2009 kl. 17:40

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þú tekur þetta núna Helga mín, við munum styðja þig og svo getur þú leitað til þeirra í Apótekinu ef þú ert í vandræðum.
Ég hætti fyrir 4 árum og var búin að undirbúa það vel allt gekk upp, hef ekki reykt síðan.
Knús í krús
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 7.1.2009 kl. 18:02

5 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Flott hjá þér og ég vil líka fá að fylgjast með. Reyki ekki í vinnunni og keyri á öðru hundraðinu heim til að fá mér sígarettu.

Helga Magnúsdóttir, 7.1.2009 kl. 18:22

6 identicon

Gangi þér rosalega vel í stríðinu Helga mín. Þú kemst í gegnum þetta erfiða stríð. Það er ég viss um. Gangi þér rosalega vel. Þú ert hetja ef þér text þetta.

Bestu kveðjur.

Valgeir.

Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 19:12

7 Smámynd: Líney

Frábært  hjá þér,líst vel á þig

Líney, 7.1.2009 kl. 19:14

8 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Flott hjá þér

Jónína Dúadóttir, 7.1.2009 kl. 19:59

9 Smámynd: Helga skjol

Já stelpur mínar, ég ætla að gera allt sem ég get til þess að klára þetta frá í eitt skipti fyrir öll, er orðinn svo þreytt á því að berjast við einhverja bölvaða eiturnagla

Helga skjol, 7.1.2009 kl. 21:17

10 Smámynd: Sigríður B Svavarsdóttir

Hefur þú prófað dáleiðslu?

Sigríður B Svavarsdóttir, 8.1.2009 kl. 00:33

11 Smámynd: Helga skjol

Nei Sigga mín, það hef ég ekki gert

Helga skjol, 8.1.2009 kl. 06:41

12 Smámynd: Jac Norðquist

Gangi þér sem allra best í þessu Helga mín..... nú er ég sjálfur búinn að vera Reyklaus í tæp 40 ár og ég verð að segja að það líður ekki sá dagur að mig langi bara alls ekkert í sígarettu ;)

Bestustu kveðjur til ykkar á Akureyrinni

Jac "Boi" Norðquist

Jac Norðquist, 8.1.2009 kl. 08:06

13 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Góðan daginn Helga mín, mundu þú getur allt sem þú villt.
Ljós til þín
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.1.2009 kl. 10:04

14 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gangi þér vel Helga mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 8.1.2009 kl. 10:30

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gangi þér vel Helga mín.  Þegar ég hætti fyrir tæpum þrjátíu árum, hafði ég einmitt komið mér upp ógeði á reykingum.  En það var fleira, ég fór á svona saftkúr, til að hreinsa líkaman og koma í veg fyrir aukakíló, og svo er líka mikilvægt að eiga pakka upp í skáp, óupptekinn, þ.e.a. s. ef þú treystir þér til.  En það skiptir máli að vita að þú átt hann, en getur staðist að opna hann ef þú skilur hvað ég meina. 

Gott gengi og leyfðu okkur að fylgjast með.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.1.2009 kl. 11:48

16 identicon

Þú ert búinn að gera fyrstu mistökin, að segja fólki frá þessu.

Eina skiptið sem ég hef náð góðum árangri(4 ár), þá sagði ég ekki nokkrum manni frá, hætti fyrirvaralaust(Ekkert plan) og notaði engin hjálparmeðöl.

En: Break a leg

DoctorE (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 14:34

17 Smámynd: Helga skjol

Ég er nú ekki alveg sammála þessu DoktorE, vegna þess að sumum finnst gott að fá peppið og ég er ein af þeim, en við sjáum hvað setur

Helga skjol, 8.1.2009 kl. 15:47

18 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ég er sammála peppið er það sem þarf, gangi þér vel Helga mín.
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.1.2009 kl. 20:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helga skjol
Helga skjol
Ég heiti Helga og er kona,móðir,amma ásamt því að vera fullt fullt annað

Note bene

JÚHÚ kíktu hingað

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband